Í safninu eru forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum skýrslum um hrúta, veturgamlar ær, hrútadóma og ásett hrútlömb í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Akrahrepps, félagið skiptist í Fjárræktarfélögin Kára og Frosta - eftir staðsetningu bæja innan hreppsins. Skýrslurnar voru ekki sorteraðar eftir heiti félags en þau eru aðgreind sérstaklega á skýrslunum. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti eða ljósritað. Afritin voru tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað eftir ártali og var það skipulag látið haldast nánast óbreytt, sumt þurfti að setja við rétt ártal. Safnið var geymt í möppu og voru millispjöld tekin úr og hefti hreinsuð úr.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tvíriti eða ljósrituð, öll afrit voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin eru vel læsileg og vel með farin.
Skjalasafnið inniheldur bókhaldsgögn, bréf, gögn varðandi félagsheimili, fundagögn, gögn varðandi málaferli v. Eyjafjörð, skólamál skýrslur, útgefin blöð og gögn um sjúkrasamlag, elli- og örorkubætur.
Bréfasafn félagssins sem barst á umræddum tímabili, gögnin eru í misjöfnu ástandi, sum léleg og er reynt að slétta úr blöðum á meðan önnur eru í betra ástandi. Hreinsað hefur verið úr gögnum bréfaklemmur og hefti og nokkuð er um ryð eftir það.
Gögnin innihalda þá starfsemi er var í kringum dráttavél félagsins, traktors vinnustundir, viðgerðir og reikningar. Listi yfir kaupendur Freyr, erindi og bréf o.fr. Gögnin eru í misgóðu ástandi bæði ryðblettir og blöð trosnuð og annað heillegt en gögnin eru vel læsileg.
Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur sem hafa varðveist misvel, tvær þeirra eru í ágætu ásigkomulagi en ein bókanna sem er frá 1913 og heldur utan um útlán safnsins er mjög illa farin. Bindingin er laus og nokkrar blaðíður hafa rifnað þvert yfir, einnig hafa öftustu blaðsíðurnar verið rifnar úr. Í safninu eru einnig pappírsgögn af ýmsu tagi, t.d. bókhaldsgögn, handskrifuð og vélrituð gögn, bæði formleg og óformleg.
Pappírsgögn, forprentuð, handskrifuð og vélrituð. Línu- og rúðustrikaður pappír. Skýrslur, bókhaldsskjöl, formleg- og óformleg erindi, listi yfir bókartitla félagsins og félagatal. Gögnin hafa varðveist ágætlega og eru röðuð í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.
Heilleg harðspjalda bók um lög og fundargerðir félagsins. Bóki í góðu ástandi og lítið skrifað í hana. Inn í bók er ein laus opna af pappírgögnum um fundargerð, sett með bók.
Handskrifuð og vélrituð pappírsgögn, einnig formleg og óformleg. Félagatal, skrár yfir bókatitla og bókhaldsgögn. Gögnin eru í misgóðu ástandi en hafa varðveist ágætlega.
Vel varðveitt forprentuð bókasafnsspjöld og lánsskírteini. handskrifaðar upplýsingar um höfund og bókarheiti og nöfn lántakenda eru á spjöldunum, þau eru með dagsetningum en óvíst er um ártöl. Lánsskírteinin eru ónotuð.
Forprentuð línustrikuð og óbundin pappírsgögn með upplýsingum um bókartiltla í eigu lestrarfélagsins. Gögnin eru vel læsileg og hafa varðveist ágætlega.
Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur og pappírsgögn. Bækurnar eru vel læsilegar og eru í mig góðu ásigkomulagi, ein bókin er illa farin og með rifnar blaðsíður. Pappírsgögnin eru vel læsileg og í mis góðu ástandi.