Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti. Það varðar umfjöllum almenns fundar í Hegranesi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og er bréfið undirritað af Eggert Briem.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Yfirskrift þess er "Nefndarálit í málinu um breyting á Drangeyjarreglugjörð". Undir það rita þrír nefndarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 broti, alls tvær skrifaðar síður. Það varðar umfjöllum fundar á Hofsósi um breytingar á reglugerð fyrir fiskveiðar við Drangey. Reifuð er niðurstaða fundarins og undir bréfið rita 10 fundarmenn.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, ein skrifuð síða. Það varðar undirbúningsfund fyrir sýslunefndarfund. M.a. herpinótaveiði, nýtingu Drangeyjar, vegamál og fjallskilamál.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í stærðinni 21,9x10,9 sm. Varðar uppsögn vegna nytja Friðriks Jónssonar á Lambhöfða í Drangey. Skjalið er heillegt.
Bátur í Drangeyjarfjöru. Báturinn heitir Björg SK 31. Aftan á mynd stendur einnig Ottó og Elli, báturinn dregin upp með talíu. Vélbáturinn Björg SK.31 dregin á land með talíu á Drangeyjarfjöru 1943. Erlendur og Ottí Þorvaldsson voru aðeins tveir við Eyjuna það vor og urðu að draga bátinn á hliðinni svo báðir gætu verið við dráttinn. Allan útvegin urðu þeir að selflytja á bátnum frá Sauðárkróki svo og fuglinn til lands.
Erlendur Hansen í Drangeyjafjöru að snæða fugl við grjótbyrgið. Byrgið var hlaðið úr grjóti og reft yfir og klætt með áburðarpokum. Betri skúti en úti þegar norðan bræla vor eða sunnan rok.
Ottó Geir Þorvaldsson (1922-2001) í Grjótbirgi í Drangey. Ottó er að borða fugl í Drangeyjarfjöru árið 1943. Byrgið var hlaðið úr grjóti og reft yfir og klætt með áburðarpokum. Betri skúti en úti þegar norðan bræla vor eða sunnan rok. "En minningarnar muna flestir betur" stendur við þessa mynd.
Sigið í Lambhóla, Drangey. Í Lambhöfðanum í Drangey. Í Drangey eru öll egg tekin í svonefndum "hrifsingum" þar sem sigmaðurinn nær hvergi að leysa sig úr vaðnum og safna saman eggjum á syllum eins og í flestum öðrum þekktustu fuglabjörgum Íslands.
Sigurfinnur að síga Háusigum. Sigurfinnur með vaðinn yfir bjargstokknum og reiðubúinn í niðurferðina. Einu sinni kom Sigurfinnur með 320 heil egg úr þessum stað.
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Jón Eðvald Guðmundsson frá Sauðárkróki. Jón segir frá æsku og uppvexti á Hryggjum í Gönguskörðum og Sauðá. Einnig rætt um sjósókn, m.a. vertíð á Drangeyjarfjöru og sigi í Drangey. Fer með vísur eftir sjálfan sig, Friðrik Jónsson og Friðrik Hansen og segir frá samferðafólki sínu á Sauðárkróki. Rætt um Jón Pálma og seðlafölsunarmálið. Viðtalið tekið í Reykjavík - nóvember 1970.