Sauðárkrókur

Taxonomy

Code

Scope note(s)

  • Sauðárkrókur er innst við botn Skagafjarðar að vestanverðu, sunnan undir Tindastóli og skammt sunnan við ós Gönguskarðsár. Byggðin var fyrst öll á fremur mjórri malarspildu undir Nöfunum, bröttum malarkömbum upp af bænum, norðan við ós Sauðár, sem þá rann fram úr Sauðárgili og til norðurs um eyrar undir Nöfunum, þar sem nú er íþróttavöllur, sundlaug og tjaldstæði bæjarins. Byggðin færðist síðar suður fyrir ána og rann hún þá gegnum bæinn en síðar var ánni veitt til suðurs þar sem hún kemur úr Sauðárgili og rennur hún nú fyrir sunnan byggðina. Sauðárkrókur er byggður úr landi jarðarinnar Sauðár. Engin byggð var á eyrinni á fyrri öldum og voru verslunarstaðir héraðsins við austanverðan fjörðinn, á Hofsósi, í Grafarósi og Kolkuósi, en árið 1858 varð Sauðárkrókur löggiltur verslunarstaður. Þá fóru kaupskip að koma þangað. Þar var þó engin föst búseta fyrr en 1871, þegar Árni Árnason járnsmiður kom sér þar upp þurrabúð og settist þar að. Hann seldi bændum sem komu að versla við kaupskipin gistingu og veitingar. Strax árið eftir kom fyrsta fasta verslunin og kaupmenn, iðnaðarmenn og sjómenn settust að á Króknum og síðan ýmsir embættismenn. Sauðárkrókskirkja var reist árið 1892. Fólki fjölgaði hratt á Króknum fyrstu árin og um aldamótin 1900 voru íbúar um 400. Hafnleysi og einhæfir atvinnuhættir komu í veg fyrir að þessi öra fjölgun héldi áfram. Íbúar voru þó orðnir um 1000 þegar bærinn fékk kaupstaðaréttindi 1947. Gönguskarðsárvirkjun var reist á árunum 1947-1949 og hitaveita úr borholu við Áshildarholtsvatn var lögð í bæinn 1953. Hafnaraðstaða var smám saman bætt og er nú töluverð útgerð og fiskvinnsla í bænum.

Display note(s)

Hierarchical terms

Sauðárkrókur

BT Ísland

Equivalent terms

Sauðárkrókur

Associated terms

Sauðárkrókur

69 Archival descriptions results for Sauðárkrókur

69 results directly related Exclude narrower terms

Fey 158

Íþróttavöllurinn á Sauðárkróki.

Feykir (1981-)

Fey 165

Íþróttavöllurinn á Sauðárkróki.

Feykir (1981-)

GI 1115

Björgvin Bjarnason í ræðustól. T. v. við dyrnar má sjá Sigurð Sigurðsson sýslumann Guðjón Ingimundason og Valgarð Blöndal. Guðrún Sveinsdóttir kennslukona (með hatt við stigan ofan í laugina)T.v. við Guðrúnu er María Pétursdóttir - þá (Finney Reginbaldsdóttir) - Soffía Jónsdóttir - Erla Brynjólfsdóttir - Árbæ (situr) og Sveinsína Bergsdóttir (situr lengst t.v.) Lengst t. h. Abelína Magnúddóttir - Stefanía Anna Frímannsdóttir. Kristín Sölvadóttir og Brynhildur Jónasdóttir. Kári Steinsson stendur að baki Brynhildi. Við vegginn t.h. Ingibjörg Kristjánsdóttir (með gleraugu önnur frá horninu) þá Ögmundur Svavarsson og Sverrir Svavarsson. Ingibjörg Jónsdóttir situr framan við Ögmund. Vígsludagur sundlaugarinnar árið 1957

GI 1116

Sigurður Sigurðsson í ræðustól. t.v. við dyrnar (Þorsteinn Einarsson) - Friðrik Friðriksson og Valgarð Blöndal. Guðrún Sveinsdóttir kennslukona (með hatt við stigan ofan í laugina) Hjörleifur Andrésson (að baki Guðrúnu). Vígsludagur sundlaugarinnar árið 1957

GI 1247

Áhorfendur á handknattleiksmeistaramóti kvenna á Sauðárkróki árið 1957. Við bikarinn er Hannes Pétursson.

GI 1979

Sundmót í Sauðárkrókslaug. Tímaverðir f.h. Stefán Guðmundsson (í dökkum frakka) - Kári Steinsson (með sólgleraugu) og Sigurður Haraldsson (í ljósum jakkafötum).

GI 2069

Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984. Hjördís á 3. braut í baksundi.

GI 2071

Sundmeistaramót Norðurlands í Sundlaug Sauðárkróks 1.-2. september 1984. Ingibjörg Guðjónsdóttir á 3. braut.

GI 27

Mynd tekin niður Grænuklauf - yfir hátíðarsvæði landsmóts UMFÍ - Víðigrund og Smáragrund.

GI 281

Mögulega Norðurlandsmót í Sundlaug Sauðárkróks. María Valgarðsdóttir næst, í bakgrunni er Sigurlína Hilmarsdóttir, Þorbjörn Árnason og Jón Árnason frá Akureyri bakvið Maríu.

GI 36

Mynd yfir landsmótssvæði á Sauðárkróki árið 1971 - Skagfirðingabraut - Öldustígur - Víðigrund.

GI 551

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir (í gulri dragt) í opinberri heimssókn í Skagafirði. T. v. Stefán Pedersen (í bláum gallabuxum) Sér í bakið á Þorsteini Ásgrimssyni ftá Varmalandi (í ljósum frakka)

GI 552

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir í opinberri heimssókn í Skagafirði. Vigdís í gulri dragt. Snorri Björn Sigurðsson vinstra megin við Vigdísi. Hægra megin við Vigdísi - Þorsteinn Ásgrímsson - kona ókekkt - Magnús Sigurjónsson (með sólgleraugu) - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir (með bláan hatt)

GI 553

Forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir í opinberri heimssókn í Skagafirði. F. v. Vigdís Finnbogadóttir - Þorsteinn Ásgrímsson - Ingibjörg Sigurðardóttir - Halldór Þ. Jónsson og Aðalheiður Ormsdóttir. Á bak við sér í Magnús Sigurjónsson og Kristbjörgu Guðbrandsdóttir (við hlið Magnúsar). Aðrir óþekktir.

image 68

Á íþróttavellinum. Íþróttavöllur Sauðárkróks.

UMSS (1910-