Tekið á Hólum áður en lagt var af stað til Sauðárkróks veturinn 1921- frá vinstri: Gunnar Valdimarsson á Víðimel- Ásmundur Eiríksson frá Reykjarhóli í Fljótum- Páll Jónsson frá Brekkukoti og Óli Hjartarson frá Ási í Kelduhverfi. Gefandi: Gunnar Valdimarsson á Víðimel 17.07.1978. Klæða sig í bestu brók bæði Páll og hinir sigla nú á Sauðárkrók sannir kvennavinir. Benjamín Sigvadason
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geimundarstöðum- og dóttir hennar- Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar- Litlu-Gröf Skag.
Þorbjörg Árnadóttir (1855-1932)- kona Sigfúsar Vigfússonar á Geirmundarstöðum- og dóttir hennar Sigríður Benediktsdóttir (1886-1948) frá Hólum í Hjaltadal- kona Arngríms Sigurðarssonar Litlu-Gröf Skag.
Börn Hermanns Jónassonar skólastjóra á Hólum í Hjaltadal og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur. Hallgrímur Hermannsson (1892-), flutti til Vesturheims og Sigríður Hermannsdóttir (1889-1921), búsett í Reykjavík.
Ljósmynd í stærðinni 8,8x12,5 cm. Á myndinni sést Pálmi Jónsson á Akri, þáverandi landbúnaðarráðherra, taka fyrstu skóflustunguna að laxeldisstöð á Hólum í Hjaltadal á ýtu Garðars Guðjónssonar.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð, undirritað af Guðmundi Jónssyni fh framkvæmdanefndar um styttu af Guðmundi biskup góða á Hólum í Hjaltadal.
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kvaðningu sýslumanns til að vera viðstaddur matsgjörðir vegna afhedingar leigutaka á skólajörð og búi á Hólum. Með liggur ljósrit af samkoulagi milli Stjórnarráðs og Sigurðar Sigurðssonar um afhendingu á jörð og búi á Hólum. Einnig ljósrit af bráðabirgðasamningi milli Stjórnarráðsins og Páls Zophoníassonar. Jafnframt ljósrit af skipun matsmanna fyrir hönd sýslumanns. Enn fremur 15 seðlar þar sem taldir eru upp munir sem fylgja eigninni. Ástand skjalanna er gott.