Print preview Close

Showing 735 results

Archival descriptions
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Börn
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

714 results with digital objects Show results with digital objects

Mynd 9

Dætur Eiríks Björnssonar og Sigríðar Margrétar Reginbaldsdóttur á Gili, Hildur Þorbjörg (1920-2007) og Erla Sigurbjörg (1926-).
Maðurinn sem sést á gangi í baksýn er óþekktur.

Eyþór Stefánsson (1901-1999)

Mynd 24

Tvær óþekktar konur með barn.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta er mynd af konu Jósefs bróður míns, dreng þeirra og mér, tekin á flötinni framan við húsið okkar. Það sést á fram gluggana neðanverða. Þetta er tekið í sumar meðan ég var heima."

Mynd 32

Á myndinni er Steinunn Jónsdóttir frá Syðstu-Grund ásamt hluta af fjölskyldu sinni í Vesturheimi.
Aftan á myndina er skrifað:
"Til vinstri í efri röð. Jóna yngsta dóttir mín, Svan Ingi fóstursonur minn. Ég sjálf. Steinunna Jónsdóttir. Anna næst yngsta dóttir mín. Tvíbura dætur hennar Svanna Steinunn og ...." (meira sést ekki af textanum þar sem límmiði hefur verið límdur ofan á textann).

KCM2773

Ónafngreind ungmenni leika á hljóðfæri.
E.t.v. tónleikar hjá Tónlistarskólanum á Sauðárkróki í Bifröst, sbr. myndir nr 137, 144 og 195 í þessu safni.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Mynd 30

Gottskálk Egilsson í Hjaltastaðakoti, seinna þekktur sem Gotti á Miðgrund. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 32

Sigurður og Lilja, börn Kristínar og Jóns á Syðri-Húsabakka. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 39

Guðlaug Egilsdóttir, síðar húsfreyja á Álfgeirsvöllum. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 51

Tveir óþekktir karlmenn á gangi í fjöru. Sá fremri leiðir barn.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 60

Anna Kristín Jónsdóttir, áður húsfreyja á Völlum með dótturdóttur sína Kristínu Bjarnadóttur, síðar húsfreyju í Ásgeirsbrekku. Myndin tekin á Uppsölum, líklega 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 23

Börn Sigríðar og Björns á Stóru-Ökrum í apríl 1927. F.v. Gunnfríður Ingibjörg og Ingunn. Herdís í miðjunni.

Egill Jónasson (1901-1932)

Mynd 4

Heimilisfólkið á Uppsölum í Blönduhlíð 1928. F.v. Tobías Jóhannesson frá Hellu, vinnupiltur, Sigurlaug Jónasdóttir, húsfreyja með Egil Bjarnason á fyrsta ári, Bjarni Halldórsson bóndi, Sesselja Ólafsdóttir, Helga Sölvadóttir með Jónas Bjarnason, Halldór Bjarnason, Kristín Bjarnadóttir, Anna Kristín Jónsdóttir. (Betri mynd í Byggðasögu Skagafjarðar IV. bindi, bls. 387).

Egill Jónasson (1901-1932)

KCM1507

Fólkið á myndinni er ónafngreint nema stílkan t.h. í kjöltu konunnar er Hólmfríður Rögnvaldsdóttir og lengst t.h. er Sara Siguðardóttir (ca.1955).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1465

Helga Pálsdóttir heldur á Páli Biering. Tilg. dóttir hennar t.v. og Hólmfríður Rögnvaldsdóttir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1731

Börnin á myndinni eru óþekkt. Á bak við börnin er Græna húsið við Sævarstíg (sem nú er horfið).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Hcab 1974

Sigrún Pétursdóttir húsfreyja á Sauðárkróki (t.h.) og Hanna Pétursdóttir húsfreyja á Sauðárkróki (t.v.). Gefandi: Úr dánarbúi Indriða G. Þorsteinssonar rithöfundar. 12.07.2001.

Mynd 2

Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x7,8 sm. Á henni eru strákur og hundur. í bakgrunni eru tjaldbúðir sem líklega tengjast vegavinnu.

Jens Þorkell Halldórsson (1922-1992)

Mynd 29

Svarthvít mynd í stærðinni 14,7 x 10,2 sm, límd á bréfspjald (kabinent).
Á myndinni eru Albert Björnsson og Hólmfríður Margrét Guðjónsdóttir, ásamt börnum sínum. Aftari röð frá vinstri: Hólmfríður, Jóhanna Guðbjörg, Albert og Sveinbjörn. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Margrét, Indíana og Auðbjörg Sigríður.

Björn Jóhann Jóhannesson (1905-1970)

Mynd 35

Brúntóna mynd visit kort.
Á myndinni er kona í peysufötum ásamt tveimur börnum. Þau eru óþekkt.

Björn Jóhann Jóhannesson (1905-1970)

KCM2678

Gamall maður með flösku liggur í rúminu og drengur stendur við höfðagafflinn. Báðir ónafngreindir.
Myndin er yfirlýst og því óskýr.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

Results 511 to 595 of 735