Teikning af hópi fólks ásamt hestum fyrir utan torfbæ og kirkju. Á hlaðinu liggur lífvana manneskja og tveir menn bera aðra. Á blaðinu sem myndin var límd á stóð: „Á Víðimýri. Hungur. Mynd No 11. + 2 ótölusettar myndir. Frá „Heima er best“ Kafli 8. Hungur“. Myndin var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 94-95. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.
Fundargjörðarbókin er innbundin og handskrifuð, hún er í A3 stærð og í góðu ástandi og vel læsileg. Í bókinni eru lög félagsins og hverjir stofnfélagar þess voru: Nokkrar blaðsíður vantar í bókina, líklega hefur þeim verið klippt út (sjá einnig í notes).
Haust 1953. Ferð í Skagafjörð til að skoða og kaupa hross. Gunnar Bjarnason og Stefán Jónsson voru með. Framhaldsdeildin. Páll Sigurðsson, Fornahvammi keyrði. Verið að koma hesti bílinn.
Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli. Segir m.a. bernsku sinni á Sjávarborg. Markús segir frá því er hann var sendur með mat handa strokufanganum Jóni Pálma, sem var á flótta vegna seðlafölsunarmálsins. Einnig segir hann frá því þegar fangi sem var í haldi vegna annars peningafölsunarmáls slapp frá Reykjavík og komst til Skagafjarðar. Jafnframt er spjallað um starfsævi Markúsar sem var sjómaður, verkamaður og bóndi og stundaði einnig ýmis konar handverk. Loks segir hann frá dulrænu atviki þegar hann var á Víðimýri og fyrirboðum í draumi.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist ágætlega. Í bókinni eru skráðar fundagerðir, greinagerðir og félagatal. Einnig eru skráð formleg erindi og bréf sem sent hafa verið. Í bókina vantar fyrstu fundagerðir félagsins, eins og segir í athugasemd sem gerð var: "Hér hefir mjög illa til tekist. Einhver (handhafi gjörðabókar?) hefir orðið til þess óhappaverks að klippa nokkur fyrstu blöðin úr gjörðabókinni og sennilega glatað þeim. Besta heimild um sögu félagsins fyrstu 2 ár þess eru þar með glötuð".
Innbundin og handskrifuð bók með dagbókarfærslum og fundagerðum dýraverndurnarfélagsins, hún er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Færslur eru aðeins í hluta bókarinnar.
Í dagbók Dýraverndunarfélag Skagafjarðar voru ýmis pappírsgögn. Meðal annars var úrklippt, prentuð forsíða úr dönsku tímariti, dags. ágúst-sept, 1930. Handskrifuð dýraverndunarlög frá 1915, á línustrikað A3 blað. Fjölfaldað skjal með tilkynningu um friðun fugla frá Dýraverndunarfélagi Skagafjarðar, dags.21.5.1951. Öll gögnin hafa varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Fylgigögn bókhalds. Efnahagsreikningu f. árið 1941-1942 í A3 broti. Bókhaldskvittanir og reiknivélastrimlar, raðað eftir ártali. Þessi gögn fundust í reikngsbókinni.
Innbundin og handskrifuð bók sem heldur utan um fundagerðir, félagatal, lög og reikinga félagsins frá 1908-1933. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist ágætlega.
Pappírsgögn, handskrifað á línu- og rúðustrikaðan pappír, einnig vélrituð gögn, forprentuð skjöl og nótur. Bókalistar, nafnalistar og félagatal, bókhaldsgögn, formleg og óformleg erindi úr eigu lestrarfélagsins. Gögn í ágætu ástandi sem eru röðuð í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum. Bréfaklemmur og hefti voru orðin ryðguð og greinileg för sjást eftir þau.
Vel varðveitt forprentuð bókasafnsspjöld og lánsskírteini. handskrifaðar upplýsingar um höfund og bókarheiti og nöfn lántakenda eru á spjöldunum, þau eru með dagsetningum en óvíst er um ártöl. Lánsskírteinin eru ónotuð.
Handskrifað skjal með fundargerð vegna dráttarvélakaupa og reglugerð um um notkun hennar. Að kaupunun stóðu búnaðarfélögin í Hofshreppi, Óslandshlíð og Hólahreppi að kaupunum. Skjalið er vel varðveitt en það hefur rifnað og er viðkvæmt viðkomu.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins, lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, blaðsíðurnar eru viðkvæmar, þar sem sum blöðin hafa fest saman. Kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru fundagerðir, rekstrarreikningar félagins og lög, jarðótaskýrslur og félagaskrá. Bókin hefur varðveist mjög vel, kjölur bókarinnar er heill en límborði er yfir honum. Í bókinni er útprentað fundarboð og dagskrá aðalfundar þann 10.apríl líklega 1995.
Harðspjalda bók með handskrifuðum fundagerðum og bókhaldsfærslum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist ágætlega en límborði heldur kjölnum, en bindingin er ónýt. Blöðin eru blá og eru fremstu blöðin farin að losna frá.
Handskrifuð, vélrituð og ljósrituð pappírsgögn, m.a. formlegt erindi til hreppstjórnar Seyluhrepps, samningur um húsnæði, lög foreldrafélagsins. Gögnin eru öll vel varðveitt.
Tekið á móti norrænum konum að Löngumýri sumarið 1951. Frá vinstri: Karlotta á Hólum, Minna Bang, Sauðárkróki, Sigrún Pálmadóttir, Reynistað, Ingibjörg Jóhannsdóttir á Löngumýri, Amalía á Víðimel, Ingibjörg á Úlfsstöðum, Helga á Víðivöllum, Ólöf í Krossanesi, Björg á Löngumýri og Lilja Sigurðardóttir, Víðivöllum.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Innbundin og handskrifaðar fundargerðir. Í bóknni eru þrjú laus blöð, handskrifuð með fundargerð sem er dagsett 16.04.1990. Á fyrstu tveimur síðum bókarinnar er samningur sem Ungmennafélagið Æskan og Ungmennafélagið Fram gera með sér um eignarhlut í félagsheimilisbyggingunni í Varmahlíð, dags.14.4.1967.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók þar sem haldið er utan um félagatal U.M.F.T. og mætingar á fundi félagsins tímabilið 1925-1937, einnig er yfirlit yfir heiðursfélaga. Bókin hefur varðveist ágætlega.
Innbundin og handskrifuð fundagerðabók með línustrikuðum blaðsíðum, vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Þó eru hefti inni í bókinni farin að ryðga og blaðsíður byrja að losna úr bindingunni. Fundagerðir félagsins ná yfir tæplegan helming af bókinni.
Innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum með handskrifuðum fundargerðum. Bókin er læsileg og varðveist sæmilega. Bókakjölurinn og kápan hafa verið límd sama með límbandi. Límborði er á kjöl bókarinnar og bindingin er orðin léleg.
Flugumýrarbrenna. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Flugumýrarbrenna 1253. Gissur Þorvaldsson höfðingi af ætt Haukdæla var í bandalagi við Ásbirninga og hafi flust til Skagafjarðar og keypt Flugumýri. Þar var nýafstaðin veisla þar sem Ingibjörg Sturludóttir (Þórðarsonar sagnaritara) 13 ára var gift Halli, 16 ára syni Gissurar. Lögðu óvinir Gissurar eld að bænum er heimamenn áttu síst von á og brunnu margir þar inni. Hallur var dreginn helsærður til kirkju og Árni beiskur fóstri Halls var veginn" (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 36).
Víðinesbardagi. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Víðinesbardagi í Hjaltadal 1208. Biskup sat á hesti og með honum ábótar og nokkrir prestar og kallaði að eigi skyldi berjast. Að því gáfu engir gaum. Sannaðist í þessum atburði að ekki verður ófeigum í hel komið eða feigum forðað. Í bardaganum fékk Kolbeinn stein í höfuðið og féll í öngvit og missti mál og mátt." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 16).
Fundargerðir Skagfirðingafélagsins í Reykjavík frá upphafi, 6. desember 1936, til ársins 1960. Markmið félagsins í upphafi var að vinna að því að setja á stofn mennta- og menningarsetur við Reykjarhól í Seyluhreppi (Varmahlíð). Starfssemi félagsins verður fjölbreyttari þegar á líður. Nafn félagsins var fyrst "Varmahlíð" en var strax á 3ja fundi breytt í Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
F.v. Jósafat Felixson (Villi í Húsey) - Þorbergur Jósefsson og Ásbjörn Sveinsson. Guðjón Ingimundarson veitir viðurkenningar. Aftan á mynd stendur Villi - Beggi og Sveinn Inga.