- IS HSk N00016-A-B-Mic268
- Item
- 1935-1945
Bræðurnir Aage og Kristinn Michelsen. ( Í bakgrunni stendur að sé Pála hjá Steindóri)
303 results with digital objects Show results with digital objects
Bræðurnir Aage og Kristinn Michelsen. ( Í bakgrunni stendur að sé Pála hjá Steindóri)
Horft yfir Sauðárkrók, bátur við gömlu bryggjuna, sem var utan við hús Verslunar Haraldar Júlíussonar.
Jórunn að gefa hænunum. Magnús Jónsson og Kristinn Michelsen í dyragættinni. Hænsnarækt var mikilvæg búbót fyrir marga Króksara. Árið 1940 voru ríflega 450 hænur á Sauðárkróki en íbúar ríflega 900.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Mynd af Karen Michelsen og Snjókarl sem var reistur á Sauðárkróki.
Útför hugsanlega um að ræða jarðarför Hálfsdáns Guðjónssonar (1863- 1937)
Aðalgata 16, Sýslumannshús eða Michelsenshús kringum árið 1940. Þar hefur verið stundaður verslunar- og veitingarekstur óslitið frá 193?. Takið eftir skiltunum á húsinu.
Myndin er tekin um það leyti er Michelsens fjölskyldan bjó í því. Til hægri var verslun og verkstæði Frank Michelsen en Sápuhúsið vinstra megin. Fjölskyldan keypti húsið árið 1912 og hóf Frank þar verslun og verkstæðisrekstur fljótlega eftir það. Húsið var áður nefnt Sýslumannshús í daglegu tali, enda höfðu þrír sýslumenn búið í því fyrir þann tíma, en formlegt nafn þess var Laufás, eftir prestsetrinu í Eyjafirði.
Elsa og Karen "Dúdda" kæla sig í Sauðárgili.
Það var vinsælt tómstundargaman að baða sig í Sauðánni enda höfðu Skagfirðingar ekki kynnst hitaveitu og þeim þægindum sem nægt magn af heitu vatni hafa í för með sér.
Michelsens fjölskyldan var með kanínur sem var afar fátítt á Sauðárkróki, ef ekki einsdæmi. Ekker laust við að kanínubúskapur hafi farið nokkuð fyrir brjóstið á Sauðkrækingum sem áttu fremur að venjast áti á sauðkindum ekki ekki þessum vinalegu dýrum. Á myndinni eru Aðalsteinn, Aage og Pála Elínborg.
Nautgripaslátrun, Gísli í keldudal fláir en sá sem heldur á brýninu er óþekktur.
Höfði. Gamla símstöðin á Sauðárkróki. Símstöðin var opnuð hinn 1. október 1906 og strfrækt þar til ársins 1954. Við símstöðina var hið fræga kjafrahorn, þar sem íbúar bæjarins hittust til skrafs og ráðagerða, enda stutt að sækja fréttir úr hinum stóra heimi.
Frá vinstir Elsa Michelsen, "Lilla á Stöðinni" og Karen Edtih Michelsen.
Anna Benediksdóttir og Pála Michelsen.
Karen Michelsen
Séð til suðurs yfir Sauðárkrók
Aage Michelsen
Ingólfur Siggeir Andrésson
Hjörtur Laxdal (1908-1946) við bíl K 47
Bílar X 520. Mynd ekki tekin í Skagafirði.
Sauðárkrókskirkja.
Sauðárkrókur, Bærinn undir Nöfunum.
Karen Edith
Frá vinstri; Rósa Pálsdóttir, Pála Michelsen og Jórunn fósturdóttir Rósu.
Börn Jóns Sigfússonar, Dísa og Sigfús.
Horft frá Nöfum út Skagafjörð.
Pála, Aage og Sigfús með kött.
Pála Elínborg, Aage með kött og Sigfús Jónsson.
Elsa, Karen og Pála Michelsendætur.
Kristján Blöndal og Árni Blöndal
Kristján Blöndal og Árni Blöndal
Ólafshús Aðalgata 15
Pála, Elsa, Hulda Michelsen. Börn óþekkt.
Séð yfir Aðalgötuna frá norðri til suðurs. Prúðbúið fólk við "Miklabæ" Aðalgötu 9. Hugsanlega húskveðja Péturs Sighvatz árið 1938. Lágreista húsið er hús Ögmundar Magnússonar söðlasmiðs, þar reis síðar Alþýðuhúsið og nú er þar skemmtistaðurin Mælifell.
Vetrarhörkur á Sauðárkróki. Á þessum tíma voru götur handmokaðar og yfirleitt ekki gert ráð fyrir að bílar færu um þær þegar snjór var sem mestur.
Flutningur á mó úr gröfuminni á Krók var erfið vinna. Matthildur Kristinsdóttir fósturdóttir Steindórs Jónssonar og Karen Edith standa í móflutningum.
Líftryggingar fyrir Franch B. Michelsen (Frank)
Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)
Aðalgata séð í norður. Fyrst frá vinstri Blöndalshús, Briem, Bræðrabúð, Haraldur Júlíusson. Bíll Cervolett 20 Björg G.
Bíll við Skagfirðingabraut. Hugsanlegir eigendur eru Ole Bang og Þorvaldur Þorvaldsson "Búbbi"
Ingólfur Andrésson við sjúkrabílinn á Sauðárkróki.
Pála Michelsen, Pála (hjá Steindóri) og Ísleifur Gíslason.
Aage Michelsen, Beta eða Svana og Kristinn Michelsen
Guðrún Pálsdóttir Michelsen.
Ísjakar.
Paul Michelsen
Karen og Aage Michelsensbörn
Snjór í bakgarði tilgáta að ein af dætrum Frank Michelsens sé í garðinum.
Mynd tekin rétt sunnan við Sauðárkrókskirkju út Aðalgötu. Mynd sennilega tekin að vori. Gamlibarnaskólinn til hægri. Hann var fyrst starfræktur á þessum stað í lok árs 1908 og varð Jón Þ. Björnsson skólastjóri. Jón reyndist einn mikihæfasti skólamður landsins og setti mjög svip sinn á skólastarf á Sauðárkróki um langt skeið.
Séð yfir Sauðárkrók
Hesteyri, höfnin á Eyrinni í byggingu. Steypuklumpar bíða í röðum eftir því að vera sökkt við hafnargarðinn til að verja hann fyrir haföldunni. Nýja höfnin var gríðarmikið mannvirki og boðaði byltingu í atvinnuháttum á Sauðárkróki. Myndin tekin á árunum 1938-1939.
Franch Michelsen með glæsilgum hóp hæna.
Guðrún Pálsdóttir og Elísabet Beck
Guðrún Pálsdóttir Michelsen og Elísabet Beck.
Hafnargarður
Þorbjörg Daníelsdóttir "Lilla á Símstöðinni" og Karen Edith Michelsen "Dúdda" með barnavagn. Barnið er óþekkt.
Georg Michelsen
Frank Michelsen úrsmiður á Sauðárkróki.
Síldarsöltun á Sauðárkróki.
Útför, mynd tekin að líkfylgd.
Mynd tekin norður Aðalgötu, Svangrund, Apóteki og syðri búð.
Sauðárkrókur, Bærinn undir Nöfunum.
Ökumaður óþekktur tilgáta þó Sigurður Björnsson, systurnar María, Guðrún og Rósa Pálsdætur og Jórunn fósturdóttir Rósu.
Franch Michelsen
Skagfirðingur SK1 var í eigu nokkra Sauðkrækinga um tíma m.a. var Jörgen Frank Michelsen einn þeirra.
Matta (hjá Steindóri) og Beta Steindórs.
Steindór Jónsson og Jörgen Frank Michelsen
Steindór Jónsson og Jörgen Frank Michelsen, svilar.
Paul Michelsen
Ottó Michelsen
Karen Michelsen og Aage Michelsen.
Aage Michelsen heldur á folaldi.
Aðalgata séð til suður
Paul og Aðalsteinn Michelsen
Mynd af Aðalgötu 19
Glæsilegur bíll við Aðalgötu 16
Bíll við Michelsens húsið - Aðalgötu 16
Grá meri sem var í eigu Kristinn Michelsens
Sauðárkrókur mynd tekin í suður.
Lög frímerkasafnarafélagsins á Sauðárkróki
Ísland var frímerkjarasafnarafélag á Sauðárkróki og var stofnfundur þess 13.12.1936.
Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)
Stofnfundargerð FSFI á Sauðárkróki.
Stofnfundargerð FSFÍ. Dagsett 13.12.1936.
Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)
Hópferðabíll Haraldar Júlíussonar K 29 18 farþega. Chervolet árgerð 1938.
Nýja höfnin á Sauðárkróki í byggingu. Höfnin var gríðarmikið mannvirki og boðaði byltingu í atvinnuháttum á Sauðárkróki steypuklumbar bíða í röðum eftir að vera sökkt við hafnargarðinn og verja hann fyriri úthafsöldunni. Myndin er tekin á árunum 1938-1939.
Mynd af börnum með hænur, frá vinstri Magnús Jónsson, Aage Michelsen, Elsa Michelsen og Georg Michelsen. Barn fremst á mynd er óþekkt.
Frank með börn. Anna Lísa Michelsen er við fætur afa sins, tilgáta um Svövu Svarvars við hlið Önnu.
Mynd af Frank og Jytte.
Bræðurnir Paul og Franch Michelsen.