Viðtöl

Taxonomy

Code

Scope note(s)

Source note(s)

Display note(s)

Hierarchical terms

Viðtöl

Equivalent terms

Viðtöl

Associated terms

Viðtöl

155 Archival descriptions results for Viðtöl

155 results directly related Exclude narrower terms

Snælda 4a

Á hlið a Pétur Stefánsson og Jón á Hofsvöllum og hlið b Jóhann Magnússon.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 5a

Hljóðritanir með Guðmundi Eiríkssyni, Ingvari Jónssyni, Ragnar Ófeigson og bræðurnir Björn og Sigurður Egilssynir

Stefán Rósantsson

Viðtal við Stefán Rósantsson Gilhaga. Vantar framan á viðtalið.
Stefán segir ferð föður síns á Krókinn og banalegu hans þar.
Einnig frá Önnu Stefánsdóttur, systur Eyþórs Stefánssonar.
Þá talar hann um mannlífið í sveitinni.

Snælda 10a

Hjóðrituð viðtöl við Pétur Jónasson, Ólaf Jónsson, Sigurð Egilsson og Þorbjörn Björnsson.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Pétur Jónasson Sauðárkróki

Viðtal við Pétur Jónasson fyrrum hreppstjóra á Sauðárkróki.
Pétur rifjar m.a. upp bernskuminningar frá Enni, Syðri-Brekkum og Hofsstöðum.
Einnig frá vinnumennsku.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Spóla 5

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "viðtöl við ýmsa menn."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Torfi Bjarnason héraðslæknir, Suðurgötu 1, Sauðárkróki

Viðtal við Torfa Bjarnason héraðslæknir á Sauðárkróki. Torfi og Sigríður bjuggu á Sauðárkróki til ársins 1955. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970.
Torfi segir frá læknastörfum sínum í héraðinu og staðháttum og aðstæðum, m.a. vetrarferðum um héraðið. Sigurður spyr um líf eftir dauðann og skoðanir læknavísinda á því.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Séra Eiríkur Albertsson, Reykjavík

Viðtal við séra Eirík Albertsson, Reykjavík. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970.
Eiríkur segir frá æsku sinni og uppruna, en hann ólst upp í Torfmýri og Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð. Segir einnig frá samferðafólki í Blönduhlíð. Einnig spjallað um prestsskap Eiríks en hann var einnig bóndi á Hesti í Borgarfirði og skólastjóri á Hvítárbakka. Einnig rætt um bók Eiríks sem byggir á doktorsritgerð hans. Eiríkur segir frá tildrögum þess að hann lagði fyrir sig guðfræði og trúmál almennt.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Sigríður Björnsdóttir, Miklabæ

Viðtal við Sigríði Björnsdóttur, Miklabæ. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970. Sigríður var frá Miklabæ í Blönduhlíð. Hún var eiginkona séra Eiríks Albertssonar, sem var m.a. prestur á Hesti í Borgarfirði. Sigríður segir frá störfum sínum sem prófdómari. Fer með frumsamið ljóð.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 1a

Viðtal við Ólaf Guðmundsson frá Litlu Hlíð en hann er fæddur 1917.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 2

Snælda, viðtal við Sigurð Stefánsson Brúnastöðum / Brenniborg í Lýtingsstaðahreppi.
M.a. rætt um búskap Sigurðar, búskaparhætti almennt, árferði og kveðskap.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Pétur Stefánsson frá Hofi í Vesturdal

Viðtal við Pétur Stefánsson frá Hofi í Vesturdal.
Rætt um uppruna hans, uppvöxt á Minni-Brekku í Fljótum, búskap á Hofi í Vesturdal og samanburð á Fljótum og Skagafjarðardölum.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Stefán Stefánsson Brenniborg

Viðtal við Stefán Stefánsson Brenniborg.
Hann segir frá uppvexti sínum á Löngumýri, Skíðastöðum og víðar.
Einnig sjóðróðrum suður með sjó og skólagöngu í Flensborg.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Sigurður Kristófersson

Viðtal við Sigurð Kristófersson Sölvanesi.
Rætt um kveðskap, verslun, félagslíf, stóriðjubúskap o.fl.
M.a. minnst á héraðshátíðina í Garði 1930.
Í lok upptökunnar heyrist stutt spjall við tvö börn, Sigurð Bergmann og Bryndísi Ágústu.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 9a

Hjóðritun, Jóhannes Guðmundsson Vallholti, Jóhann Magnússon Mælifellsá, Gunnar Jóhannsson Mælifellsá, Jón Eðvald Guðmundsson hljóðritað í R.vík

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Ólafur Jónsson Stóru-Gröf

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Ólaf Jónsson frá Stóru Gröf (1890-1972).
Ólafur segir frá uppvexti sínum á Krithóli, Grófargili og Kolgröf. Einnig búskap í Stóru-Gröf á Langholti og búsetu á Sauðárkróki.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Spóla 3

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "tal."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Spóla 6

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "músík."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Spóla 7

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er plasthulstur.
Á hulstrið er skrifað "músík."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Sigríður Auðuns Suðurgötu 1, Sauðárkróki

Viðtal við Sigríði Auðuns, læknisfrú á Sauðárkróki. Torfi og Sigríður bjuggu á Sauðárkróki til ársins 1955. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970. Sigríður greinir frá uppruna sínum en hún var Vestfirðingur. Greinir einnig frá tengslum sínum við Skagafjörð.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 2

Snælda, viðtal við Sigurð Stefánsson Brúnastöðum / Brenniborg í Lýtingsstaðahreppi.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Spóla 2

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "tal."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Spóla 4

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "útvarp."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Snælda 6a

Viðtöl við Markús Sigurjónsson, Reimar Helgason og Jón Gíslason frá Miðhúsum

Jón Gíslason (1893-1976)

Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli

Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli. Segir m.a. bernsku sinni á Sjávarborg.
Markús segir frá því er hann var sendur með mat handa strokufanganum Jóni Pálma, sem var á flótta vegna seðlafölsunarmálsins.
Einnig segir hann frá því þegar fangi sem var í haldi vegna annars peningafölsunarmáls slapp frá Reykjavík og komst til Skagafjarðar.
Jafnframt er spjallað um starfsævi Markúsar sem var sjómaður, verkamaður og bóndi og stundaði einnig ýmis konar handverk.
Loks segir hann frá dulrænu atviki þegar hann var á Víðimýri og fyrirboðum í draumi.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Reimar Helgason Vallhólma

Sigurður Egilsson ræðir við Reimar Helgason bónda á Bakka í Vallhólmi, Seyluhreppi.
Hann segir frá tildrögum þess að hann settist að í Vallhólmi. Einnig sundkennslu Stefáns Vagnssonar í Vallalaug.
Jafnframt segir hann frá hjónunum Jóhanni og Sigurlaugu á Löngumýri, kaupum sínum á Bakka og gamansögu af Sigurði í Kaupfélaginu. Loks ræða þeir um Skagafjörðinn almennt og hestaeign Reimars.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Hermann Jón Stefánsson frá Ánastöðum

Sigurður tekur viðtal við Hermann Jón Stefánsson frá Ánastöðum.
Hann segir frá æsku og uppvexti í Efra-Lýtingsstaðakoti.
Einnig rætt um búskap Hermanns og horfur í landbúnaði.
Þá er sagt frá ferð yfir Héraðsvötn á hestum.

Slæm upptaka.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Hljóðband 2

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Bjartmar Kristjánsson sem var prestur á Mælifelli í Lýtingsstaðahreppi.
Rætt um uppruna Bjartmars, skólagöngu hans í Menntaskólanum á Akureyri og guðfræðideild Háskóla Íslands.
Að lokum aðeins minnst á búsetu og prestskap hans á Mælifelli.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Snælda 1a

Viðtal við Ólaf Guðmundsson frá Litlu Hlíð en hann er fæddur 1917.
Rætt um ævi og störf Ólafs, búskap hans, nágranna og fleira.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Spóla 1

Hljóðbandið er vafið upp á spólu úr plasti og utan um er pappahulstur.
Á hulstrið er skrifað "tal."
Ekki er vitað um ástand segulbandsins.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Jóhann Pétur Magnússon (1892-1979)

Viðtal við Jóhann Pétur Magnússon, Varmalæk Lýtingsstaðahreppi.
M.a. er rætt um kveðskap og rifjaðar upp gamlar drykkjusögur.
Farið með Kaldaskarðsvísur, rætt um kveðskap Magnúsar á Vöglum og Hannesar á Laugabóli.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Guðmundur Eiríksson frá Breiðagerði

Sigurður Egilsson ræðir við Guðmund Eiríksson frá Breiðagerði.
Rætt um uppvöxt Guðmundar í Sölvanesi, búskaparhætti, m.a. fráfærur. Einnig barnafræðslu í sveitinni en Jóhannes Þorsteinsson var kennari í sveitinni. Jafnframt rætt um búskap hans og Bjargar á Breið og oddvitastörf hans. Einnig spyr Sigurður um viðhorf hans til ýmissa mála.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Stefán Rósantsson frá Gilhaga

Sigurður Egilsson ræðir við Stefán Rósantsson frá Gilhaga.
Fyrst er rætt um Jón Sigurðsson rímnaskáld.
Síðan sagt frá æsku og uppvexti Stefáns í Reykjarseli, Flatatungu, Tungukoti og Ölduhrygg. Einnig ræða þeir um vinnumennsku Stefáns á Lýtingsstöðum og í Svartárdal. Jafnframt um búkap Stefáns í Sölvanesi og Gilhaga. Loks er sagt frá ýmsum fyrirboðum, sem Egill, faðir Sigurðar, sá.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Ragnar Ófeigsson frá Svartárdal

Sigurður Egilsson við Ragnar Ófeigsson, Ytri-Svartárdal.
Ragnar segir frá sinni fyrstu ferð á Sauðárkrók, árið 1912.
Rætt um búskap Ragnars í Svartárdal, ræktunarstarf í landbúnaði og fleira.
Einnig hestaeign Ragnars. Ragnar fer með eina hestavísu sem hann orti sjálfur.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Ingólfur Daníelsson

Hljórit með Ingólfi Daníelssyni, Steinsstöðum framhald af viðtalinu á snældu 8b.
Ingólfur var frá Ásum í Húnavatnssýslu og kom að Steinsstöðum með foreldrum sínum árið 1893.
Hann segir frá húsmennsku, vinnumennsku og búskap sínum. Hann bjó m.a. í Bakkaseli og á Steinsstöðum.
Einnig spyr Sigurður hann um dulræn fyrirbæri og fleira. Ingólfur segir eina sögu af slíkri reynslu.

Böðvar Emilsson

Hljóðrit af Böðvari Emilssyni frá Þorsteinsstöðum.Hann segir frá uppvexti sínum í Hamarskoti við Akureyri, Glerárþorpi, Litladal, í Öxnadal og Litladalskoti. Hann segir einnig frá Krossmessuveðrinu 1922 og vinnumennsku sinni og búskap sínum á Þorsteinsstöðum.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Ingvar jónsson frá Hóli í Lýtingsstaðahreppi

Sigurður Egilsson ræðir við Ingvar Jónsson frá Hóli í Lýtingsstaðahreppi.
Rætt um skólagöngu Ingvars í Hvítárbakkaskóla og skagfirska skólafélaga þar, m.a. Sigurður Skagfeld.
Einnig rætt um búskap Ingvars á Hóli í Lýtingsstaðahreppi, horfur í landbúnaði, ýmsar framfarir í samfélaginu, s.s. samgöngur og rafmagn.

Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)**

6a Stefán ræðir við ýmsa

Stefán ræðir við Hjört Benediktsson, Marbæli Seyluhreppi (0:00:00 - 0:04:20)
Stefán ræðir við Árna Kristmundsson, Hvammkoti (0:04:30-0:05:40)
Stefán ræðir við Lúðvík Kemp frá Illugastöðum ( 0:06:00-0:09:30)
Stefán ræðir við Stefán Sigurfinnsson, Innstalandi (0:09:35-0:13:45)
Stefán ræðir við Baldur Baldvinsson á Ófeigsstöðum (0:14:18-0:15:20)
Vantar stundum ýmist framan eða aftan á viðtöl.

Arnljótur Sveinsson Ytri-Mælifellsá

Sigurður Egilsson tekur v iðtal við Arnljót Sveinsson, Ytri-Mælifellsá. Líklega tekið í kringum 1969-1970.
Arnljótur var fæddur á Syðri-Mælifellsá en bjó á Ytri-Mælifellsá frá 12 ára aldri en var einnig um tíma á Reykjavöllum og í Sölvanesi.
Rætt um uppvöxt hans, búskap, horfur í landbúnaði. Nokkurra samtíðarmanna minnst.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Margrét Björnónía Björnsdóttir (1881-1970) frá Stóru-Seylu

Rætt er um Stóru-Seylu í Skagafirði og rætt við Margréti Björnónínu Björnsdóttur. Margrét telur upp þá staði sem hún bjó á og segir frá búskap sínum á Stóru-Seylu. Einnig minnist hún vinnumanna sem hjá henni voru, Litla-Grími og Jóhannesi Sigvaldasyni. Einnig fer hún með tvær vísur, Daglur líður, kemur kvöld... og Enginn grætur Íslending.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Jón Jónsson Hofsvöllum

Sigurður Egilsson ræðir við Jón Jónsson á Hofsvöllum. Rætt um minningarbrot úr æsku Jóns, dvöl hans á berklahælinu á Kristnesi. Jafnframt störf Jóns við búskap og sem bifreiðarstjóri, við mjólkurflutninga. Loks ræða þeir um horfur og stefnu í landbúnaði.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Sigurður Eiríksson frá Borgarfelli

Viðtal við Sigurð Eiríksson frá Borgarfelli.
Hann segir frá uppvexti sínum í Breiðargerði. Rifjar upp grasaferð um 1919.
Rætt um búskap Sigurðar og horfur í landbúnaði.
Viðtal tekið í júlí 1967.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Friðrik Jens Friðriksson læknir

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Friðrik J. Friðriksson lækni.
Ræða m.a. um byggingu Sjúkrahússins á Sauðárhæðum og aðdraganda þess.
Einnig ræða þeir um ferðalög Friðríks á Fjöllum, um Sprengisand, Hofsjökul og Helgrindur.
Sigurður og Friðrík fara báðir með kvæði.

Viðtalið tekið 1967.

Sveinn Stefánsson

Viðtal við Svein Stefánsson Tunguhálsi. Viðtalið tekið1967 á Akureyri. Heyrist ekki vel í spyrjanda. Vantar framan á viðtalið. M.a. frásögn af sleðaferð eftir vestur eylendinu og krossmessuveðrinu 1922.

Results 1 to 85 of 155