Sauðárkrókur

Taxonomy

Code

Scope note(s)

  • Sauðárkrókur er innst við botn Skagafjarðar að vestanverðu, sunnan undir Tindastóli og skammt sunnan við ós Gönguskarðsár. Byggðin var fyrst öll á fremur mjórri malarspildu undir Nöfunum, bröttum malarkömbum upp af bænum, norðan við ós Sauðár, sem þá rann fram úr Sauðárgili og til norðurs um eyrar undir Nöfunum, þar sem nú er íþróttavöllur, sundlaug og tjaldstæði bæjarins. Byggðin færðist síðar suður fyrir ána og rann hún þá gegnum bæinn en síðar var ánni veitt til suðurs þar sem hún kemur úr Sauðárgili og rennur hún nú fyrir sunnan byggðina. Sauðárkrókur er byggður úr landi jarðarinnar Sauðár. Engin byggð var á eyrinni á fyrri öldum og voru verslunarstaðir héraðsins við austanverðan fjörðinn, á Hofsósi, í Grafarósi og Kolkuósi, en árið 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur verslunarstaður. Þá fóru kaupskip að koma þangað. Þar var þó engin föst búseta fyrr en 1871, þegar Árni Árnason járnsmiður kom sér þar upp þurrabúð og settist þar að. Hann seldi bændum sem komu að versla við kaupskipin gistingu og veitingar. Strax árið eftir kom fyrsta fasta verslunin og kaupmenn, iðnaðarmenn og sjómenn settust að á Króknum og síðan ýmsir embættismenn. Sauðárkrókskirkja var reist árið 1892. Fólki fjölgaði hratt á Króknum fyrstu árin og um aldamótin 1900 voru íbúar um 400. Hafnleysi og einhæfir atvinnuhættir komu í veg fyrir að þessi öra fjölgun héldi áfram. Íbúar voru þó orðnir um 1000 þegar bærinn fékk kaupstaðaréttindi 1947. Gönguskarðsárvirkjun var reist á árunum 1947-1949 og hitaveita úr borholu við Áshildarholtsvatn var lögð í bæinn 1953. Hafnaraðstaða var smám saman bætt og er nú töluverð útgerð og fiskvinnsla í bænum.

Display note(s)

Hierarchical terms

Sauðárkrókur

BT Ísland

Equivalent terms

Sauðárkrókur

Associated terms

Sauðárkrókur

5 Archival descriptions results for Sauðárkrókur

5 results directly related Exclude narrower terms

GI 1254

F. h. Svava Svavarsdóttir - Oddrún Guðmundsdóttir (með gleraugu) - Hólmfríður Friðriksdóttir - (t. v. við Oddrúnu) Steinunn Ingimundardóttir - Ingibjörg Jósafatsdóttir - og Hrafnhildur Stefánsdóttir. Allar úr UMF Tindastóli. Aðrar óþekktar. Fánaberi Stefán Guðmundsson. Guðjón Ingimundarson lengst t.v. Handknattleiksmeistaramót Íslands á Sauðárkróki.

GI 1269

F. h. Svava Svavarsdóttir - Hólmfríður Friðriksdóttir - Oddrún Guðmundsdóttir - Steinunn Ingimundardóttir - Hallfríður Guðmundsdóttir - Hrafnhildur Stefánsdóttir - óþekkt - óþekkt og Ingibjörg Lúðvíksdóttir. Allar úr UMF Tindastóli. Aðrar óþekktar. Fánaberi Stefán Guðmundsson. Handknattleiksmeistaramót Íslands á Sauðárkróki.

GI 1273

Lið Tindastóls. Efri röð frá vinstri: Ragnheiður Brynjólfsdóttir - Hrafnhildur Stefánsdóttir - Oddrún Guðmundsdóttir - Sigrún Angantýsdóttir - Ingibjörg Jósafatsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Íris Sigurjónsdóttir - Þórdís Friðriksdóttir - Svava Svavarsdóttir og Rannveig Jónsdóttir.

GI 170

Handknattleiksflokkur kvenna árið 1957. Aftari röð frá vinstri: Oddrún Guðmundsdóttir - Ingibjörg Jósafatsdóttir - Helena Magnúsdóttir - Hallfríður Guðmundsdóttir -Steinunn Ingimundardóttir. Fremri röð frá vinstri: Lára Angantýsdóttir - Hrafnhildur Stefánsdóttir - Hólmfríður Friðriksdóttir - Svava Svavarsdóttir - Gígja Haraldsdóttir og Ingibjörg Lúðvíksdóttir.