Ein stílabók með línustrikuðum blaðsíðum sem á eru handskrifaðar fundagerðir Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1945-1955. Aðeins helmingur bókarinnar er nýttur, restin eru auðar blaðsíður. Límborði er á kjöl bókarinnar, bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt. Fjarlægja þurfti heftin innan úr bókinni þar sem þau voru farin að skemma út frá sér. Aftast í bókinni var komið fyrir mikið magn af lausum pappírsgögnum í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð með handrituðum fundagerðum. Þetta mikla magn af pappír aflagaði bókina.
Fremst í bókinni var komið fyrir blaði þar sem staðfest er fyrir móttöku á bókinni og skjölunum á Héraðsskjalasafninu 24.2.1974.
agricultural product
5 Archival descriptions results for agricultural product
Lausblaða pappírsgögn í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð með handskrifuðum fundagerðum Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1956-1973. Gögnin voru inni í stílabók úr sama safni, blöðum raðað upp í ártalsröð til einföldunar. Fundagerðirnar eru vel læsilegar og gögnin í góðu ásigkomulagi. Hefti og bréfaklemmur fjarlægðar þar sem þau voru farin að skemma út frá sé vegna ryðs.
Lýtingsstaðadeild Kaupfélags SkagfirðingaViðskipti Arngríms Sigurðssonar við Kaupfjelag Skagfirðinga.
Merkt er ýmist við Freðkjöt eða Saltkjöt.
Blað 1 er dagsett 22.09.1932
Blað 2 er dagsett 03.10.1932
Blað 3 er dagsett 13.10.1932
Safnið samanstendur af einni stílabók sem bundin er með þykkum pappír og talsvert magn af pappírsgögnum sem á eru handskrifaðar fundagerðir fyrir Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1945-1973. Aftast í bókinni var komið fyrir mikið magn af lausum pappírsgögnum í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð. Þetta aflagaði bókina þannig að hún virkaði þykkri en hún í rauninni er. Hefti fjarlægð úr bókinni þar sem þau voru farin að ryðga og skemma út frá sér, pappaspjaldið rifnaði lítillega þegar annað heftið var fjarlægt. Laus pappírsgög voru tekin úr bókinni og þeim raðað í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.
Fremst í bókinni var komið fyrir blaði þar sem staðfest er fyrir móttöku á bókinni og skjölunum á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga 24.2.1974.
Allt safnið er vel læsilegt og hefur verið ágætlega varðveitt.
Lítið safn úr fórum Nautgriparæktunarfélags Seyluhrepps og samanstendur af sex lausum blaðsíðum sem á eru handskrifaðar fundagerðir félagsins frá tímabilinu 1932-1935.
Nautgriparæktarfélag Seyluhrepps