Dagbækur Maríu Björnsdóttur Hansen frá árunum 1965-1988. Dagbækurnar eru fæstar skrifaðar dag frá degi heldur er oft einungis samantekt yfir vikur og mánuði og ná sjaldnast samfellt frá janúar-desember ár hvert. Einnig eru tvær minningabækur frá skólaárum Maríu og Kristjáns á Laugarvatni 1936-1939.
Bréfið er handskrifað 6 pappírsarkir í A4 stærð. Það inniheldur upplýsingar vegna deilumála varðandi útgerð. Pappírinn er nokkuð óhreinn og ryðskemmdir eftir bréfaklemmur.
Bréfið er handskrifað2 pappírsarkir í A4 stærð, skrifað báðu megin á þær. Dálitlar ryðskemmdir og gat eftir einhvers konar festingu sem notuð hefur verið til að halda blöðunum saman.
Bréfið er handskrifað á þrjár línustrikaðar pappírsarkir í A4 broti. Með fylgir umslag og pappírsörk í A5 stærð sem er listi yfir verðlag á Sauðárkróki árið 1924.