Fangamark Elínar Vigfúsdóttur frá Geirmundarstöðum í Skagafirði, síðar húsfreyju að Borgargerði og Daðastöðum. Áletrunin er: "yngisstúlkan E V D". Upplýsingar um fangamarkið ritar Gunnar S. Sigurjónsson.
Nokkrar teikningar af hlutum, verkfærum. Hólaskólaverkefni. Merktar Birni Símonarsyni. Hér er lögð fram sú tilgáta að þetta sé Björn Símonarson, kenndur við Hofstaðasel en hann stundaði nám í Hólaskóla 1917-1919.
"Hugleiðing". "Kaflar úr líkræðum" yfir Ásgrím Guðmundsson, Þorbjargarstöðum og Jónas Vilhelm Lárusson, Sævarlandi, eftir sr. Finnboga Kristjánsson, Hvammi, Laxárdal. Ehdr.
Fylgiskjöl við rekstur Grunnskólans á Hólum. Gögnin eru sett saman eftir mánuðum og ártali og eru látin halda sér að mestu þannig, einhver hreinsun á sér stað á fjölprentuðu efni og bréfaklemmum, hefti ekki tekin. Gögnin eru í góðu ástandi.
Bindindisfélagið Tilreyndin var stofnuð 12. febrúar. 1898. Fyrsta fundagerðabók í þessu safni er frá 19. mars.1905 þar kemur m.a. fram spursmál um hvernig nota menn málfrelsi á fundum og því tali stúlkur ekki á fundum. Mikið er ritað í þessum fundagerðaðbókum og hægt er að sjá þjóðfélagsþróunina í færslunum. Á þessum tíma breytist Bindindisfélagið Tilreyndin yfir í U.M.F. Geisla og síðarí U.M.F Neista.
Myndin er tekin á Gamla Spítalanum á Sauðárkróki. Efri röð frá vinstri: Benedikt Jónsson. Sigríður Pétursdóttir. Óþekktur. Fanney Þorsteinsdóttir. Guðlaug Sigurðardóttir. Ólína Jónasdóttir. Hallfríður Jónsdóttir. Neðri röð frá vinstri: María "Systir María". Helga Jónsdóttir, Goðdölum. Ingibjörg Hallgrímsdóttir, húsfr. Kjartansstaðakoti. Halldóra Guðvarðardóttir, húsfr. í Hafnarfirði.
Frá vinstri: Anna Gunnlaugsdóttir húsfr. á Hofi í Hjaltadal. María Pálsdóttir húsfr. í Vogum í Kelduhverfi. Friðfríður Jóhannsdóttir húsfr. í Hlíð í Hjaltadal
Hjörtur Hjálmarsson og kona hans Þórunn Gunnarsdóttir (sitja). Frá vinstri: dóttir Hjartar, Lundfríður, Ingibjörg Guðmundsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir, fósturdætur Hjartar og Þórunnar.