Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 52 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Eining Réttir
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

49 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

BS198

Fjárrétt við Háamúla við Þverá í Fljótshlíð.

Bruno Scweizer (1897-1958)

BS2792

Hlaðin rétt eða kví. Óvíst hvar - en gæti verið í A-Hún.

Bruno Scweizer (1897-1958)

Hcab 473

Úr Laufskálarétt um 1955. Jón Björnsson á Bakka með hatt- Guðni Friðriksson Víðinesi ber yfir hattinn- loks má þekkja Kolbein Kristinsson á Skriðulandi en hann heldur í sauð. Eftirtaka Jónas Hallgrímsson Dalvík. 1979.

Jónas Hallgrímsson (1915-1977)

PJ 657

Þverárrétt í Borgarfirði árið 1965. Tveir menn á hestbaki, annars með sígarettu en hinn með flösku.

Páll Jónsson

ASv 45

Í Laufskálarétt haustið 1955. Maðurinn fyrir miðju er Kolbeinn Kristinsson frá Skriðulandi og maðurinn til hægri Jón Björnsson frá Bakka í Viðvíkursveit. Aðrir óþekktir.

Árni Sveinsson (1892-1965)

KCM1627

Hlíðarendarétt. Þekkja má f.v. Sigmundur Þorkelsson, Guðmundur Jónsson, Björgvin Jónsson, Árni Rögnvaldsson (með hatt), Pétur Helgason (með gleraugu og Pípu). Framan við Pétur er Björn Björnsson (1955-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1628

Hlíðarendarétt. Þekkja má f.v. Björgvin Jónsson (ber framan við jeppann). Næst t.v. eru Margrét og Valdimar Guðmundsson (Garðs með pípu). Guðmund Valdimarsson (með kastskeyti) ber yfir Valdimar, þá Rögnvaldur Ólafsson og bak við hann Árni Rögnvaldsson (með hatt). Næst t.h. sé á bak Sigurbirni Hólm Björnssyni (1955-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1629

Hlíðarendarétt. Þekkja má f.v. Fjær t.v. er Guðmundur Valdimarsson (með kastskeyti). Nær fyrir miðri mynd Árni Hansen (með gleraugu) (1955-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1630

Hlíðarendarétt. Þekkja má f.v. Björgvin Jónsson (í úlpu með dökkum kraga), Páll Þorkelsson í ljósum jakka og styður hönd á réttarbandið. Lengst t.h. er Jóhannes Haraldsson (dökkhærður) (1955-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM2419

Anna Þorkelsdóttir og (tilg.) Guðni Friðriksson, fósturson hennar og Friðvins G. Þorsteinssonar við Hlíarendarétt (1957-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM2420

Hlíðarendarétt. Næst er bifreiðin K-50 (vörubifreið Ólafs Gíslasonar) og tvo börn inni í bílnum (1955-1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM2746

Anna Þorkelsdóttir leiðir (tilg.) Guðna Friðriksson fósturson sinn og Friðvins G. Þorsteinssonar við Hlíðarendarétt (1955-1960).
Samkonar mynd og nr 2419.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Fey 2173

Skarðarétt. T.v. með derhúfu Ólafur Þórarinsson frá Ríp og fjær t.h. Hilmar Jónsson frá Ási (sér á hlið). Aðrir óþekktir.

Feykir (1981-)