Tilg. Frá afhjúpun minnisvarða við Frúarstíg þ.e. Freyjugötu á Króknum sumarið 1997 um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar. Minnisvarðinn er gjöf frá fjórum karlaklúbbum í bænum.
Frá afhjúpun minnisvarða um Hermann Jónasson fyrrverandi forsætisráðherra á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð haustið 1997 T.h. á myndinni er Steingrímur Hermannsson og t.v. við hann er Edda Guðmundsdóttir kona hans. Lengst t.h. er hugsanlega Pálína Hermannsdóttir.
Minnisvarði um framtak kvenna á Króknum í lok nítjándu aldar var afhjúpaður á horni Skólastígs og Freyjugötu vorið 1997. Minnisvarðinn er gjöf frá 4 karlaklúbbum á Sauðárkróki. T.v. er Steinunn Hjartardóttir að flytja ræðu. Konurnar til hægri eru f.v. Kristín Sölvadóttir, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir, María Lóa Friðjónsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Aðalheiður Arnórsdóttir og Helga Sigurbjörnsdóttir.
Frá afhjúpun minnisvarða um konur á Króknum í lok nítjándu aldar á horni Skólastígs og Freyjugötu vorið 1997. T.v. Árni Blöndal á tali við Kristínu Sölvadóttur. Konurnar eru f.v. Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir (á bak við Huldu), María Lóa Friðjónsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir og Steinunn Hjartardóttir.
Vorið 1997 var afhjúpaður minnisvarði á Sauðárkróki sem stendur á mótum Skólastígs og Freyjugötu, um konur á Króknum í lok nítjándu aldar. Fremst t.v. við minnisvarðan eru Hulda Sigurbjörnsdóttir og Árni Blöndal. T.h. við Árna eru svo Helga Sigurbjörnsdóttir og Steinunn Hjartardóttir. María Lóa Frðiðjónsdóttir er svo til vinstri við Huldu.
Í tilefni 60 ára afmælis Sögufélags Skagfirðinga og 50 ára afmælis Héraðsskjalasafns Skgfirðinga var haldin samkoma í Miðgarði vorið 1997. Þar bar hæst spjall Haraldar Bessasonar frá Kýrholti, fyrrverandi háskólarektors á Akureyri, þar sem hann rifjaði upp kjörfund í samkomuhúsinu á Læk í Viðvíkursveit. Á annað hundrað manns voru á samkomunni.
Pallborðsumræður um menntamál á Sauðárkróki í júlí 1994. Umræðunum var útvarpað. F.v. Finnbogi Hermannsson stjórnandi umræðnanna, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Jón F. Hjartarson skólameistari, Herdís Sæmundardóttir kennari, Valgarður Hilmarsson formaður héraðsnefndar A-Hún. og Stefán Guðmundsson alþingismaður.
Frá athöfn í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans þegar Þróunarsvið Byggðastofnunar opnaði á Sauðárkróki í júlí 1998. Þekkja má á fremstu röð ráðherrana Davíð Oddsson, Geir H Haarde og Pál Pétursson. Konan t.v. við Davíð óþekkt.
Í apríl 1997 var haldin hátíðarfundur í Safnahúsinu í tengslum við 50 ára kaupstaðarafmæli Sauðárkróks. Við pallborðið f.v. Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Jón Ormar Ormsson sem sagði frá aðdraganda að stofnun kaupstaðarins og Hilmir Jóhannesson bæjarfulltrúi.
Óþekkt samkoma í Bifröst. Þekkja má f.v. Steinunni Árnadóttur og Báru Jónsdóttur frá Víðimel þá Friðrik Jónsson (Fía) og bræðurna Eirík og Sigurð Hansen. Aðrir óþekktir.
Krakkar í heyskap í Vík sumarið 1988. Talið frá vinstri: Óþekkt, Þórður Ingvason, Þórunn Hafstað, Ásdís Þórólfsdóttir og uppá rúllunni Björn Thors og Guðlaugur Jón Árnason.
Birkir Angantýsson og Hafdís Guðnadóttir fyrir framan heimili sitt við Sæmundargötuna á Króknum, en Hafdís fór í lifrarskipti í Kaupmannahöfn vorið 2000 fyrst Íslendinga.
Myndin er tekin árið 1987 þegar Ómar Unason byrjaði farþega- og sjóstangveiði frá Hofsósi á Svölunni SK 37. Frà vinstri: Magnþòr Jòhannsson, Uni Pétursson, Sunna Dögg Tavsen Òmarsdòttir, óþekktur, Hafdìs Unnsteinsdòttir, Ómar Unason og Herstein Karl Valgarðsson.
Frá stofnfundi Héraðsvatna ehf sem haldin var í Hótel Varmahlíð vorið 1999. F.v. Óþekktur, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, Sigurður Ágústsson rafveitustjóri, Sverrir Sveinsson rafveitustjóri (í ræðustóli), Kristján Jónsson stjórnarformaður í Héraðsvötnum ehf og Sveinn Þórarinsson stjórnarform. í Rarik.
Garðurinn við dælustöðina í Sauðármýrum hlaut viðurkenningu fyrir snyrtimennsku sumarið 1987. T.h. á myndinni er jarðborinn sem Jón Nikódemusson smíðaði.