- S01788
- Person
- 23. júní 1891 - 16. mars 1965
Foreldrar: Þorvaldur Ólafsson b. í Hólkoti og k.h. Kristín Magnúsdóttir. Árni ólst upp hjá foreldrum sínum í Hólkoti. Árið 1920 kvæntist hann og bjó síðan í félagi við foreldra sína til ársins 1932 er hann tók alfarið við búi í Hólkoti og bjó þar til sjötugs aldurs, er hann flutti til Sauðárkróks. Árni stundaði sjómennsku meðfram búskapnum. Hann var virkur félagi í hestamannafélaginu Léttfeta á Sauðárkróki og var svo lánsamur að eignast héraðsfræga gæðinga. Árið 1930 var Lestrarfélag Skarðshrepps stofnað. Árni var þá kosinn bókavörður þess og gengdi því starfi í 32 ár, til ársins 1962. Árni kvæntist Sigurbjörgu Hálfdánardóttur frá Sauðárkróki, þau slitu samvistum árið 1935, þau eignuðust fimm börn.