Print preview Close

Showing 63323 results

Archival descriptions
English
Print preview Hierarchy View:

38668 results with digital objects Show results with digital objects

Anna Pichler

Virðist vera viðbótarlýsing á kunnáttu Önnu Pichler frá St. Quirin / Tegernsee BAYERN, dagsett 30.05.1949.

Reykjavík

Varðar talstöðvar.
Bréfið er stílað á Braga Skúlason, formann Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. Undirritað af Óskari Þór Karlssyni f.h. Slysavarnafélags Íslands.

Dreifibréf vegna kaupa á snjóbíl

Bréf frá framkvæmdarnefnd vegna kaupa á snjóbíl. Hefst bréfið svona: „Að tilhlutan Lionsklúbbs Sauðárkróks hafa klúbburinn ásamt Rauðakrossdeild Skagafjarðar, Sauðárkróksbæ og Skagafjarðarsýslu tekið höndum saman um kaup á snjóbíl í héraðið, sem nota skal til sjúkraflutninga og í öðrum neyðatilvikum, þegar öðrum tækjum verður ekki við komið.“
Halldór Hafstað skrifar undir, f.h. framkvæmdarnefndar.
Á bakhlið bréfsins eru handskrifuð drög að bréfi Braga Skúlasonar.

Reykjavík

Bréfið er stílað á Svein Sölvason, Slysavarnadeildinni Skagfirðingasveit.
Kvittun fyrir móttöku á rekstrarreikningi og félagstillag 1976. Meðfylgjandi er nóta og umslag.

Sauðárkrókur

Varða uppgöngustiga, krókstjaka og bjarghringi á trébryggjunni við syðra planið.
Undirskriftir: Magnús Sigfússon (f.h. Björgunarsveitar Skagfirðingasveitar) og Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson (f.h. Slysavarnadeildar Skagfirðingasveitar).

Stefán Stefánsson Brenniborg

Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið.
Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg.
Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Pétur Jónasson Sauðárkróki

Viðtal við Pétur Jónasson fyrrum hreppstjóra á Sauðárkróki.
Pétur rifjar m.a. upp bernskuminningar frá Enni, Syðri-Brekkum og Hofsstöðum.
Einnig frá vinnumennsku.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Friðrik Jens Friðriksson læknir

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Friðrik J. Friðriksson lækni.
Ræða m.a. um byggingu Sjúkrahússins á Sauðárhæðum og aðdraganda þess.
Einnig ræða þeir um ferðalög Friðríks á Fjöllum, um Sprengisand, Hofsjökul og Helgrindur.
Sigurður og Friðrík fara báðir með kvæði.

Viðtalið tekið 1967.

Kaupsamningur um suðurhluta Unastaðalands

Kaupsamningur. Gísli Magnússon bóndi Vöglum Akrahreppi selur Upprekstrarfélagi Hóla- og Viðvíkurhrepps suðurhluta Unastaðalands. Dagsett 3.6.1976. Þinglýst og vottað.

Gísli Magnússon (1921-2004)

Útskrift úr landamerkjabók Skagafjarðarsýslu varðandi jörðina Víðimýri

Útskrift úr landamerkjabók Skagafjarðarsýslu, landamerkjaskrá fyrir jörðinni Víðimýri í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu. Þar kemur fram að jörðinni tilheyri rekaítak í Hvalvík, sem er hálfur viðreki og hálfur hvalreki í Hvalvík, frá Hvallæk inn í miðjan Hvalbás, móts við Reynistaðarklaustur. Ritað í Víðmýri 26. maí 1890 af J. Benediktssyni (eiganda Víðimýrar).
Rétta útskrift staðfestir, skrifstofu Skagafjarðarsýslu, 28. apríl 1936, Sigrún M. Jónsdóttir (handskrifuð undirskrift og stimpill).

Results 86 to 170 of 63323