Sýnir 106 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Korta- og teikningaskrá
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Korta- og teikningaskrá

  • IS HSk N00466
  • Safn
  • 1870-2015

Samansafn af teikningum, uppdráttur og kortum sem koma víðsvegar að. Í mörgum tilfellum er ferill ekki þekktur.

Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)

Blandaðar teikningar

Glaumbæjarkirkja. Tillaga að litum á predikunarstól. Teikning eftir Hjörleif Stefánsson arkitekt, dagsett 10. júní 1994.

Hjörleifur Stefánsson (1947-

Rjómaskálinn "Framtíð"

Teikning af byggingu, rjómaskálanum "Framtíð". Höfundur óþekktur. Mögulega er hér um verkefni að ræða við Bændaskólann á Hólum, líklega á tímabilinu 1890-1930.

Veðramót

Teikning af bænum Veðramóti. Teikning gerð af Þorbirni Björnssyni á tímabilinu 1906-1912. Kallar hann teikninguna "Bærinn minn kæri".

Þorbjörn Björnsson (1886-1970)

Sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga

Sumarið 1908 reisti Kaupfélag Skagfirðinga sláturhús úr steinsteypu. Ingimar Sigurðsson kennari gerði teikninguna en Rögvaldur Ólafsson húsameistari í Reykjavík lagfærði hana. Árið 1908 var vesturhluti hússins byggður.

Ingimar Sigurðsson (1881-1908)

Sauðárkrókur - skipulagsuppdrættir

Skipulagsuppdráttur fyrir Sauðárkrókur eftir Guðmund Hannesson frá 1938 og uppdráttur af skipulagi Sauðárkróks eftir Sigurð Sigurðsson (síðar búnaðarmálastjóra) frá 1917. Ljósrit af uppdráttunum sem notaðar voru á sýningarspjöldum, mögulega vegna kynningar á aðalskipulagstillögu frá 1970.

Guðmundur Hannesson (1866-1946)

Básafjós

Teikningar af básafjósi. Höfundur og dagsetning óskráð en teikningin merkt Agli Bjarnasyni á bakhlið.

Teikningar af húsi og byggingarhlutum

Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af einstökum byggingarhlutum eftir Ásmund Sveinsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks. Líklega um prófverkefni að ræða.

Ásmundur Sveinsson

Teikningar af húsi og gluggum

Nokkrar teikningar af íbúðarhúsi ásamt teikningum af gluggum eftir Hjalta Guðmundsson. Merkt Iðnskóla Sauðárkróks, 1955. Líklega um prófverkefni að ræða.

Hjalti Jósafat Guðmundsson (1929-2012)

Glaumbær. Uppmæling

Uppmælingar og teikning af torfbænum í Glaumbæ eftir Sigurjón Sveinsson. Gert á tímabilinu 1956-1957.

Sigurjón Sveinsson (1918-1972)

Teikning af hlut

Teikning af verkfæri eftir Hjalta Guðmundsson. Prófverkefni. Líklega frá Iðnskólanum á Sauðárkróki.

Hjalti Jósafat Guðmundsson (1929-2012)

Sauðárkrókur - aðalskipulag

Aðalskipulagsuppdráttur fyrir Sauðárkrók, unnar af Stefáni Jónssyni, Reyni Vilhjálmssyni, Guðrúnu Jónsdóttur og Knud Jeppesen árið 1970.

Stefán Jónsson (1892-1980)

Læknishúsið á Sauðárkróki

Uppmælingar og teikning af Læknishúsinu á Sauðárkróki. Uppmæling og teikning gerð af Teiknistofunni Höfða. Teikningarnar merktar F.B. og Á.F. Gert á tímabilinu 1978-1979.

Félagsheimili og leikhús á Sauðárkróki

Teikningar af félagsheimili/leikhúsi og hóteli við Faxatorg, teiknað af Jóni Haraldssyni, arkitekt, 1979. Varð aldrei að veruleika. Afstöðumynd sem sýnir einnig hótel sunnan við félagsheimilið. Merkt "Reynir" en erfitt að lesa í restina.

Jón Haraldsson (1930-1989)

Suðurgata 1

Teikningar af byggingu á lóð Suðurgötu 1 á Sauðárkróki. Hýsir lögreglustöð, sýslumannsskrifstofur og banka. Teiknað af Árna Ragnarssyni arkitekt árið 1984.

Árni Ragnarsson (1949-

Jarðakort: Viðvík

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Viðvík í Viðvíkursveit. Gert af Ræktunarfélagi Norðurlands, árið 1991.

Ræktunarfélag Norðurlands

Jarðakort - Minni-Akrar

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Minni-Akrar. Kortið var unnið af Ræktunarfélagi Norðurlands árið 1991.

Ræktunarfélag Norðurlands

Jarðakort: Narfastaðir

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Narfastaði. Kortið var unnið af Búnaðarsambandi Eyjafjarðar árið 1991.

Búnaðarsamband Eyjafjarðar

Jarðakort - Breið

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Breið. Kortið var unnið af Ræktunarfélagi Norðurlands árið 1994.

Ræktunarfélag Norðurlands

Jarðakort - Krithóll

Jarðakort eða gróðurfarskort ásamt landamerkjabréfi fyrir Krithól. Kortið unnið af Ræktunarfélagi Norðurlands árið 1995.

Ræktunarfélag Norðurlands

Jarðakort: Kolgröf

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Kolgröf í Lýtingsstaðahreppi. Kortið var unnið af Ræktunarfélagi Norðurlands árið 1991.

Ræktunarfélag Norðurlands

Jarðakort - Villinganes

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Villinganes. Kortið unnið af Búnaðarsambandi Eyjafjarðar.

Búnaðarsamband Eyjafjarðar

Jarðakort - Flugumýri

Jarðakort eða gróðurfarskort fyrir Flugumýri. Kortið unnið af Ræktunarfélagi Norðurlands árið 1996.

Ræktunarfélag Norðurlands

Niðurstöður 1 to 85 of 106