Showing 887 results

Archival descriptions
Bréf
Print preview Hierarchy View:

3 results with digital objects Show results with digital objects

Símskeyti

Símskeytin eru handskrifuð á þar til gerð eyðublöð.
Tvö skeyti, annað ein síða en hitt fimm síður.
Ástand skjalanna er gott.

Steingrímur Benediktsson (1901-1971)

Erindi og mál 1929

Bréf, fréttabréf, skeyti, fyrirmæli Í.S.Í um íslenzka grímu, fundardagskrá, íþróttanámskeið, vegna hátíðar á Þingvöllum 1930, styrkbeiðnir, Æskumenn Íslands og fleira.

Bréf frá óþekktum

Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.

Indíana Sigmundsdóttir: Skjalasafn

  • IS HSk N00069
  • Fonds
  • 1930-1995

Sendibréf, kort og kveðskapur. Úr fórum Indíönu Sigmundsdóttur.

Indíana Sigmundsdóttir (1909-1995)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur efni sem Pétur ritaði fyrir Skagfirskar æviskrá og bréf frá Eiríki Kristinssyni.
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Erindi og mál 1930

M.a bréf frá U.M.S.S til Tindastóls, bréf frá Í.S.Í, fundargerðir, símskeyti, úrsagnir úr félaginu, skjöl vegna Bifrastar, listi yfir kaupendur Skinnfaxa, frumvarp til laga Skógræktarfélag Íslands, Sambands-skuldinding Ungmennafélaga Íslands, Sambandsþing UMFÍ, Ársskýrsla ÍSÍ 1929-1930, Aðalfundur ÍSÍ

Bréf

Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.

Erindi og mál 1932

Bréf frá U.M.F.S og U.M.F.Í, símskeyti, ársreikningur og aðalreikningur Í.S.Í,
Ýmsar skrár frá Í.S.Í með metaskrám, löggiltum íþróttabúningum og fleira.
Skjöl vegna afmælisfagnaðar, Aðalfundargjörð sambands ungmennafélaga Skagafjarðar og fleira.

Margeir Jónsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00129
  • Fonds
  • 1933

Eitt handskrifað bréf frá Margeiri til Háttvirts prófessors Ólafs Lárussonar árið 1933.

Margeir Jónsson (1889-1943)

Halldór Benediktsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00419
  • Fonds
  • 1933-1978

Gögn varðandi Varmahlíðarfélagið, Lestrarfélag Seyluhrepps og Barnaskóla Seyluhrepps. Einnig fáein einkaskjöl úr fórum Halldórs.

Halldór Benediktsson (1908-1991)

Fundargerðabók 1934-1963

Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.

Barnakennarafélag Skagafjarðar

Bréf varðandi eignarlönd Steinunnar og Jónasar

Bréf er varða eignarlönd Steinunnar og Jónasar, Hátún og Miklagarð. Ýmis bréf sem fara á milli eiganda og dóms- og kirkjumálaráðuneytis, kjörinna fulltrúa, Sýslumanns Skagafjarðarsýslu og annarra er málið snertir. Deilt var um engjaskipti sem framkvæmd voru á milli jarðanna Hátúns, Miklagarðs, Glaumbæjar og Jaðars.
Sum bréfin hafa tvístrast og eru því einungis annað hvort bara fyrri hluti bréfs eða seinni hluti.
Einnig er talsvert af uppköstum að bréfum.

Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)

Bréf til kennara frá Fræðslumálastjóra

4 bréf, pöntunarbréf fyrir landabréf fyrir skóla. Námskrá sem gefin var út árið 1929 fylgibréf þar sem kennarar eru beðnir um að svara spurningum til að vinna fyrri skólanámskrá upp. Bréf varðandi landabréfa. Bréf frá Pétri Guðmundssyni en þar segir hann hvernig vinna megi með landakortið Afríku.

Bjarni Haraldsson (1930-2022)

Karlotta Jóhannsdóttir: Skjalasafn

  • IS HSk N00324
  • Fonds
  • 1937

Gögn sem varða ráðningu Karlottu Jóhannsdóttur sem kennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Um er að ræða bréf varðandi námsárangur hennar og frammistöðu við tvo handavinnuskóla í Damörku og einni vinnustofu. Einnig fylgir
umsögn Kristínar Símonardóttur á Kolkuósi um störf Karlottu og hæfileika sem sent var til Þórarins Jónssonar á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu en hann var skólaráðsformaður við Húsmæðraskólann á Blönduósi og tók við umsóknum varðandi ráðningu í kennslustöður við skólann.

Sigurjóna Karlotta Jóhannsdóttir (1909-2004)

Kristinn Gísli Konráðsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00119
  • Fonds
  • 1937-1981

Einkaskjalasafn Gísla Konráðssonar. Allt frá heimilisbókhaldi til einkabréfa.

Kristinn Gísli Konráðsson (1892-1982)

Stefán Vagnsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00402
  • Fonds
  • 1937-1968

Gögn úr fórum Stefáns Vagnssonar, flest bréf.

Stefán Vagnsson (1889-1963)

Results 341 to 425 of 887