Tekið á Hólum áður en lagt var af stað til Sauðárkróks veturinn 1921- frá vinstri: Gunnar Valdimarsson á Víðimel- Ásmundur Eiríksson frá Reykjarhóli í Fljótum- Páll Jónsson frá Brekkukoti og Óli Hjartarson frá Ási í Kelduhverfi. Gefandi: Gunnar Valdimarsson á Víðimel 17.07.1978. Klæða sig í bestu brók bæði Páll og hinir sigla nú á Sauðárkrók sannir kvennavinir. Benjamín Sigvadason
Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Hólabardagi 1209. Að tilstuðlan Haukdælingsins Þorvaldar Gissurarsonar í Hruna slóust sunnlenskir og borgfirskir bændur í lið með Arnóri Tumasyni að hefna Kolbeins Tumasonar og tóku upp erindi hans frá Víðinesi. Með þeim voru þeir bræður Sighvatur og Snorri Sturlusynir. Slí í brýnu á Hólum, en biskup var liðfár og gerði Arnór honum þá kosti að létta af þeim bannfæringunni og bauð á móti grip fyrir sakamenn þá sem biskup hélt hlífiskildi yfir. Neitaði biskup þar til Snorri bauð honum með sér í Reykholt og reið með hann brott af Hólastað, en sakamenn þeir sem Kolbeinn hafði sektað voru dregnir úr kirkju og höggnir." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 18).
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geimundarstöðum- og dóttir hennar- Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar- Litlu-Gröf Skag.
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geirmundarstöðum- og dóttir hennar Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar Litlu-Gröf Skag.
Börn Hermanns Jónassonar skólastjóra á Hólum í Hjaltadal og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Hallgrímur Hermannsson (1892-), flutti til Vesturheims og Sigríður Hermannsdóttir (1889-1921), búsett í Reykjavík.
Ljósmynd í stærðinni 8,8x12,5 cm. Á myndinni sést Pálmi Jónsson á Akri, þáverandi landbúnaðarráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að laxeldisstöð á Hólum í Hjaltadal á ýtu Garðars Guðjónssonar.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, undirritað af Guðmundi Jónssyni fh framkvæmdanefndar um styttu af Guðmundi biskup góða á Hólum í Hjaltadal.
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).