Gögn sem varða ráðningu Karlottu Jóhannsdóttur sem kennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Um er að ræða bréf varðandi námsárangur hennar og frammistöðu við tvo handavinnuskóla í Damörku og einni vinnustofu. Einnig fylgir umsögn Kristínar Símonardóttur á Kolkuósi um störf Karlottu og hæfileika sem sent var til Þórarins Jónssonar á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu en hann var skólaráðsformaður við Húsmæðraskólann á Blönduósi og tók við umsóknum varðandi ráðningu í kennslustöður við skólann.
Skjalasafn Jóns Sigurðssonar frá Reynistað. Safnið innheldur bæði hans eigin einkaskjöl og einnig nokkur opinber skjöl frá tíð hans sem hreppstjóri í Staðarhreppi í Skagafjarðarsýslu.
Ein lítil ljóðabók sem telur 8 bls. í litlu broti. Heftuð saman, en hefti hafa verið fjarlægð. Höfundur ljóðanna er Pétur Jónsson og heitir bókin "Til Skagafjarðar"
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Óinnbundin lítil bók um stofnfundagerð félagsins. Bók er rifin á forsíðu og síðustu blaðsíðu annars í góðu ástandi. Límborði er á kili. Í bók liggur pappírsmiði með fundargerð 28 mars. 1941 sett í item.
Gögn um Jón Arnbjörnsson vinnumann á Svaðastöðum í Viðvíkursveit, Skagafirði. Ljósmynd, nafnskírteini og vísa ort um Jón. Með fylgir greinargerð um Jón eftir Pálma Rögnvaldsson.
1 handskrifuð fundagerðabók og 1 handskrifuð reikningabók. Einnig lausir reikningar. Með er fundargerð 27. aðalfundar Sambands skagfirskra kvenna 1969.
Lítil stílabók merkt Kristján Jónsson. Bókin er viðkvæm, heftuð saman og hefti góð en kápa trosnuð og blaðsíða hálf laus. Í bók liggur sendibréf sem sett er i örk. Lítið er skrifað í bók
Gögnin komu frá einkasafni Harðar Jónssonar, Hofi 2, oddvita Hólahrepps 1982 - 1990, og voru afhent á Héraðsskjalasafnið á Sauðárkrók þann 10.10.2023. Hörður Jónsson fæddist á Sauðárkróki 24. maí 1952 en ólst upp á Hofi 2 í Hjaltadal þar sem hann átti heimili æ síðan. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 22. ágúst 2023. Gögnin voru óhrein og bækur hreinsaðar og gögn grisjuð af skjalamöppum, afritum og bréfaklemmum, þau eru flokkuð eftir ártali og málefnum. Tekið var úr safni þau gögn er tilheyra Hólakirkju og verða þau pökkuð sér ( Samfélag B - C )
Ljósmyndir frá Ríkharði Jónssyni myndhöggvara varðandi hugmyndir að minnisvarðanum Arnarstapa, teikning Hróbjartar Jónassonar múrarameistara á Hamri og eitt skjal til nefndarinnar
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Ljósmyndasafnið er að stofni til úr tveimur áttum: Sögfélag Skagfirðinga gaf safninu á sínum tíma fjölda mynda og hefur sífellt verið að bæta við. Kristján C. Magnússon var afar ötull myndasafnari og tók sjálfur ljósmyndir, m.a. af mönnum í dagsins önn. Sigrún M. Jónsdóttir, ekkja Kristjáns, gaf Héraðsskjalasafni Skagfirðinga safn manns síns eftir hans dag, mikið og gott að vöxtum. ... Safninu hafa og borist stórhöfðinglegar gjafir einstaklinga. Markmiðið er að safna saman á einn stað sem mestu af því, er víkur að sögu lands og lýðs í Skagafirði."
Yfirlit yfir börn fædd í Mælifellsprestakalli á árunum 1957-1959 og hefti með yfirliti yfir þau börn sem Sólborg Hjálmarsdóttir ljósmóðir í Sölvanesi tók á móti á árunum 1938-1971.
Gögnin, bækur og pappír segja sögu félagsins þennan stutta tíma. Þau hafa verið hreinsuð af heftum og eru vel læsileg. Gögnin komu vel flokkuð og eru látin halda sér þannig eftir uppfærslu.
Þrjú vélrituð blöð með Hellulandsbrag eftir Ólaf Áka Vigfússon. Ólafur lést árið 1961 en þetta skjal hefur mjög líklega verið vélritað og ljósritað nokkuð eftir lát hans. 5 vélirtuð blöð með Útreiða - Túrinn, 38 vísur á 5. bls sem hafa verið vélritaðar og ljósritaðar. 01.02.2024. LVJ