Bréfspjald með ljósmynd í brúntónum. Á myndinni er eldri maður. Bréfspjaldið er skrifað á Akureyri 2.maí 1923 og undirskrifað af Steingrími en föðurnafn er óljóst. Það er sent Hrólfi Þorsteinssyni á Ábæ í Skagafirði.
Jólakortið er með litmynd framan á og aftan á er handskrifaður texti. Það er stílað á Sæmund Dúason, þá búsettan á Siglufirði. Búið er að klippa hornið með frímerkinu af kortinu.
Póstkortið er með svarthvítum myndum og aftan á það er handskrifaður texti. Það er stílað á Sæmund Dúason, þá búsettan á Siglufirði. Ekki tekst að lesa nöfn sendanda.