Kvenfélög

Taxonomy

Kóði

Athugsemd(ir) um umfang

Athugasemd(ir) um heimild

Birta athugasemd(ir)

Hierarchical terms

Kvenfélög

Equivalent terms

Kvenfélög

Tengd hugtök

Kvenfélög

156 Lýsing á skjalasafni results for Kvenfélög

Only results directly related

Hljóðsnælda

Viðtöl við Geirmund Valtýsson, Sigurgeir Angantýsson og Helgu Sigurbjörnsdóttur um Danslagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks

Kvenréttindafélag Íslands 40 ára

Bókin er kjallímd með þunnri kápu. Á titilsíðu stendur:
"Kvenréttindafélag Íslands 40 ára. 1907-1947. Minningarit. Reykjavík, útgefandi: Kvenréttindafélag Íslands 1947.

Kvenréttindafélag Íslands

Fundagerðabók

Fundargerðarbók Kvenfélagsins Framtíðarinnar. Bókin er í þokkalega ástandi. Nokkrar blaðsíður eru lausar og nokkrar hafa verið límdar með límbandi.

Kvenfélagið Framtíðin (1939-)

Kvenfélag Staðarhrepps

  • IS HSk E00027
  • Safn
  • 1908 - 2008

Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög vel, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í þremur heftum í A4 stærð, gert 2008.

Kvenfélag Staðarhrepps (1908-)

Gjörðabók

Harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi. Blaðsíður lausar, blettóttar og rifnar en bókin er föst við kjöl sem er með límborða á. Bókin er vel læsileg og gott væri að myndar hana til að varðveita heimildina.

Kvenfélag Skefilsstaðahrepps (1908 - 1983)

Kvenfélagið Freyja: Skjalasafn

  • IS HSk N00087
  • Safn
  • 1943 - 1983

1 handskrifuð fundagerðabók og 1 handskrifuð reikningabók. Einnig lausir reikningar. Með er fundargerð 27. aðalfundar Sambands skagfirskra kvenna 1969.

Kvenfélagið Freyja (1943-

Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps: Skjalasafn

  • IS HSk N00275
  • Safn
  • 1939-1992

Fimm fundargerðarbækur Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps í Skagafirði frá árunum 1939-1992

Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps

Aðalfundir 1947-1975

Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin er 300 blaðsíðna og í hana eru skrifaðar fundagerðir aðalfunda S.S.K. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Fundargerð formannafundar S.S.K 2003

Ljósritað hefti eða pappírsgögn með fundargerð formannafunds S.S.K. árið 2003. Eintakið var bundið í glært spjald og þykkan pappír, heft saman og límborði þar yfir það var fjarlægt. Blöðin rifnuðu hjá skjalaverði þegar efra heftið var fjarlægt, að öðru leyti hafa gögnin varðveist ágætlega og eru vel læsileg.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Félagsheimili í Skagafirði 1980-1990

Tölvuútprentuð pappírsgögn með upplýsingum um eignahlut kvenfélaganna og aðkomu félaganna að félagsheimilum í Skagafirði, s.s. skemmtanir, fundir, ofl. Skjöl eru ódagsett og án ártals og eru frá Félagsheimilinu Ketilási - Fljótum, Félagsheimilinu Höfðaborg - Hofsósi, Félagsheimilinu Árgarði - Lýtingsstaðahreppi, Félagsheimilinu Melsgil - Staðarhreppi, Félagsheimili Rípurhrepps, Félagsheimilinu Skagaseli - Skefilstaðahreppi, Félagsheimilinu Ljósheimum- Skarðshreppi. Skjölin hafa varðveist mjög vel.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Vísur, ljóð og kvæði

Forprentuð, vélrituð og handskrifuð kvæði, ljóð og stökur eftir konur en í safninu er einnig eitt ljóð er eftir Jón Trausta og lítill pappírsbútur með æðruleysisbæninni. Í safninu er kvæði sem var ort árið 1910 og er tileinkað Kvenfélagi Staðarhrepps. kvæðið er eftir Guðrúnu Ólafsdóttur frá Páfastöðum. Kvæðið Draumsýn eftir Áslaugu S. Jensdóttur, Núpi. Þrjú afmælisljóð til S.S.K. eftir Emmu Hansen í tilefni af afmæli sambandsins 1983. Söngur Sambands Norðlenskra Kvenna, eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli. Ljósrit af textum með nokkrum vísum og stökum, neðst á blaðinu stendur: Rúvak í Árgarði 10/2 1984 - Fjöldasöngur. Ljóðabréf til Oddfríðar Skúladóttur eftir Guðrúnu Jónsdóttur, dagsett. Rvk. 14.des 1913. Staka eftir Áslaugu Jensdóttur, á hlið bréfsins er handskrifað með penna Snorri Ingimarsson. Vort land, kvæði eftir Emmu Hansen sem ort var í tilefni 70 ára afmælis S.N.K. 1984 (á tveimur bls.).
Handskrifaðar vísur eftir Diddu. önnur vísan heitir; Til Margrétar á Löngumýri 60 ára. Vísur eftir Hólmfríði Jónasdóttur þar sem hún þakkar stjórn Sambands Skagfirskra Kvenna fyrir boð til handa öldruðum Skagfirðingum 27. júní 1987. Handskrifaðar vísur eftir Kristbjörgu Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku. Önnur vísan er með titlinum Stiklað á stóru (eða gaman og alvara) og var flutt í Miðgarði 24.okt. 1986. Hin vísan eða textinn við laginu "Komdu og skoðaðu í kistuna mína" var vélrituð og ljósrituð og heitir Minningabókin. Textinn er einnig að finna í hefti sem S.S.K. lét gera í tilefni afmælishátíðar sambandsins 1983. í safninu er einnig forprentaður texti með baráttusöng Kvennafrídagsins og kallast Hvers vegna kvennafrí, textinn er eftir Valborgu Bentsdóttur, lag; "Frjálst er í fjallasal".

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1968-1980

Pappírsgögn frá 1968 - 1980, ákveðið var að setja skjöl frá 1968-1979 saman við skjöl frá 1980 þar sem þau voru svo fá.
Eitt handskrifað bréf frá 1968 sem er stílað á Dómhildi frá Jónínu Stefánsdóttur.
Í safninu er veifa með mynd af Halldóru Bjarnadóttur 1873-1981) sem gengdi meðal annars formennsku Sambandi Norðlenskra Kvenna. Veifan var gerð í tilefni afmælis Halldóru þegar hún var 105 ára 1978. Skjöl frá árinu 1979 eru vélritað erindi S.S.K til kvenfélaganna og tengist ári barnsins. Einnig er vélritað erindi vegna byggingu dvalar- og hjúkrunarheimils fyrir aldraðra á Sauðárkróki þar sem flest kvenfélögin auk annara félaga innan Skagafjarðar voru þátttakendur að.
Í safninu eru einnig formleg bréf frá S.S.K. til Menntamálaráðuneytisins, Sýslunefndar Skagafjarðarsýslu og Heilbrigðisnefndar sýslunnar, Kvennasögusafn Íslands, einnig fundargerð formannafundar S.S.K. árið 1980 Einnig Líka skýrslur S.S.K., félagatal og forprentaður bæklingur með lögum Kvenfélagssambands Íslands, jólakort og tvö þakkakort vegna andláts Sigríðar Sigtryggsdóttur sem lést 1979 og Ólínu Björnsdóttur sem lést 1980.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K.1981

Skjöl frá árinu 1981 í safninu eru skýrslur S.S.K., nafnalisti yfir formenn kenfélaga í Skagafirði. Formleg og óformleg erindi og bréf frá formanni S.S.K. til kvenfélaganna í Skagafirði. Í safninu eru aðallega bréfasamskipti er varða dvalarheimili aldraða í Skagafirði þar sem árið 1981 var alþjóðaár aldraðra. Fundardagskrá formannafundar S.S.K. ódags. og án ártals.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1993

Í safninu eru þrjú símskeyti og nokkur jólakort í tilefni af 50 ára afmælisárs S.S.K. Einnig póstkort stílað á Pálínu Skarphéðinsdóttur frá Sigríði Ingimarsdóttur. Bæklingur sem kallast Hugmyndaskrá Landbúnaðarins, lög Sambands Norðlenskra Kvenna og erindi frá K.Í. til formanna héraðssambandanna.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1994

Í safninu er ársskýrsla Kvenfélags Staðarhrepps ásamt umsóknar S.S.K. um styrk til Stéttarsambands bænda og bæklingur vegna 80 ára afmælis Sambands Norðlenskra Kvenna og auglýsing um dagskrá opnunarhátíðarinnar Árs fjölskyldunnar.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1997

Vélrituð, forprentuð, tölvuprentuð og ljósrituð pappírsgögn. Í safninu eru fundarboð vegna aðalfundar SSK, ársreikningur sambandsins og orlofssjóðs. Þakkarbréf frá ýmsum aðilum innan Skagafjarðar vegna gjafa frá SSK. Formlegt erindi frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig fundarboð á stofnfund Beinverndar, einnig bæklingur í tengslum við það og lög félagsins. Bréf og erindi frá K.Í. meðal annars um framtíð kvenfélaganna í landinu.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1998

Forprentuð og ljósrituð pappírsgögn, í safninu er veifa merkt Slysavarafélagi Íslands 7 ára, forprentað eyðublað fyrir ársskýrslur kvenfélaganna. Einnig formleg erindi og bréf frá stórn Sambands Borgfirskra Kvenna, K.Í, Landspítalanum, Sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Ódagsett og án ártals lög Kvenfélagssambands Íslands. Einnig eru lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, minnisblað er varða Lífeyrisréttindi hjóna, og lög um orlof húsmæðra nr.53/1972.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 2000 - 2003

Ljósrituð, handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, í safninu er skýrsla kvenfélags Sauðárkróks, erindi frá Sigríði Sigurðardóttur hjá Byggðasafni Skagafjarðar, lög K.Í., viðurkenning veitt K.Í. frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Erindi frá Kaupfélagi Skagfirðinga vegna "Byggðahóps Skagafjarðar". Þakkarbréf frá Grunnskólanum á Hofsósi og Alþýðulist. Einnig teikning, afmæliskort, boðskort, beiðni um styrk til útgáfu bókar um Skagfirska rósavettlinga ásamt kostnaðaráætlun. Allt safnið var mjög vel varðveitt.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ljósmyndir úr starfi S.S.K. 1944-1987

Safn ljósmynda sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, en þó ekki allar. Myndirnar voru ekki raðaðar í neinni sérstakri númeraröð. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og 1945, á myndunum eru konurnar sem voru á 2. og 3. aðalfundi samabandsins. Í safninu eru einnig myndir frá 40 ára afmælishátíðar S.S.K. sem haldin var í Bifröst á Sauðárkóki 1983, gróðursetningu á Hólum árið 1985 og forsetaheimsókn hjá Frú Vigdísi Finnbogadóttur. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð eða miðar með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka þær úr að einni mynd undanskildri, að öðru leyti er safnið í mjög góðu ásigkomulagi.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

SSKv27

Ljósmynd frá afmælishófi í Bifröst 1969, 100 ár frá stofnun Kvenfélags Rípurhrepps. Sigurlaugarsjóður var stofnaður við það tækifæri.
Nafnalisti fylgir myndinni.
Aftasta röð: Magnús H. Gíslason, Jóhanna Þórarinsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Lovísa Guðmundsdóttir (systur í skrautbúningum), Jón Sigurjónsson og Þórunn Jónsdóttir.
Þeir sem sitja á móti þeim:
Einar Guðmundsson, Ási?, Sigurbjörg í Brekkukoti? og Bára Björnsdóttir? Felli.
Næsta borð:
Sigríður Helgadóttir, Ingibjörg á Úlfsstöðum, Pála Pálsdóttir, Þorsteinn Hjálmarsson, Laufey á Torfufelli í Eyjafirði.
Þeir sem sitja á móti þeim:
Halldóra Bjarnadóttir, Dómhildur Jónsdóttir og Emma Hansen.
Næsta borð:
Fjóla í Víðinesi.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Sigurgeir Angantýsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00056
  • Safn
  • 1950-2001

Úrklippubókin er samanteknar upplýsingar um Danslagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks. Ýmis efni á hljóðböndunum, m.a. upptökur af útvarpsefni ruv og æfing hjá kirkjukór.

Ávarp við afhjúpum minnismerkis

Skjalið er handskrifað með rithönd Árna Blöndal. Meðfylgjandi er minnismiði um að ávarpið hafi verið flutt við afhjúpun á minnismerki um Frúarstíg á Freyjugötu.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Kvenfélag Sauðárkróks: Skjalasafn

  • IS HSk N00085
  • Safn
  • 1967

Ljósmyndir úr sýningunni Deleríum búbónis, sem Kvenfélag Sauðárkróks setti upp árið 1967.

Kvenfélag Sauðárkróks (1950-)

Hcab 478

Frá fyrsta ferðalagi Kvenfélags Sauðárkróks með ellilífeyrisþega- um 1960. Tekið fyrir faman Goðdalakirkju. Tölurnar vísa til skýringarteikningar. 1. Oddgnýr Ólafsson- 2. Stefanía Jónasdóttir- 3. Stefanía Ferdinandsdóttir- 4. Sigurgeir Daníelsson- 5. Júlíus Pálsson- 6. Brynhildur Jónsdóttir- 7. Sigríður Sigtryggsdóttir- 8. Jóhanna Jónsdóttir- 9. Elísabet Jónsdóttir- 10. Kristín Sölvadóttir- 11. Jóhanna Jónsdóttir- 12. Guðmunda Sigurðardóttir- 13. Guðrún Bjarnadóttir- 14. Jóhanna Bergsdóttir- 15. Gunnhildur Andrésdóttir- 16. Jófinna Maríusdóttir- 17. Guðrún Sveinsdóttir- 18. Sigurlaug Jósafatsdóttir- 19. Sigurjóna Bjarnadóttir á Seylu. Úr Dánarbúi Guðrúnar Sveinsdóttur 1979.

Lög og félagatal

Lög og félagatal Kvenfélagsins Framtíðarinnar. Bókin er í ágætu ásigkomulagi.

Kvenfélagið Framtíðin (1939-)

Kvenfélag Hólahrepps

  • IS HSk E00084
  • Safn
  • 1950 - 1977

Harðspjalda handskrifuð bók með grænni kápu og er í lélegu ástandi. Mikið los á blaðsíðum og þær rifnar en læsilegar. Kápa laus frá bók að nánast öllu leiti en hangir rétt saman á þræði.

Kvenfélag Hólahrepps

Fundagerðabók

Óinnbundin lítil bók um stofnfundagerð félagsins. Bók er rifin á forsíðu og síðustu blaðsíðu annars í góðu ástandi. Límborði er á kili.

SSKv16

List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973.
Á myndinni eru, frá vinstri:
Eyborg Guðmundsdóttir
Selma Magnúsdóttir
Helga Kristjánsdóttir
Margrét Ólafsdóttir

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv17

List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973.
Á myndinni eru, frá vinstri:
Selma Magnúsdóttir
Margrét Ólafsdóttir
Eyborg Guðmundsdóttir
Björn Daníelsson

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv18

List um landið, sýning í Safnahúsinu á vegum S.S.K. 1973.
Á myndinni eru, frá vinstri:
Jóhann L. Jóhannesson, Helga Kristjánsdóttir og Jóhann Salberg Guðmundsson.

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv19

List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973.
Á myndinni eru, frá vinstri:
Eyborg Guðmundsdóttir (listakona sem setti upp sýninguna, (höfundar ýmsir))
Helga Kristjánsdóttir
Margrét Ólafsdóttir
Selma Magnúsdóttir

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv22

List um landið, sýning í Safnahúsinu á vegum S.S.K. 1973.
Á myndinni er Helga Kristjánsdóttir.

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv24

List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973.
Helga Kristjánsdóttir virðir fyrir sér myndvefnað Vigdísar Kristjánsdóttiur.

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv25

List um landið, sýning í Safnahúsinu 1973. Helga Kristjánsdóttir býður gesti velkomna.

Stefán Pedersen (1936-2023)

SSKv26

Mynd tekin á afmælishófi í Bifröst 1969.
Á myndinni eru, frá vinstri:
Svana í Ási
Jóhanna S. í Brautarholti
Ingibjörg í Flugumýrahvammi
Ingibjörg á Mið-Grund
Sigríður (ath)
María á Húsabakka

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

SSKv31

Tekið á móti norrænum konum að Löngumýri sumarið 1951.
Frá vinstri:
Karlotta á Hólum, Minna Bang, Sauðárkróki, Sigrún Pálmadóttir, Reynistað, Ingibjörg Jóhannsdóttir á Löngumýri, Amalía á Víðimel, Ingibjörg á Úlfsstöðum, Helga á Víðivöllum, Ólöf í Krossanesi, Björg á Löngumýri og Lilja Sigurðardóttir, Víðivöllum.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Samband skagfirskra kvenna: Skjalasafn

  • IS HSk N00217
  • Safn
  • 1975-2013

Skjalasafnið inniheldur óútfyllt heiðursskjöl, bækur, fána, fjölrit, ljósmyndir, bankabækur, ávísanahefti og ýmis bókhaldsgögn úr fórum Sambands skagfirskra kvenna frá árunum 1980-2013.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Fundagerðabók

Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í góðu ástandi en nokkuð blettótt. Bókin er bundin með bandi og með fallegri skrift.

Hið skagfirska kvenfélag (1895 - 1953 )

Fundagerðabók

Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók ´imjög góðu ástandi, hefti ekki farin að ryðga. Í upphafi bókar er talað um 35 konur séu meðlimir félagsins.

Hið skagfirska kvenfélag (1895 - 1953 )

Förukonan 1954-2000

Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Í bókinni eru skráðar fréttir af störfum kvenfélaga eða frásagnir kvenfélagskvenna, einnig eru í bókinni nokkrar pappírskópíur sem límdar eru á blaðsíðurnar sem tengjast frásögnunum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ágrip úr sögu kvenfélaga í Skagafirði

Á meðal gagna eru handskrifuð og vélrituð blöð með sögu kvenfélaganna í Skagafirði, stofnár þeirra og starfsemi og fjölritað hefti með forsíðu þar sem stendur "Samtök Skagfirzkra Kvenna 100 ára, 7.júlí 1869-7.júlí 1969. Í safninu er einnig vélritað bréf, dagsett 17.11.1968 frá Kristmundi Bjarnasyni til Pálu Pálsdóttur um kvennaskólamál í Skagafirði. Einnig eru handskrifaðar athugasemdir, líklega Kristmundar og listi með heimildum. Vélrituð skjöl með ágrip sögu hins Skagfirzka Kvenfélags (ódagsett og án ártals). Vélritað ágrip af sögu Kvenfélags Sauðárkróks, dags.9.5.1969. Öll skjölin hafa varðveist mjög vel.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1984

Í safninu eru handskrifuð og vélrituð, formleg og óformleg bréf og erindi, einnig skýrslur S.S.K., tvær þingsályktunartillögur og jólakort. Fundarboð fyrir aðalfund S.S.K. Fundardagskra og bókamerki er meðal gagna. Öll gögnin hafa varðveist vel.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1985

Handskrifuð, vélrituð og forprentuð pappírsgögn. Formleg og óformleg erindi og bréf, fundagerð aðalfundar S.S.K., bréf formanns S.S.K. til formanna kvenfélaganna í Skagafirði, og áskoranir til þingmanna, þakkarbréf og þingsályktunartillaga. Í safninu er einng silkiborði með prentaðri dagskrá afmælisfagnaðar vegna 90 ára afmælis Kvenfélags Sauðárkróks. Öll gögnin hafa varðveist mjög vel.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1991

Tölvuútprentuð pappírsgögn með formlegum og óformlegum erindum. Í safninu eru greinagerð um að auka minjagripa- og nytjalisframleiðslu í Skagafirði og Húnavatnssýslunum, einnig eru gögn um reglur um smáverkefnasjóð landbúnaðarins og fundarræða sem tengist samstarfi Jafnréttisráðs og K.Í. sem er ódagsett og án ártals en var með þessum gögnum og þess vegna leyft að vera þar áfram það er það sama með bækling frá Stígamótum og fleiri gögn.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1996

Formleg erindi til SSK frá Sigrúnu Ingibjörgu Arnardóttur á Akureyri vegna styrks til að læra þjóðbúningasaum, Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og samtökum austfirskra kvenna. Bæklingur frá Kvenasögusafni Íslands. Önnur formleg erindi eru frá K.Í. auk annara skjala.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ljósmyndasafn S.S.K.

Safn með pappírskópíum, bæði í lit og svart hvítar sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, þó ekki allar. Myndunum var heldur ekki raðað eftir neinni sérstakri númeraröð þegar var farið var yfir safnið. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og er á myndinni konurnar sem voru á 2. aðalfundi samabandsins. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987 þegar Friðrik Örn Haraldsson tók við verðlaunum fyrir verðlaunatillögu fyrir minjagrip fyrir S.S.K. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka það úr, að öðru leyti er safnið í góðu ásigkomulagi. Myndirnar voru settar í sýrufría plastvasa ásamt blöðum og miðum með nöfnum þeirra til að auðvelda nafngreiningu.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Samband skagfirskra kvenna

  • IS HSk E00101
  • Safn
  • 1869 - 2003

Um er að ræða mikið safn af handskrifuðum, vélrituðum, ljósritum, forprentuðum og tölvuútprentuðum skjölum. Auk þess formleg, óformleg erindi og bréf, skýrslur, bæklingar, þingsályktanir og fleira tengt málefnum sem S.S.K. lét sig varða um.
Félagatöl, lög S.S.K og Sambands Norðlenskra Kvenna (S.N.K.) og Kvenfélagssambands Íslands, einnig ársreikningar, jólakort, símskeyti tilefni 40 og 50 ára afmælis S.S.K. Samband Skagfirskra Kvenna stóð fyrir hugmyndasamkeppni um minjagrip árið 1987 og er verðlaunateikningin geymd í safninu. Einnig er prótótýpa af merki S.S.K. sem hannað var fyrir 40 ára afmæli S.S.K. 1983. Á meðal skjala voru innbundnar fundagerðir frá 1974-1983 og 2003, nokkrar voru til í tveimur eintökum og var ákveðið að grisja úr safninu og halda eftir einni fyrir hvert ár.
Í safninu er talsvert af úrkliptum auglýsingum, blaðagreinum og viðtölum úr héraðsfréttablöðunum Degi og Feyki, einnig Morgunblaðinu, frá árinu 1983-1997 sem tengdust starfi S.S.K og áhugasviða þeirra sem voru í forsvari fyrir sambandið. Blaða og úrklippusafnið var allt fjarlægt þar sem blöðin eru aðgengileg á www.timarit.is og engin þörf talin á að geyma þau né auglýsingarnar.
Í fyrstu var allt gróflega flokkað, síðan var ákveðið að flokka skjölin eftir ártölum. Pappírsgögn frá 1968-1979 voru sett saman við skjöl frá 1980 þar sem þau voru svo fá.
Í safninu eru nokkrar veifur, allir aukahlutir sem voru í veifunum voru teknir úr (skrúfur, plaststangir o.þ.h.). Öll gögn sem voru í plast- og pappamöpppum voru tekin úr og möppurnar fjarlægðar úr safninu einnig smellurammi. Einnig auðar blaðsíður og hefti voru fjarlægð að mestu þó þau væru ekki farin að skemma út frá sér. Nokkuð ljósmyndasafn fylgdi skjölunum, það var sett í sýrufría plastvasa. Búið var að skanna myndirnar inn og þær tengdar við safnið. Í safninu voru einnig vísur, stökur og kvæði eftir konur sem tengdust kvenfélögunum í Skagafirði og S.S.K. að einhverju leyti.
Allt safnið var í góðu ástandi og greinilega vel varðveitt.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Niðurstöður 86 to 156 of 156