Myndin er tekin í McCreary 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna voru karlarnir farnir að týnast á vagnana úr matartímanum, Kári og Gunter sitja lengst til hægri. Lengst til vinstri sést til þorpsins, en við vorum um mílu frá því, með vangatrossuna."
Myndin er tekin í Oehre River 3. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Tröllabarnið og Lýti eru fremstir, síðan Kári og bakvið sést á Ítalann og Þjóðverjann."
Útför Þorvaldar Guðmundssonar kennara frá Sauðárkrókskirkju í október 1961. Líkmenn t.v. Sigurður P. Jónsson, (Guðmundur Einarsson) og Rögnvaldur Finnbogason og t.h.Guðjón Sigurðsson, Kári Jónsson og Erlendur Hansen. Stúlkurnar t.v. eru f.v. Heiðrún Friðriksdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Brynja Harðardóttir og Sigríður Guttormsdóttir og drengirnir t.h. eru neðan frá Gylfi Ingason, Valgarð Valgarðsson og Árni Ragnarsson.
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Kári stendur þarna á brú yfir Assinnibo ána. Þetta er Osborne stræti en miklu fjær gengur Montgomery Ave út úr því. Á bak við Kára sjást þessi stóru auglýsingaskilti kannski 5 metrar á hæð þau eru mjög víða í borginni."
Hreinn Sigurðsson - Haukur Stefánsson - Kári Jónsson og Stefán Guðmundsson. Hallgrímur Sveinsson fyir framan Kára. Þeir félagar voru í stjórn Kvöldstjörnunar - menningarfélags á Sauðárkróki.