Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 987 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Text
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

987 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Skjal 3, framhlið

Sögumaður eggjar lesandann til að veita umhverfi sínu athygli og skilja sig með fræðslu frá skepnunum. Því næst hefst umfjöllun um sólina og reikistjörnur sólkerfisins.

Hjarandi 1898

Talið er að Gísli Halldórsson er bjó um tíma á Hjaltastöðum hafi ritað þetta sveitablað rétt fyrir aldamót. Ýmis efni, t.d. kveðskapur, þýddar sögur og pistlar og söguþættir. Hér hefur þriðji og fjórði árgangur varðveist.

Fundagerðabók

Fundargerðarbók Kvenfélagsins Framtíðarinnar. Bókin er í þokkalega ástandi. Nokkrar blaðsíður eru lausar og nokkrar hafa verið límdar með límbandi.

Kvenfélagið Framtíðin (1939-)

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 1

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 07.11.1903. Reyndar stendur 1902 en það passar ekki inn í röðunina. Í ritnefnd voru: Björn Jónsson, Sölvi Guðmundsson, Jón Þ. Björnsson.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 2

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 21.11.1903. Í ritnefnd voru: Björn Jónsson, Sölvi Guðmundsson, Jón Þ. Björnsson.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 6

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, 23.01.1904. Í ritnefnd voru: B. Sölvason, Kristinn B. Erlendsson, Sigurður Lárusson.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 7

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Hólakoti, 23.01.1904. Í ritnefnd voru: Sigurjón Jónasson, Teodór Friðriksson, Björn Guðmundsson.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 11

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Steini, 02.04.1904. Í ritnefnd voru: Einar Gíslason, Björn Guðmundsson, Halldór Jónsson.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 12

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Steini, 16.04.1904. Í ritnefnd voru: Einar Gíslason, Björn H. Guðmundsson, Halldór E. Jónsson.

Fjallfari 6. árgangur, blað nr. 1

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 04.11.1905. Í ritnefnd voru: Björg Björnsdóttir, Sigurður Björnsson, Björn Jónsson.

Fjallfari 5. árgangur, blað nr. 2

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, nóvember 1904. Í ritnefnd voru: B. Sölvason, Kristinn Erlendsson, Sigurður Lárusson.

Fjallfari 6. árgangur, blað nr. 5

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, 27.01.1906. Í ritnefnd voru: Björn Guðmundsson, B. Sölvason, Sigurður Lárusson.

Sveitablaðið Stígandi 1890-1891

Sveitablaðið Stígandi sem "nokkrir Hólamenn" gáfu út 1890-1891. Sveitablöðin voru handskrifuð rit sem gengu manna á millum. Fyrsta blað Stíganda er dagsett 20. desember 1890. Á fyrstu síðu er "Ávarp til Hólahreppsmanna". Þar segir:
"Það er orðið svo almennt viðurkennt að eigi þarf að taka það hér fram, hve mikla þýðingu það hefur fyrir andlegt líf mann að sem greiðastur vegur sé á samræur meðal þeirra. En sökum þess hve erfitt er að sækja málfundi, þá hafa bækur, þjóðblöð, sveitablöð og fl. þvl. verið skráð, til að bæta úr þeim erfiðleikum, sem málfundir hafa í för með sér.
Vér Hjaltdælir höfum eigi fengið orð fyrir að vera forkálfar í framfara málum, né neinu því er að félagsskap hefir lotið. En allt fyrir það, þótt mörgum hafi verið eiginlegt að bauka sem mest fyrir sig, þá mönnuðum vér oss þó svo upp í fyrra haust að koma á fót mánaðarsamkomum í Lestrarfélagi voru og að halda úti blaðinu "Hjalta" sem var lesið upp á fundum félagsins. Á aðalfundi lestrarfélagsins á síðastliðnu voru var ákveðið að halda áfram samskonar fundafélagi á næsta vetri og blaðið Hjalti héldi áfram tilveru sinni. Voru því á nefndum fundi, kosnir þrír menn í ritstjórn blaðsins og boðað til fundar fyrsta sunnudag í vetri, og skyldi þá lesið upp blað félagsins. Þó að allt þetta væri samþykkt með nær því öllum atkvæðum, þá lagðist það þegar á fundinum í grun einstakra, að fundar- og blaðfélagi Hjaltdælinga væri stungið það svefnþorn er eigi mundi úr hrökkva á næsta hausti. Ástæðan til þessa var sú, að á fundinum kom það í ljós, að enginn vildi án endurgjalds bera einn þann átroðning er fundirnir hlytu að hafa í för með sér. Fundurinn áleit, að lakara væri að skipta um fundarstaði yfir veturinn og var því samþykkt að verja 10 kr. af fé félagsins til fundarhaldskosnaðar yfir allt árið.
Svo kom sumardagurinn fyrsti í vetri, en enginn kom á fund og ekkert blað kom út og til þessa dags, hefir eigi bólað á neinum framkvæmdum í þessa stefnu.
Til þess nú, að reyna að gjöra hreppsbúum hægara með að talast við á þessum vetri þá höfum vér nokkrir Hólamenn, ásett oss, að halda úti mánaðarblaði fyrir sveit vora. Nafn blaðsins er "Stígandi" og er stefna þess, að fræða, skemmta og benda til þess er betur má fara. Eigi mun Stígandi verða myrkur í máli, en forðast vill hann persónuleg meiðyrði. Vér útgefendur svörum til laga ábyrgðar á nafnlausum ritgjörðum og gefum oss útgefendum kost, að sem flestir af hreppsbúum vildu taka til máls og senda ritgjörðir í Stíganda. Ef þeir vilja halda nafni sínu leyndu, þá geta þeir snúið sér til hvers af kennurum og skólapiltum á Hólum er þeir vilja eða bezt trúa, og verður þá séð um , að ritgjörðin komist til ritstjórnar er ræður úrslitum, hvort hún skuli takast í blaðið eður eigi.
Vér útgefendur treystum því, að hreppsbúar greiði sem bezt fyrir göngu Stiganda og biðjum þá svo vel gjöra og rita á hvert blað komu og farardag hans frá hverju heimili. Ef einhversstaðar er tafið fyrir göngu blaðsins án nauðsynja og að óþörfu, þá hættir það göngu sinni til þeirra bæja.
En ef svo skyldi vera að einhverjir vilja eigi fá blaðið til aflestrar gegn því að flytja það til þess heimilis, sem ákveðið er í boðleið Stíganda, þá eru þeir hinir sömu beðnir að skýra frá því í fyrsta atölublaði hans.
Vér óskum sveitungum vorum góðs vetrar og að Stígandi geti lagt lítinn skerf til þess að agjöra oss gagn og skemmtun á þessum yfirstandandi vetri."

Blað 4

Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Baldvin Bergvinsson. Virðist vera ein rithönd, líklega ritstjórans.

Blað 2

Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Gísli Björnsson. Ýmsir greinarhöfundar.

Blað 4

Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Gísli Björnsson. Ýmsir greinarhöfundar.

Blað 1

Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út.
Ritstjóri: Jón Eiríksson.
Meðritstjórar: Séra Lárus Arnórsson og Agnar Baldvinsson.
Inniheldur ljóð, hugleiðingar og aðsent bréf.

Máni 1922-1923

Sveitablaðið Máni, blað Málfundarfélagsins Vonar í Stíflu, Fljótum. Útgefendur (ritnefnd): Arnór Björnsson, Guðmundur Sigurðsson, Jóhann Guðmundsson.

Málfundafélagið Von í Stíflu

Máni 1931-1933

Sveitablaðið Máni, blað Málfundarfélagsins Vonar í Stíflu, Fljótum. Ritnefnd: Jón Gunnlaugsson. Páll Sigurðsson og Hannes Hannesson. 1. tbl., 11. árg. til 8. tbl., 11. árg.

18.09.1846

Úttekt hreppsstjóra í Holtshreppi á eignum Sigríðar Jónasdóttur Molastöðum (skrifað Mólastaðir) 18.09.1846.

26.06.1849

Uppskrift og virðing hreppstjórans í Holtshreppi á búi Hólmfríðar Þorgeirsdóttur húsfreyju á Hamri, þann 26.06.1849.

15.04.1851

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi þann 15.04.1851 á búi Gottskálks Erlendssonar á Hálsi í Flókadal.

02.05.1855

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eignum Jóns Guðmundssonar á Deplum.

14.04-15.04 1856

Uppskriftir og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eignum Guðmundar Jónssonar á Melbreið og seinni virðingin á eignum Sólveigar Sveinsdóttur á Móskógum.

26.04.1856

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eigum Guðmundar Tómassonar á Laugalandi.

23.06.1856

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á dánarbúi Þorfinns Finnssonar á Efra-Haganesi.

13.05.1859

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eigum Björns Jónssonar (tilg. á Barði).

10.05.1860

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eigum Jóns Þorfinnsson á Berghyl.

18.09.1866

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eigum Kristrúnar Gísladóttur í Haganesi.

Niðurstöður 511 to 595 of 987