Bréfið er handskrifað á þrjár línustrikaðar pappírsarkir í A4 broti. Með fylgir umslag og pappírsörk í A5 stærð sem er listi yfir verðlag á Sauðárkróki árið 1924.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Eyþór J. Hallsyni á Hofsósi. Meðfylgjandi er umslag, stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Kápan er farin að losna frá bókinni og hefti orðin ryðguð en blöðin eru í heillegu ástandi.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Inniheldur upplýsingar um verðlag til skattmats. Aftan á blaðinu eru ýmsir útreikningar. Blaðið er mjög upplitað og brúnir farnar að rifna.
12 blaðsíðna bæklingur sem inniheldur skýrslu um Hinn almenna kirkjusjóð 1964 og er gefin út af þáverandi biskupi yfir Íslandi. Meðfylgjandi er umslag frá Biskupsstofu.
Bréfið er handskrifað á rúðustrikaða pappírsörk í stærðinni 22,6 x 18 sm, alls 4 skrifaðar síður. Með liggur um slag sem búið er að klippa frímerkið af.
Skjalið er 6 síður í A4 stærð (þar af forsíða og ein auð síða). Það er gefið út af Búnaðarbankanum og er ljósrit af verðmati á hlutabréfum í Loðskinni hf í júlí 1997.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Hjónavígslubréf útgefið af Christian hinum 10, konungi Íslands og Danmerkur. Gefið út fyrir hjónin Sigvalda Jón Nikódemusson og Önnu Friðriksdóttur. Undirritað á Akureyri 27. september 1928 af sóknarpresti.
Bókin er innbundin og er 98 bls. Hún er gegnumdregin og með innsigli póststjórnarinnar í Reykjavík. Í hana eru rituð ábyrgðarbréf, peningasendingar og bögglar sem skilað var til flutnings á Póstafgreiðsluna í Haganesvík.