Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Litmynd í stærðinni 16,2x25 sm. Á myndinni er kór eldri borgara í Skagafirði ásamt undirleikara og meðlimum úr öðrum kór. Myndin er tekin í Selfosskirkju.
Svarthvít mynd í stærðinni 13,7 x 9,5 sm, límd á bréfspjald (kabinent) merkt Sigfúsi Eymundssyni ljósmyndara. Á myndinni eru tíu karlmenn sem standa fyrir utan Hótel Tindastól.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Myndir er orðin nokkuð skemmd af óhreinindum og spjaldið rispað og skemmt og búið að brjóta upp á það. Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Ólöf Einarsdóttir, húsfreyja,
Bessi Einarsson (bróðir Ólafar?),
Beinteinn Bjarnason, Siglufirði
Guðmundur Bjarnason, Bakka, Siglufirði,
Þormóður Eyjólfsson, Siglufirði
Jórunn Sigurðardóttir frá Hraunum (síðari eiginkona Lúðvíks Guðmundssonar útgerðarmanns),
Einar B. Guðmundsson
Dagbjört Magnúsdóttir, kona hans
Bjarni Þorsteinsson, prestur Siglufirði,
Sigríður Blöndal Lárusdóttir, kona hans,
Sigríður Jónsdóttir, kona Helga Hafliðasonar,
Matthías Hallgrímsson, Siglufirði,
Guðmundur Davíðsson, bóndi og hreppstjóri, Hraunum,
Halldór Jónasson, kaupmaður Siglufirði,
Helgi Hafliðason, kaupmaður og útgerðarmaður Siglufirði,
Ljósmynd í stærðinni 8,5x5,9 cm. Á myndinni eru Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi og börn. Auður, Garðar, Guðsteinn og Hjálmar (Valborg heldur á honum).
Á myndinni eru þrír karlmenn. Sá í miðjunni er Sighvatur Pétursson Sighvats. Í baksýn sést jeppi, tvær manneskjur á gangi og hlaðinn veggur með reiðtygjum á.
Á myndinni er fjölskyldan á Víðivöllum. Fremst eru hjónin Sigurður Gíslason og Guðrún Pétursdóttir. Í efstu röð, lengst til vinstri er Jón Árnason, við hlið hans Sigríður Sigurðardóttir og fyrir framan hana Amalía Sigurðardóttir.
þrír af sjö þátttakendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskostningarnar 1995. F.v. Ágúst Sigurðsson Geitaskarði, Sigfús Jónsson Söndum og Hjálmar Jónsson Sauðárkróki.
Ljósmynd í cab stærð. Á myndinni eru óþekkt fjölskylda, hjón með fimm börn. Tvær af stúlkunum gætu verið þær sömu og á mynd nr. 26. Myndin er tekin á ljósmyndastofu í Winnipeg.
Ljósmynd í stærðinni 10,4 x 7,8 sm. Á myndinni eru Jens Evertsson (til vinstri) Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson (í miðju) og Ásbjörn Ólafur Sveinsson (til hægri).
Hjaltastaðir, líklega árið 1922. Samskonar mynd og Hvis 903. Talið frá vinstri: Ingibjörg Stefánsdóttir, Hólmfríður Jóhannsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Helga Jónsdóttir, Geirþrúður Stefánsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Helgi Valdimarsson og Stefán Vagnsson
Konan á myndinni heitir Rosie. Aftan á myndina er skrifað: "Rosie (Aug 1970) in Minnesota. Þetta er tekið af Rosie í sumar þegar hún var í Minnesota. Hún er með wig á höfðinu, hárið hennar er mikið lengra. Rosie 19 ára frá July 1970."