Showing 122 results

Archival descriptions
Item Ljóð
Print preview Hierarchy View:

5 results with digital objects Show results with digital objects

Rótarýmenn

Skjalið er tvær handskrifaðar pappírsarkir, með röthönd Árna Blöndal. Inniheldur vísur ortar um félaga í Rótarýklúbbi Sauðárkróks.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Eftirmæli

Handskrifað sendibréf frá Reyni Jónssyni. Ljóð er heitir Gamla baðstofan kvödd, tvö mismunandi ljósrit. Horft um öxl eftir Lilju í Ásgarði.

Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)

Brot af jólum

Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Efst er það merkt Hinrik Má Jónssyni Syðstu-Grund, með rithönd Árna Blöndal.

Hinrik Már Jónsson (1967-

Afmælisljóð frá spilafélaga

Ljóðið er vélritað á A4 pappírsörk. Í yfirskriftinni kemur fram að um sé að ræða afmæliskveðju frá spilafélaga, Birni Eysteini Jónssyni, til Árna Blöndal á áttræðisafmæli. Neðst er handskrifað að Jói í Stapa sé höfundur ljóðsins.

Jóhann Pétur Guðmundsson (1924-2020)

Haukur Björnsson 60 ára

Skjalið er ein pappírsörk, skrifuð með rithönd Árna Blöndal og er afmælisljóð til Hauks Björnssonar frá Bæ á 60 ára afmæli hans árið 2000.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Árshátíð spilaklúbbsins 1995

Skjalið er tölvuprentað og inniheldur nafnalista ásamt spakmælum og ljóðlínum, sem og skýringum. Einnig eru á blaðinu myndir af þeim sem um ræðir. Meðfylgjandi er handskrifað blað með sömu vísum og spakmælum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Til Jóu

Ljóðið er handskrifað á miða sem límdur hefur verið á A4 pappírsörk, ásamt mynd af Jóhönnu Blöndal. Aftan á örkina er límdur minnismiði þar sem listuð er upp tónlist flutt við jarðarför Jóhönnu 19. júlí 1988.

Hvöt

Ljóðið ljósrit af handskrifuðu ljóð og merkt höfundi, Jóhönnu Blöndal.

Sumarkveðjur

Skjalið er tvær pappírsarkir límdar á stærri örk. Inniheldur tvö ljóð sem virðast vera sumarkveðjur til Jóhönnu Blöndal, annars vegar frá Siggu og Pétri og hins vegar frá Hönnu og Hannesi.

Þakkarljóð

Ljóðið er handskrifað á á pappírsörk með rithönd Árna. Efst á blaðið er búið að skrifa athugasemd: "Alli í Grímsey sendi mér svartfuglsegg, og mun það vera tilefni ljóðsins.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ljóðið Hótel jörð

Ljóðið Hótel jörð eftir Tómas Guðmundsson.
Ljóðið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk í A5 stærð með rithönd Marteins Steinssonar.
Ástand skjalsins er gott.

Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,8 cm.
Bókin inniheldur einkum ljóð eftir þjóðskáldin og a.m.k. eina vísa er eftir Björn Pétursson frá Sléttu.
Með liggur minnisblað um skuldi bænda í Fljótum við Samvinnufélag Fljótamanna.
Ástand skjalanna er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur einkum ljóð, m.a. "Þið þekkið Fljót með ís og snjóinn..."
Kápu vantar á bókina og hún er óhrein.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 32,3 x 20,3 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaðarfróðleikur úr Fljótum og Siglufirði, að mestu í annála eða dagbókarformi.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaður fróðleikur um bændur í Holtshreppi 1900 og áratugina á eftir.
Ýmis ljóð koma við sögu, einkum eftirmæli.
Sagnaþáttur um fund Íslands og Ameríku. Nokkur atriði úr íslandssögunni, einkum á Sturlungaöld.
Nokkrir fróðleiksmolar úr spurningaþættinum sýslurnar svara sem var sendur út í útvarpi.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókinni eru uppskriftir af fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1919-1926, fróðleikur um blaðið Vísi sem félagið gaf út.
kafli úr sveitarlýsingu Holtshrepps árið 1900 eftir Hannes Hannesson, annáll 1937-1950 og fleiri frásagnir og ljóð úr Fljótum. M.a. eftir Hannes Hannesson.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 29,7 x 21,2 cm.
Í bókina er skrifaður ýmiss fróðleikur, einkum æviþættir og fáein ljóð.
Líklega að stórum hluta uppskriftir.
Með liggja allmörg laus blöð, hér og þar um bókina.
Bókin hefur verið bundin inn með harðspjalda kápu, en kápuna vantar framan á og blöðin eru orðin mjög sundurlaus.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Á kápusíðu er ritað: "Til hamingju með áttræðisafmælið. Til Péturs Frá Ástu."
Í bókina er ritaður annáll Holtshrepps árið 1956 og ýmsar hugleiðingar. Einnig koma fyrir ýmis ljóð.
Tilgáta að mest af þessu efni sé eftir Hannes Hannesson á Melbreið.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,4 cm.
Bókin inniheldur aðallega vísur.
Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20 x 16,4 cm.
Bókin inniheldur eingöngu kveðskap.
Kápu vantar á bókina og síðurnar eru upplitaðar.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 24,7 x 19,4 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaðar rúmlega 300 spurningar og svör, líklega úr útvarpsþætti. ýmsir fróðleiksmolar, líklega uppskrifaðir úr bókum og blöðum. Ýmiss siglfirskur og skagfirskur fróðleikur, m.a. um Sturlungu og úr Fljótum. Nokkrar annálafærslur. Uppskriftir úr útvarpsþáttum 1958-1959. Ljóð, m.a. ljóð Gunnars S. Hafdal um Fljótin. Æviþættir o.fl.
Kápa bókarinnar er farin að losna í sundur.
Með liggja tvö minnisblöð.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaður fróðleikur og ljóð úr útvarpsþáttum. Einnig ýmis önnur ljóð, æviágrip Pálma Sveinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði, hugleiðing um kosningarétt kvenna, annála atriði, fróðleikur um símalagningu og Glaumbæ í Skagafirði, fjártala í Holtshreppi 1932,frásögn um leiksýningu 1953 (ekki ljóst hvar hún var sett upp) og sögn um álagablett í Minni-Brekku.
Ástand bókarinnar er gott.
Með liggja tvö minnisblöð

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 25,4 x 19,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókinni eru skrifaðar rímur eftir Guðmund Stefánsson.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur ýmis ljóð, einkum erfiljóð eftir Fljótamenn.
Kápan er laus frá bókinni og síðurnar eru upplitaðar.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20 x 16 cm.
Bókin inniheldur kveðskap. Höfunda er getið.
Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaðuð ljóð, m.a. erfiljóð. Mörg þeirra eru eftir Guðmund Stefánsson frá Minni-Brekku.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu.
Í bókina er skrifaðuð ljóð eftir ýmsa höfunda. Aftast í bókinni er efnisyfirlit í stafrófsröð.
Ástand bókarinnar er gott.
Með liggja tvö minnisblöð

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Gunnar Jóhannsson frá Mælifellsá

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Gunnar Jóhannsson frá Mælifellsá.
Rætt er um kjör öryrkja en Gunnar bjó við fötlun.
Gunnar fer með frumsamda vísu.
Viðtalið er tekið í Reykjavík - nóvember 1970.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Skagafjörður

10 arkir úr skrifblokk, þéttskrifaðar. Innihalda ljóðið Skagafjörður eftir Lúðvík Kemp. Á fremsta blaðið er ritað til hliðar: "L. Kemp/ Eiríkur Kristinsson."

Jón Eðvald Guðmundsson Sauðárkróki

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Jón Eðvald Guðmundsson frá Sauðárkróki.
Jón segir frá æsku og uppvexti á Hryggjum í Gönguskörðum og Sauðá.
Einnig rætt um sjósókn, m.a. vertíð á Drangeyjarfjöru og sigi í Drangey.
Fer með vísur eftir sjálfan sig, Friðrik Jónsson og Friðrik Hansen og segir frá samferðafólki sínu á Sauðárkróki.
Rætt um Jón Pálma og seðlafölsunarmálið.
Viðtalið tekið í Reykjavík - nóvember 1970.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Davíð Stefánsson

Hljóðupptaka af hljómplötu - Davíð Stefánsson les ljóð eftir sjálfan sig.
Mjög slæm upptaka og starfrænt afrit því ekki sett hér inn.

Guðrún Á Johnson

Ljóðið er ein handskrifuð pappírsörk, undirrituð af PHÁ og er eftirmæli um Guðrúnu systur hans.

Páll Árnason (1906-1991)

Erfiljóð; Jóhanna Steinunn Jóhannsdóttir

Kveðjuorð frá börnum og barnabörnum um Jóhönnu Steinunni Jóhannsdóttir (f. 1. september 1881-23. júlí 1960).
Það vaknar svo margt í minni á skilnaðar-stund.
Minningar knýja fram trega og viðkæmni í lund.
Á bernskunnar daga skín birta, sem aldrei þverr.-
Það besta af öllu, ó mamma að vera hjá þér.

Þá verndaði okkur þín umhyggja örugg og traust.
Við erfiðu lífskjörin barðist þú starfsöm og hraust.
Í vandanum kunnir þú oftast nær einhver ráð.
Hið örðuga vék fyrir staðfestu þinni og dáð.

Árin þau liðu og tápið og þrótturinn þraut,
Þung eru sporin á elli og sjúkleika braut.
Það eins og annað svo þolgóð og beyglaus þú barst.
Það brást ei né duldizt í raunum, hver hetja þú varst.

En sárt var að horfa upp á þjáningu þína og kvöl.
Þakka skal öllum er léttu þér sjúkdómsins böl.
Að drottinn þeim launi, sem barnið af hjarta ég bið,
hann blessi þær hendur er veittu þér sjúkri lið.

Þú sýndir í verkinu órofa átthaga trygg.
Hún átti þitt hjarta ´hin svipmikla norðlenzka byggð.
Þú þráðir svo löngum, er endaði för þín á fold
Að fá þá við lokin að hvílast á Skagfizkri mold.

Við kveðjum svo þakklát og biðjum guðs miskunn og mátt
Að mætti okkar auðnast að launa þér allt á þann hátt,
Að reisa þitt merki, að vera í verkum trú.
Vinir hins snauða og einmana, rétt eins og þú.

Það vaknar svo margt í minni á skilnaðar tíð.
Mildar úr treganum vonin, við hittumst um síð.
Vertu sæl mamma, í vernd guðs um eilífðar stig.
Vertu sæl amma, og friður guðs umvefji þig.

Þuríður Jóhannesdóttir (1926-1969)

Hafís

Ljóðið er handskrifað á græna pappírsörk í A5 stærð. Búið er að strika yfir og gera nokkrar leiðréttingar.

Sigurður Sigurðsson (1887-1963)

Frúarrímur 1955

Frúarrímur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá.
Ekki er ljóst hvort rímurnar eiga við frúr í einhverjum tilteknum hreppi eða byggðarlagi.

Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)

Bændavísur

Vélritað hefti með 8 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í Laxárdal og á Skaga.

Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)

Bændavísur

Vélritað hefti með 17 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í framsveitum Skagafjarðar.

Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)

Minnisbók

Minnisbók í stærðinni 7,5x12,8 sm.
Inniheldur minnispunkta yfir eggjatekju í Drangey, fuglaveiðar og kveðskap.

Sigurfinnur Jónsson (1930-)

Bændarímur 1955

Þrjú hefti af Bændavísum eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá frá árinu 1955.
Eitt hefti um bændur í Akrahrepps í Blönduhlíð.
Eitt hefti um bændur í Laxárdál og Skaga.
Eitt hefti um um bændur í Lýtingsstaðahreppi og víðar.

Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm.
Hún inniheldur kveðskap, m.a. eftirmæli eftir Fljótamenn.
Kápan er nokkuð óhrein, en annars er ástand bókarinnar gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Vísnabók

Innbundin stílabók sem inniheldur handskrifaðar vísur og kvæði eftir ýmsa höfunda, m.a. marga Skagfirðinga.

Sigmundur Baldvinsson (1900-1983)

Guðað á glugga

Fjölritað hefti í A5 broti, alls 16 síður að kápu meðtalinni.
Heftið er gefið út af Forlaginu Pésa og inniheldur kveðskap sem tengist presti nokkrum.
Ástand skjalsins er gott.

Stephan G. Stephansson

Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm.
Stephan G. Stephansson.
Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða.
Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð.
Inniheldur ljóð eftir skáldið.

Stephan G. Stephansson (1853-1927)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,9 cm.
Bókin inniheldur ljóð eftir Bólu-Hjálmar, ásamt fáeinum öðrum ljóðum, uppskrift af leikriti og uppskrift úr útvarpsþætti frá 1949.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Þráin mín

Ljóðið er handskrifað og neðanmáls er dagsetning og Sigurður Sigurðsson frá Vigur sagður þýðandi.

Sigurður Sigurðsson

Upprisa

Ljóðið er handskrifað á pappírsörk. Um uppkast er að ræða og eru ýmsar leiðréttingar og endurbætur færðar inn á það. Dagsett neðst en höfundur ókunnur.

Ljóðmæli

Óinnbundin bók.

Ljóðmæli / Hjálmar Jónsson frá Bólu ; Jónas Jónsson gaf út
Hjálmar Jónsson 1796-1875 (frá Bólu)
Reykjavík : Menningarsjóður, 1942
Íslensk úrvalsrit
xlvii, 112 bls. : teikningar ; 18 sm.

Hjálmar Jónsson (1796-1875)

Vor Í Skagafirði

Vor í Skagafirði - tileinkað félaginu í "Varmahlíð"
Vor í Skagafirði (tileinkað félaginu „Varmahlíð“)

  1. Nú er vor yfir jörð.
    Yfir fjall, yfir fjörð
    Hellast fossar af skínandi, blikandi ljóma.
    Hér er unaður nýr,
    Þegar árdagsblær hlýr
    Leysir allt, sem að lifir úr kveljandi dróma.
    Hið „ónýta“ og visna að hauðrinu hnígur,
    Til himinsins ilmur frá jörðinni stígur.
    Yfir bjartsýna þjóð,
    Með sín blíðustu ljóð,
    Vorsins brosandi herskari ástfanginn, syngjandi flýgur.

  2. Nú ber Mælihnjúk hátt.
    Upp í heiðloftið blátt
    yfir héraðið rís hann í konungstign sinni.
    Eins og vörður í kring
    raðar hamranna hring.
    Hvílík tign, hvílík dýrð yfir sveitinni minni.
    Um Kaldbak og Tindastól tíbráin glitrar.
    Niður tignfríða Blönduhlíð berglindin sitrar.
    Út við eyjar og sund
    sefu8r Ægir sinn blund.
    Yfir öll´ eru ríkjandi blessaðar listdísir virtar.

  3. Ó, þú sólvermda land;
    Ó, þú sagnauðga land;
    Þú ert sólarbros Guðs, á hans albesta degi.
    Þú ert allt, sem er hlýtt,
    sem er fagurt og frítt,
    sem er framsækið, ljósþyrst, á betrunarvegi.
    Þú er máttugt, sem Hólastóll goðborins siðar.
    Yfir Skaga og Fljót,
    yfir fald þinn og fót,
    breiðist friðarblær vorsins, sem skjókróna allaufgaðs viðar.

  4. Hér þarf frjálshuga þjóð.
    Hér þarf framsækna þjóð.
    Hér skal forystumenning frá grundvelli rísa.
    Hér þarf listelska lund,
    Þó að lúin sé mund.
    Hér skal ljóssækin æska á brautina vísa.
    Í ljóselskar sálir skal guðtraustið grafið,
    sem glampandi breiður á sólarþyrst hafið.
    Hér þarf raunsterka sál.
    Hér þarf rammíslenskt mál.
    Þá er ramminn og myndin í samræmdri einingu vafið.

Tryggvi Guttormur Hjörleifsson Kvaran (1892-1940)

Results 1 to 85 of 122