Konur sem sækjast eftir öruggum sætum á framboðslistum stjórnmálaflokkanna funduðu á Kaffi Krók í janúar 1999. F.v. Signý Jóhannesdóttir Siglufirði, Herdís Sæmundardóttir Skr. Anna Kristín Gunnarsdóttir Skr. og Elín Líndal á Lækjarmóti.
SKokkhópur Árna Sfefánssonar að loknu síðasta hlaupi sumarsins 1997, en hlaupið var frá Varmahlíð til Sauðárkróks. Árni í neðri röðinni þriðji f.h (í orange lituðu vesti).
Unglingar á Skagaströnd leika hafnarbolta út við Höfðnann. Mynd með grein eftir Rúnar Kristjansson í Feyki í maí 1994. "Nú geta menn sýnt og sannað hugsjónir sínar".
Kyndilhlaup í tilefni Smáþjóðaleikanna sem haldnir voru á Íslandi vorið 1997. Á myndinni er hlaupari frá Siglufirði við Lambanesreyki í Fljótum á leið til Siglufjarðar.
Þorramót hjá íþróttafélaginu Grósku í boccia í íþróttahúsinu á Króknum í febrúar 1999. F.v. Hilmir Jóhannesson, Aðalheiður Bára Steinsdóttir, Snorri Björn Sigurðsson, Ragnar Berg Viðarsson, Sigrún Aadnegard og framan við krýpur Salmína Tavsen.
Krókshlaup 1997. Þrír fyrstu í flokki karla 17-39 ára. F.v. Guðmundur H. Jensson (2. sæti), Daníel S. Guðmundsson (1. sæti) og Stari Heiðmarsson (3. sæti).
Sigurvegarar í karlaflokki 17-39 ára í Krókshlaupi 1998. F.v. Ellert Sigurðsson (3. sæti), Daníel S. Guðmundsson (1. sæti) og Finnur Friðriksson (2. sæti).
Hugsanlega verið að kynna júdó íþróttina hjá Júdódeild Tindastóls en hún var stofnuð haustið 1994. Aðal hvatamaður að stofnun deildarinnar var Karl Lúðvíksson og er hann við vegginn fjær (í bláum buxum).
Þorramót Íþróttafélagsins Grósku í boccia í íþróttahúsinu árið 1995. F.v. Steinar Björnsson, Hilmir Jóhannesson, Aðalheiður Bára Steinsdóttir, Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Ragnar Berg Viðarsson og Sigrún Aagnegard. Framan við er svo Salmína Tavsen.
Frá Þorramóti Grósku í boccia árið 1998 í íþróttahúsinu á Króknum. F.v. Ásta Ragnarsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sólveig Sigurðardóttir, óþekkt og Jóhanna Haraldsdóttir.
Opið golfmót á Hlíðarendavelli í júlí 1986. 4 efstu í karlaflokki. Ragnar H. Ragnarsson frá Húsavík lengst t.h. sigraði og Þórhallur Pálsson lengst t.v. Hinir óþekktir.
Í Opinni viku í skólanum á Húnavöllum í október 1988 var unnið að ýmsum verkefnum. Í veislu um kvöldið var svo borin fram terta sem var líkan af skólanum. Aðalleiðbeinandi í vikunni var Örn Ingi Gíslason myndlistamaður.
Krakkar að fylgjast með hópi bíla frá Fornbílaklúbbi Íslands á Flæðunum sumarið 1987, en bílarnir fóru hringferð um landið til styrktar Krísuvíkursamtöunum. Söfnunin nefndist "Tangarsókn gegn vímu - Átak til hjálpar".
Tilg. Sigurvegarar í 50 flugsundi meyja á Sundmeistaramóti Norðurlands á Hvammstanga haustið 1982. F.v. Anna María Björnsdóttir, Gíslína Salmannsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir.
Ása Dóra Konráðsdóttir tekur við viðurkenningu á ársþingi UMSS í Höfðaborg á Hofsósi í mars 1988 fyrir besta árangur í sundi árið 1987. Það er formaður UMSS Sveinbjörn Njálsson sem veitir henni viðurkenninguna.