Þórólfur Pétursson (f. 1942) skrifar afa sínum. Þórólfur er bóndi á Hjaltastöðum í Akrahreppi. Kona: Anna Jóhannesdóttir (f. 1956). Systir Þórólfs, Bryndís Pétursdóttir (f. 1947) er meðskrifandi að jólakorti sem er innan safnsins.
Margrét Hjaltadóttir (f. 1950) skrifar afa sínum. Maður hennar: Þórir Jón Ásmundsson (f. 1947). Þau bjuggu um skeið á Hjalla í Akrahreppi en fluttu svo suður. Margrét er kölluð Gréta.
Leifur Sigurðsson (1921-2006) skrifar föður sínum þrjú bréf. Eitt bréfið er til Margrétar Þorsteinsdóttur (1889-1989), móður Leifs. Leifur var rennismiður. Kona: Friðrika Elíasdóttir (1913-2004).
Ragnheiður Þórarinsdóttir (1919-2003) skrifar tengdaföður sínum. Hún var búsett á Hjaltastöðum í Akrahreppi ásamt manni sínum, Pétri Sigurðssyni (1919-2012), syni Sigurðar.
Magnús Helgi Helgason (1896-1979) (skrifar undir Magnús Helgason) skrifar Sigurði. Magnús var bóndi í Kolgröf á Efribyggð og í Héraðsdal í Tungusveit, síðast búsettur á Sauðárkróki. Kona: Jónína María Ingibjörg Guðmundsdóttir (1893-1988).
Finnbogi Bjarnason, Brekkugötu 29, Akureyri skrifar Sigurði. Mjög líklega er um að ræða Skúla Finnboga Bjarnason (1895-1986), verslunarstjóra á Akureyri (áður bóndi í Skagafirðinum). Kona hans var Sigrún Eiríksdóttir (1897-1991).
Stefán Vagnsson (1889-1963) skrifar Sigurði. Stefán var kennari og bóndi á Hjaltastöðum, Flugumýri og Sólheimum í Akrahreppi. Hann var síðast búsettur á Sauðárkróki og starfaði þar sem skrifstofumaður. Kona: Helga Jónsdóttir (1895-1988).
Magnús H. Gíslason (1918-2013) skrifar Sigurði. Magnús var bóndi á Frostastöðum í Akrahreppi og síðar blaðamaður í Reykjavík, síðast búsettur á Frostastöðum. Var varaþingmaður og sat um tíma á þingi. Kona: Jóhanna Guðný Þórarinsdóttir (f. 1921).
Páll Zóphóníasson (1886-1964) skrifar Sigurði. Páll var kennari á Hvanneyri. Skólastjóri, búnaðarmálastjóri í Reykjavík og alþingismaður. Bjó m.a. á Ránargötu 6 a í Reykjavík. Kona: Guðrún Þuríður Hannesdóttir (1881-1963).
Að mestu viðskipti við Kaupfélag Skagfirðinga. Einnig reikningur Mjólkursamlags Skagfirðinga 1950 (5 blaðsíður) og lán frá Ræktunarsjóði Íslands. Einnig skattreikningar.
Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
Ljóð, 6 erindi sem hefur titilinn "Hjéraðsvötn hin eystri búruð í apríl 1896". Á ljósritinu stendur að þetta sé úr bréfasafni Friðriks Hansen og óvíst sé um höfund".
Ljóð eftir Erlend Hansen, Friðrik Hansen og Sigurð Jónsson (Arnarvatni) við lög. Nótnablöð með ljóðum. Af sumu eru tvö eintök. 1 blaðaúrklippa um tildrög lagsins "Blindi drengurinn" en lagið var eftir Pétur Sigurðsson og ljóðið var eftir Friðrik Hansen.
Æviágrip Bjargar Jóhannesdóttur Hansen frá Sauðá sem hún virðist hafa ritað að mestu sjálf. Með fylgja eftirmál eftir barnabarn hennar, Björgvin Brynjólfsson frá Skagaströnd.