Sýnir 139 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Steinunn Sigurjónsdóttir: Skjalasafn
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Steinunn Sigurjónsdóttir: Skjalasafn

  • IS HSk N00316
  • Safn
  • 1920-1950

Skjalasafn Steinunnar Sigurjónsdóttur í Hátúni á Langholti. Gögnin eru samsafn af hennar persónulegu gögnum, bréfum og bókhaldi, ásamt gögnum barna hennar. Steinunn hefur haldið utan um gögn barna sinna frá grunnskólagöngu þeirra og fram á fullorðinsár og eru þau þess vegna skráð með hennar eigin gögnum.

Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)

Gögn Sigurjóns Jónassonar

Skjöl Sigurjóns Jónassonar frá Hátúni sem móðir hans, Steinunn Sigurjónsdóttir, hélt til haga eftir að Sigurjón fluttist að heiman. Gögnin sem um ræðir eru uppkast að bréfi og tveir reikningar frá uppboði í Seyluhreppi.

Sigurjón Jónasson (1915-1993)

Gögn Guðrúnar Jónasdóttur

Gögn Guðrúnar Jónasdóttur frá Hátúni sem móðir hennar, Steinunn Sigurjónsdóttir hélt til haga. Gögnin eru reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga og eitt einkunnablað frá árinu 1936.

Guðrún Jónasdóttir (1927-2019)

Gögn Halls Jónassonar

Skjöl sem tilheyra Halli Jónassyni frá Hátúni. Steinunn móðir Halls hélt gögnunum til haga. Í skjölunum er að finna einkunnablöð, bréf, reikninga og nótur, ásamt einni innbundinni vasabók.

Hallur Jónasson (1918-2011)

Gögn Ólafs Jónassonar

Skjöl Ólafs Jónassonar sem móðir hans Steinunn Sigurjónsdóttir hafði haldið til haga á heimili þeirra í Hátúni á Langholti í Skagafirði. Skjölin eru meðal annars frá grunnskólagöngu Ólafs ásamt nokkrum reikningum og nótum.

Ólafur Jónasson (1926-2014)

Gögn Gunnlaugs Jónassonar

Skjöl Gunnlaugs Jónassonar sem hafði verið safnað saman af móður hans, Steinunni Sigurjónsdóttur. Í skjölum Gunnlaugs má meðal annars finna bókhaldsdgögn, bréf og námsgögn frá dvöl hans á Laugarvatni.

Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)

Gögn Sigurðar Jónassonar

Gögn Sigurðar Jónassonar sem móðir hans Steinunn hafði safnað saman og haldið til haga eftir að Sigurður flutti að heiman. Í safninu eru bréf, námsgögn, bókhaldsgögn og minnisblöð.

Sigurður Jónasson (1913-1989)

Ýmis gögn

Ýmis gögn sem voru í skjölum Gunnlaugs Jónassonar. Þetta eru siðferðisvottorð fyrir Gunnlaug gefið út af Hallgrími Thorlacius, lyfseðill og félagsskírteini ungmennadeildar Slysavarnafélags Íslands.

Uppkast að bréfum og fleira

Eitt tölublað af Barnablaðinu ( 8 árg. 8 tbl.), uppkast að bréfi til Sogurðar Helgasonar, og uppkast að bréfi varðandi áskrift að Barnablaðinu, einnig nokkur tóm umslög merkt Bjarna.

Ýmis gögn

Hér er að finna ýmis gögn úr búi Steinunnar. Happdrættismiða fyrir sundlaug í Varmahlíð, skömmtunarmiða, jólakort, erfiljóð um Sigurð Jónsson frá Brautarholti, dagskrá frá söngskemmtunar Sigurðar Skagfield, ljóð og fleiri blaðsnepplar sem ekki er ljóst hver skrifaði. Einnig ýmislegt útgefið efni, t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.

Námsgögn Gunnlaugs Jónassonar

Námsgögn Gunnlaugs Jónassonar frá Hátúni. Aðallega er um að ræða námsbækur og blöð frá dvöl hans í Laugarvatnsskóla en ein vinnubók er frá grunnskólagöngu Gunnlaugs og inniheldur eina smásögu um tófuna og snigilinn.

Dagbók

Dagbókarslitrur Bjarna Jónassonar, þá á 14. ári. Dagbókin er skrifuð á tímabilinu maí til júní árið 1942.

Einkunnir Sigurðar

Hér má sjá einkunnaspjöld Sigurðar frá árunum 1934-1936. Gefnar eru einkunnir fyrir Íslensku, raddbeitingu, hljóðfræði, skrift, reikning, landafræði, náttúrufræði, sögu, kristinfræði, teikningu og réttritun.

Einkunnir Bjarna

Einkunnir bjarna Jónassonar í vorprófi barna í Varmahlíð á árunum 1937-1939, þá var Bjarni 8 - 10 ára. Gefin er einkunn fyrir lestur, skrift, reikning, sögu og teikningu.

Bréf varðandi eignarlönd Steinunnar og Jónasar

Bréf er varða eignarlönd Steinunnar og Jónasar, Hátún og Miklagarð. Ýmis bréf sem fara á milli eiganda og dóms- og kirkjumálaráðuneytis, kjörinna fulltrúa, Sýslumanns Skagafjarðarsýslu og annarra er málið snertir. Deilt var um engjaskipti sem framkvæmd voru á milli jarðanna Hátúns, Miklagarðs, Glaumbæjar og Jaðars.
Sum bréfin hafa tvístrast og eru því einungis annað hvort bara fyrri hluti bréfs eða seinni hluti.
Einnig er talsvert af uppköstum að bréfum.

Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)

Ýmislegt útgefið efni

Ýmislegt útgefið efni, krónu seðill, barna litabók og annað efni t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.

Bréf

Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.

Laus blöð

Hér er að finna ýmis gögn úr búi Steinunnar. Happdrættismiða fyrir sundlaug í Varmahlíð, skömmtunarmiða, jólakort, erfiljóð um Sigurð Jónsson frá Brautarholti, dagskrá frá söngskemmtunar Sigurðar Skagfield, ljóð og fleiri blaðsnepplar sem ekki er ljóst hver skrifaði.

Vinnubækur Bjarna

Vinnubækur frá grunnskólagöngu Bjarna Jónassonar. Bækurnar gefa góða innsýn í nám barna á þessum tíma en um er að ræða vinnubækur í ýmsum fögum. Bækurnar innihalda teikningar, stíla, skriftaræfingar og fleira.
Bækurnar eru ekki merktar með ártali né námsgrein en líklega inniheldur hver bók/mappa öll námsgögn það skólaárið.
Bjarni myndskreytti mörg blöð með fallegum og vel gerðum myndum.
Gögnin eru líklega mynduð einhvertíman á árabilinu 1937-1943.

Námsgögn frá Laugarvatni

Námsgögn Gunnlaugs frá þeirri tíð er hann dvaldi í Laugarvatnsskóla. Um er að ræða stílabækur og reikningsbækur ásamt lausum blöðum af ýmsu tagi. Skjölin gefa ágætis innsýn í þau fræði sem lögð var áhersla á í skólanum á þeim tíma.

Óþekkt bók

Bók í stærðinni 10,7x 7,2 cm. Kápu og titilblað vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir.
ÁYfirskrift fremstu blaðsíðunnar er Dagverðareyrarmenn. Bókin er 112 bls.

Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni

Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Bréfið skrifar Gunnlaugur frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir Sigurði frá lífinu á Laugarvatni og spyr frétta að heiman.

Bréf frá Halli Jónassyni

Bréf frá Halli til móður sinnar. Bréfið skrifar Hallur frá Akureyri. Segir fréttir af daglegu lífi og lýsir einnig draumi sem hann dreymdi og hvernig hann túlkar drauminn.

Hallur Jónasson (1918-2011)

Landvörn

Blað í stærðinni 38x25 cm, prentað á dagblaðapappír, alls ein opna.

  1. árg 2. tbl. Gefið út í Reykjavík 10. apríl 1946.

Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni

Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar, skrifar um ferðalagið suður yfir heiðar, þar sem hann stundar nám á Laugarvatni. Biður fyrir kveðjum í bæinn og biður sérstaklega um að Sigurður bróðir hans dragi undan hestunum og slepppi þeim niðrá eyjar.

Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)

Landvörn

Blað í stærðinni 38x25 cm, prentað á dagblaðapappír, alls ein opna.

  1. árg 1. tbl. Gefið út í Reykjavík 6. apríl 1946.

Bréf frá Jónasi Jónassyni

Bréf frá Jónasi til móður sinnar, Jónas skrifar frá Reykjavík og segir frá stúlkum sem óska eftir að komast sem kaupakonur í sveit, óskar Jónas eftir því við móður sína að hún segi til um það hvort hún vilji taka þær í Hátún.

Jónas Jónasson (1919-1984)

Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur

Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur frá Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Vestmannaeyjum. Hrefna segist nú vera flutt til Reykjavíkur og ætli sér að hætta að skrifast á við Sigurð, þetta sé því síðasta bréfið frá henni.

Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni

Bréf frá Gunnlaugi bróður Halls. Gunnlaugur skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur á leið sinni heim frá Laugarvatni. Gunnlaugur stoppaði í Reykjavík til að vinna í nokkrar vikur áður en hann héldi norður í land.

Islandsk folkeopdragelse

Hefti í stærðinni 15,3x22,5 sm. Heftið er alls 20 bls, auk kápu.
Höfundur er Holger Kjær.
Heftið er áritað af honum en utan á kápu stendur: "Lisa Hallgrima Thorlacius. Med venlig hilsen fra forfatteren."

Niðurstöður 1 to 85 of 139