Fremri röð- Gísli Sigurðsson- Víðivöllum- Helga Sigtryggsdóttir kona hans- Guðrún Jónsdóttir Reykjum í Hrútafirði og Þorsteinn Einarsson maður hennar. Aftari röð- Lilja Sigurðardóttir Víðivöllum- Jóhann P. Jónsson Haganesvík- Amalía Sigurðardóttir Víðivöllum og Guðrún Sigurðardóttir Sleitustöðum.
Á myndinni er fjölskyldan á Víðivöllum. Fremst eru hjónin Sigurður Gíslason og Guðrún Pétursdóttir. Í efstu röð, lengst til vinstri er Jón Árnason, við hlið hans Sigríður Sigurðardóttir og fyrir framan hana Amalía Sigurðardóttir.
Í þessu handriti fjallar Sölvi um ferð sína um Skagafjörð sumarið 1847. Hann nefnir sérstaklega tvo menn sem hann segir vera bændur á Víðivöllum. Samkvæmt Íslendingabók var Jón Ólafsson (1820-1886)¬ bóndi þar um þetta leyti en Ingjaldur nokkur Þorsteinsson (1808-1867) var bóndi á nokkrum bæjum um ævina, t.d. á Ríp (1845) og Eyhildarholti (1850) í Rípursókn. Það er því nokkuð líklegt að Sölvi eigi við þann mann þó ekki virðist hann hafa búið á Víðivöllum. Sölvi sakar þessa menn um að stofna sér í lífshættu, því þeir vildu ekki lána honum hest til að ferja sig yfir Héraðsvötn. Vegna þess að hann hafði meðferðis mörg hundruð málverk og ritverk átti hann í erfiðleikum með að synda yfir Vötnin en það kveðst Sölvi alla jafna ekki vera í vandræðum með. Hann brá því á það ráð að vaða yfir og verja listaverk sín með því að halda þeim yfir höfði sér. Vötnin virðast hafa verið óvenju vatnsmikil og straumþung því Sölvi segir sig hafa verið hætt kominn og lá við fótbroti vegna grjóts sem áin bar með sér. Sölvi þakkar Guði fyrir að hafa komist lifandi yfir en vandar þeim bændum á Víðivöllum ekki kveðjurnar.
Minnisvarði um bræðurna á Víðivöllum, Pétur Pétursson biskup, Jón Pétursson háyfirdómari og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður. Víðivellir er bær í Blönduhlíð í Skagafirði, gamalt höfuðból þar sem oft bjuggu höfðingjar, til dæmis ýmsir sýslumenn Skagafjarðarsýslu. Kirkja var á Víðivöllum til forna en var aflögð 1765. Dálítill jarðhiti er á tveimur stöðum í landi jarðarinnar og þar var steypt upp sundlaug árið 1937-38 og var notuð til sundkennslu fram yfir 1960 en nýtt eitthvað lengur til sunds. Eyðibýlið Örlygsstaðir er í landi Víðivalla. Þar var Örlygsstaðabardagi háður 21. ágúst 1238 og er talið að þar hafi barist hátt í þrjú þúsund manns. Minnisvarði um bardagann var afhjúpaður 21. ágúst 1988, 750 árum eftir að hann var háður. Á Víðivöllum fór fram síðsta aftaka í Skagafirði 1789. Var þar hálshöggvin kona úr Fljótum sem hafði fætt barn sumarið áður, fyrirkomið því og grafið. Frá 1809-1842 bjó þar Pétur Pétursson prófastur með Þóru Brynjólfsdóttur konu sinni og þar ólust upp synir þeirra, þeir Jón Pétursson háyfirdómari, Pétur Pétursson biskup og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður, um skeið forstöðumaður íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn , oft nefndir Víðivallabræður. Minnisvarði um bræðurna var reistur skammt frá bænum 1998. Í Íslandsheimsókn Kristjáns konungs 10. sumarið 1936 kom hann við á Víðivöllum ásamt fylgdarliði og borðaði hádegisverð í tjaldi á Víðivallatúni. Dr. Sturla Friðriksson t.v. á myndinni flytur hátíðarræðu, en hann var einn af hvatamönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Blönduhlíðarkvartettinn þau Stefán Jökull Jónsson, Arnar Sæmundsson, Sigríður Sigurðardóttir og Kolbrún Grétarsdóttir syngja við afhjúpun minnisvarða á Víðivöllum um Víðivallabræður þá Pétur, Brynjólf og Jón Péturssyni 5. júlí 1998.