Bréfið er í tvennu lagi. Í fyrsta lagi er bréf sýslumanns Þingeyjarsýslu, dagsett 30. apríl 1904, þar sem hreppstjóri er falið að halda uppboðsþing samkvæmt beiðni séra Einars Pálssonar á Hálsi í Fnjóskadal. Við þetta bréf er bætt við öðru bréfi þar sem bréfritari er séra Einar Pálsson, ritað á Hálsi, 6. maí 1904 þar sem umræðuefnið er enn þetta uppboð. Einar er að biðja viðtakanda bréfsins sem ekki er nafngreindur, að koma auglýsingum um uppboðið "yfir heiðina" og "sömuleiðis að greiða fyrir auglýsingarbrjefi til hr.stj. í Grýtub.hr., ef það kemur ti þín."
auction
12 Archival descriptions results for auction
Gögn yfir uppboð á óskilafé 1893-1929
Akrahreppur (1000-)Skilagreinar fyrir dánabú, söluskilmálar vegna opinbers uppboðs og uppgjör vegna dánarbús Kristjáns Þorsteinssonar Grænumýri Hofsósi. Erfðaafsal vegna Sólheima á Hofsósi, skilagrein vegna dánarbús Magnúsar Vilhelmssonar Gilsbakka Hofsósi.
"Jeg undirritaður fel hérmeð herra hreppstjóra Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum í hendur, að meta fyrir mína hönd í uppboðinu að Hóli í Svartárdal laugardaginn þ. 3. marz n.k., til þess að gæta þar hagsmuna minna sem og að ákveða söluskilmála. Skal allt sem tilnefndur herra hreppstjóri Jón Jónsson gjörir fyrir mína hönd á léðu uppboði jafngilt vera og ég gjörði það sjálfur." Þetta er ritað Sauðárkróki 1. mars árið 1900. Vottar eru Ólafur Jónsson og Magnús Benediktsson. Undir plaggið ritar Popp sem hlýtur þá að vera Christian Popp kaupmaður í Skagafirði.
Uppboðs- og uppskriftargögn hreppstjóra Akrahrepps ásamt virðingabókum.
Uppboðsbók Akrahrepps 1930-1996
Akrahreppur (1000-)"Skilmálar. Eptir hverjum seldir verða í Auðnum nokkrir fjemunir tilheyrandi að nokkruleiti danarbúi Guðmundar sál. Þorvaldssonar, en að nokkru fátækraeigum hjer í hrepp". Undir plaggið ritar Jón Stefánsson "innheimtumaður" en skjalið er ritað í Holtsmúla, 19. október 1875.
Jón Stefánsson (1836-1906)Uppboðsskrá ásamt upplýsingum um kaupendur og uppboðsverð. Nafngreindur kaupendur koma úr Seylu- og Staðarhreppi. Af nöfnunum má marka að uppboðið hafi átt sér stað á tímabilinu 1857-1875. Mögulega er þetta uppboðið á dánarbúi Guðmundar Þorvaldssonar (sjá uppboðsskilmála í sama safni).
Gögn hreppstjóra Akrahrepps 1874 til 1996
Akrahreppur (1000-)Uppskriftar og uppboðsbók Akrahrepps 1928-1990
Akrahreppur (1000-)