Bréfið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 12,7x8,8 sm. Um er að ræða pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Það er gatað með einu gati og stílað á Sigurð.
Bréfið er handskrifað á pappaspjald merkt Jónasi Kristjánssyni lækni og forseta Náttúrulækningafélags Íslands. Á það er límd ljósmynd og inn á myndina er skrifað "Smalastöðvar í Svínadalsfjalli frá barns- og unglingsárum. J.Kr."
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar afkomendur Önnu Jóhannesdóttur og Stefáns Benediktssonar frá Berghyl. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, alls 4 síður. Það varðar fréttir af fjölskyldunni. Bréfið er aðeins rifið þar sem það er brotið saman, en annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Efni þess eru fréttir af heimferð bréfritara úr sveitadvöl í Minni-Brekku og skólagöngu hans. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar undirbúning sýslunnar vegna hljómsveitarferð bréfritara til Íslands 1930. Með liggur fjölritaður miði með lista yfir hljómsveitarmeðlimi. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á þrjár línustrikaðar pappírsarkir í A4 broti. Með fylgir umslag og pappírsörk í A5 stærð sem er listi yfir verðlag á Sauðárkróki árið 1924.
Bréfið er handskrifað á línuustrikaða pappírsörk og undirritað af J.V. Havsteen. Aftan á örkina eru drög af tveimur bréfum, rituðum 1924 af Guðmundi Valdemarssyni.
Bréfið er handskrifað á línuustrikaða pappírsörk og undirritað af J.V. Havsteen. Aftan á örkina eru drög af bréfi til Guðmundar Jónssonar á Stekkjarflötum í Akrahreppi frá Valdemar Guðmundssyni.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar skort á korni. Með liggja afrit af tveimur símskeytum, sem eru frá sýslumanni til Stjórnarráðins og varða sama málefni, og eru handskrifuð á þar til gerð eyðublöð. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð auk fjórðungs úr annarri pappírsörk. Efi bréfsins er sauðfjárbúskapur þeirra Kolbeins og Péturs og auk þess svar við fyrirspurn um ættir Péturs. Blöðin eru upplituð og óhrein.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Það varðar aflabrest við fuglaveiðar i Drangey vorið 1895 og greinargerð Konráðs um orsakir þessa.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar reikningsuppgjör Varmahlíðarfélagsins. Með liggur greinargerð frá Marteini, vélrituð á pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalanna er gott.