Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1971. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Dagbók í stæðirnni 11,6x18,6 sm. Innbundin og merkt kennimerki Vegagerðarinnar. Í dagbókina eru skráðar veðurlýsingar fyrir hvern dag ársins, með rithönd Þórs.
Titill: Edda Sæmundar hinns fróda = Edda rhythmica seu antiqvior, vulgo Sæmundina dicta. Edda á íslensku og latínu. Skúli Þórðarson Thorlacius ritaði inngang (á latínu) en Gyldal gaf bókina út árið 1787 í Höfn.
Fæðingarsálmar. Á titilsíðu stendur: "Fæðingarsálmar orktir af sál. Gunnlaugi Snorrasyni, fyrrum presti til Helgafells og Bjarnarhafnar safnaða. Kaupmannahöfn 1821. Prentað hjá bókbindara P.E.Rangel." Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Fáein ljóðmæli Þorgeirs Markússonar fyrrum prests að Útskálum frá 1747 til 1753. Þorgeir Markússon 1722-1769 (prestur) höfundur. Sigurður Brynjólfsson Sívertsen 1808-1887 (prestur). Reykjavík : Jón Eyjólfsson, 1906. 64 bls. ; 17 sm. 3. útgáfa.
Bókin er innbundin, alls 181 bls. Á titilsíðu koma fram eftirfarandi upplýsingar: Fasteignabók. Löggilt af Stjórnarráði Íslands samkv. lögum nr. 22, 3. nóv 1915. Öðlast gildi 1. apríl 1922. Reykjavík. Prentsmiðjan Acta. 1921. Bókin er merkt Gísla Björnssyni á Vöglum.
Bókin er götuð og var fest saman með splittum sem hafa verið fjarlægð. Hún er í A4 broti. Í henni er útprentun af nýju og breyttu fasteignamati í Akrahreppi fyrir árið 1973.
Fimmtíu Passíusálmar. Hallgrímur Pétursson. Útgefandi Reykjavík : Prentað í Prentsmiðju Íslands og á kostnað hennar. Bókin er 208 bls. og 13 x 9,6 sm að stærð.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hjaltadals. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Reikningsbók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "framtal 1956" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1956-1960. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Blöð sem á eru skráðar upplýsingar um framtalda inneign 1941-1946. Tvær pappírsarkir í bláum lit, mjög þunnar. Nokkur brot í brúnum blaðana en annars heil.
Framan á bókinni stendur Kvenfélag Holtshrepps og að það sem sé í bókinni hafi verið fært í aðra bók með útskýringum. (Þessi bók var því ekki ljósmynduð). Bókin er í ágætu ásigkomulagi.
Fundargerðabók í stærðinni 33 x 24 cm. Í hana eru ritaðar fundargerðir félagsins frá stofnfundi 1937 til ársins 1954. Alls er skrifað á 16 númeraðar síður. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin fundargerðarbók í stærðinni 18,5 x 24 cm. Hún er merkt sameiginlegum fundum áfengisvarnanefndanna í Skagafirði. Í henni eru 118 númeraðar síður og eru þær allar skrifaðar. Ástand bókarinnar er gott.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.
Kjallímd stílabók. Fundargerðir húsnæðiskönnunarnefndar Sauðárkróksbæjar frá 17.03. og 05.04. Aðeins tvær skrifaðar síður eru í bókinni. Ástand bókarinnar er gott.
Bókin er innbundin í stærðinni 22x 27,4 sm. Hún er 72 tölusettar síður, þar af eru 59 auðar síður. Með liggur bréf frá öldrunarnefnd Skagafjarðar frá árinu 1987.