Varðar tillögu um kynningu á Sigrid Undset og skáldverkinu Kristín Lafranzdóttur. Norska húsmæðrasambandið lét búa þessa kynningu í hendur félagskvenna í Norræna húsmæðrasambandinu.
Smárit sem inniheldur reglur um lyf. Á titilsíðu stendur: "Reglur um lyfjagreiðslur sjúkrasamlaga. Útgefandi: Tryggingastofnun ríkisins. Reykjavík 1945:."
Bókin er 52 síður í A5 broti, auk kápu. Hún inniheldur 52 ljósmyndir af húsum, auk grunnteikninga. Texti grunnteikninganna er á ensku. Bókin er gefin út í Reykjavík af Haraldi Jónssyni byggingameistara.
Bókin er innbundin í stærðinni 17x21,4 sm. Hún er 300 tölusettar bls og þar af er ein auð síða. Með liggur uppkast að vélrituðu bréfi til Rögnvaldar Jónssonar á Tyrfingsstöðum sem var laust inni í bókinni.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Blaðið er í stærðinni A4. Það er fjölritað, heftað og kjallímt. Það telur 14 bls., auk kápu. Í þessu tölublaði er rakin saga félagsins, fréttir af starfsemi þess og ýmsar aðrar fréttir viðkomandi félagssvæðinu.
Skýrslan er fjölrituð í A4 broti og er 82 bls auk fjölda fylgiblaða. Á kápu stendur: Virkjun Blöndu I. Frumáætlun um 135 mw virkjun. Skýrsla samin fyrir Orkustofnun OS-ROD-75.21. Reykjavík, maí 11975.
Ljósmyndin er í heillegu ástandi en nokkuð skemmd af óhreinindum. Á myndinni er stór hópur af spariklæddu fólki. Fólk og staðsetning óþekkt, sem og tilefnið.
Skjalið er handskrifað með blýanti á eina örk í stærðinni 33,7x21 cm. Blaðið virðist rifið úr bók og er nokkuð af brotum og rifum í því. Fundargerðin er undirrituð en hefur ef til vill verið hreinrituð síðar. Um frumrit er að ræða.
Skjalið er reikningur frá Samvinnufélagi Fljótamanna í Haganesvík, stílaður á Hafnargerðina í Haganesvík og á hann er vélritaður vaxtakostnaðaur vegna vöruúttekta á árinu 1964.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.