Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1955. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er sæmilegt.
Bókin er heftuð saman og límt yfir kjölinn. Stærð hennar er 17,4 x 11,7 cm. Á titilsíðu er handskrifað "Uppdráttardæmi." Í bókinni eru skrifuð reikningsdæmi. Með liggur ljósritað blað með upplýsingum um ættir Egils ásamt minnismiða frá starfsmanni sem veitti bókinni viðtöku.
Innbundin bók sem heldur skrá yfir skip og báta í Skagafirði árin 1904-1943. Í skránni kemur m.a. fram skrásetningardagur, skipsheiti, stærð, eigendur, byggingarstaður, byggingarefni og fleira.
Stílabók í A5 broti, alls 74 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Það varðar sýsluvegagjald og flutning á berklasjúklingi. Ástand skjalsins er gott.
Stílabók í A5 broti, alls 89 skrifaðar síður þar sem vegum sýslunnar og ástandi þeirra er lýst. Varðar ástand sýsluvega. Undirritað af Lúðvík Kemp. Bókin er nokkuð óhrein en heil.
Bókin er 30 síður, auk kápu. Bókin er gefin út í Reykjavík af Leiftri. Hún er illa farin, síðurnar lausar og slitnar og rifnað hefur af hornum nokkurra þeirra.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 22x33 cm. Bókin er 386 númeraðar síður, þar af eru 20 auðar síður. Bókin er innsigluð. Með liggja nokkur laus blöð: Málaregistur aðalfundar 1941, reglugerð um breyting á reglugerð fyrir bókasafn Skagafjarðar, útskrift úr gjörðabók frá aðalfundi 1940, áætlun um tekjur og gjöld sýslusjóðs og sýsluvegasjóðs 1941 og minnispunktar um æviferil Einars Jónssonar frá Brimnesi (1865-1940). Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 22,3x36 cm. Bókin er 3040 númeraðar síður og þar af eru 1 auð. Bætt hefur verið við 5 lausum örkum sem liggja lausar aftast í bókinni. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Bókin er innbundin og er 16,3 x 19,9 sm að stærð. Bókin er 212 tölusettar síður. Á fremstu 17 síðurnar eru ritaðar fundargjörðir en aftan við miðja bókina eru samtals 37 síður sem á eru rituð ýmis minnisatriði vegna kosninga, líklega einnig frá árinu 1944.
Baksíðan hefur rifnað af bók sem gefin er út af Fjallkonu-útgáfunni, en ekki er ljóst hvaða bók. Á síðunni eru listaðar upp bækur sem komu út hjá útgáfunni árið 1914.
Bókin er innbundin, alls 181 bls. Á titilsíðu koma fram eftirfarandi upplýsingar: Fasteignabók. Löggilt af Stjórnarráði Íslands samkv. lögum nr. 22, 3. nóv 1915. Öðlast gildi 1. apríl 1922. Reykjavík. Prentsmiðjan Acta. 1921. Bókin er merkt Gísla Björnssyni á Vöglum.
Rímnabókin Varabálkur. Á titilsíðu stendur: "Varabálkur, kveðinn af Sigurði hreppstj. Guðmundssyni. Kostnaðarmenn: Björn Jónsson, Stefán Stefánsson. Akureyri, Pretnaður í prentsmiðju Norður- og austur amtsins. B.M.Stephánsson. 1872." Bókin er innbundin í stærðinni 10,5x16,2 cm. Ástand hennar er gott en síðurnar nokkuð upplitaðar.
Rímnabókin Æfintýrið Jóhönnuraunir. Á titilsíðu stendur: "Æfintýrið Jóhönnuraunir. Snúð af þýsku undir íslenzk fögur rímnalög af Snorra Bjarnasyni presti til Staðar í Aðalvík 1741 og síðan að Húsafelli 1757-1803. Útgefandi: Þorlákur Reykdal. Þriðja útgáfa. Reykjavík 1904. Prentsmiðja Frækorna." Bókin er innbundin í stærðinni 8,3x15,7 cm. Kápan er aðeins farin að losna en bókin heilleg að öðru leyti.
Bók í stærðinni 10,7x 7,2 cm. Kápu og titilblað vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir. ÁYfirskrift fremstu blaðsíðunnar er Dagverðareyrarmenn. Bókin er 112 bls.
Bókin er innbundin og er 17,6x20,4 sm að stærð. Hún er 124 tölusettar blaðsíður og þar af eru 119 bls auðar. Utan um bókina er hlífðakápa úr þunnum pappír. Í bókina eru ritaðar fundargerðir héraðsmálafunda og millifundanefnda frá árunum 1929-1947. Annars vegar er um að ræða fundi rafveitunefndar frá árunum 1929-1930 og hins vegar fundi mullifundanefndar frá árinu 1947, þar sem rætt var um sjúkrahús- og lögreglumál.
Bókin er innbundin og stærð hennar er 29,2 x 24,8 sm. Kjölurinn er slitinn og rifnað hefur af kápunni frá kilinum. Hún er 64 tölusettar síður og eru þær fullskrifaðar.
Fundargerðabók í stærðinni 33 x 24 cm. Í hana eru ritaðar fundargerðir félagsins frá stofnfundi 1937 til ársins 1954. Alls er skrifað á 16 númeraðar síður. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabækur úr fórum Péturs, alls 64 stk. Í þær er ritaður ýmis fróðleikur, svo sem ættfræði, annálar, kveðskapur eða fróðleikur tengdur Fljótunum. Einnig efni úr útvarpsþáttum, blaðagreinum og bókum. Oft er efnið sundurlaust og erfitt að greina hvað er hvað, en þar sem það er auðséð er tiltekið helsta efnið í viðkomandi bók.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,7 cm. Hún inniheldur uppskrift af sögn af Myllu-Kobba, eftir Jón Jónatansson, sem skrifuð er upp úr Lesbók Morgunblaðsins 9. júlí 1944. Kápan er laus frá og helming hennar vantar.
Stílabókin er í stærðinni 19,5 x 15,4 cm. Hún inniheldur æviágrip um Gunnar Einarsson á Þangskála, Snorra Bessason í Grundarkoti og Guðmund Bergsson. Einnig ýmsar ættfræðiupplýsingar, ábúendatal eftir 1900, fjártölu Holtshrepps 1967 o.fl. Kápan er óhrein en ástand bókarinnar er að öðru leyti gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,7 x 16 cm. Hún blað yfir fjártölu í Holtshreppi 1969, frásögn um Boga Jóhannesson á Minni-Þverá, H. Pál Arngrímsson á Hvammi í Fljótum og Þorstein Þorsteinsson frá Þrastarstöðum á Höfðaströnd. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Hún inniheldur númeruð svör við spurningum, e.t.v. úr spurningaþætti í útvarpi. Kápuna vantar á bókina og síðurnar eru orðnar upplitaðar.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur atriði úr annálum áranna 1944-1964 og er merkt 3. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm. Bókin inniheldur annál ársins 1962, að mestu leyti í formi dagbókafærlsna, og er merkt 2. bók. Virðist flest tengt Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 14,8 cm. Bókin inniheldur frásögn af Myllu-Kobba, alls 35 síður, ritaða af Pétri. Hún tengist útgáfu bókarinnar Tvennir tímar. Kápuna vantar á bókina.
Stílabókin er í stærðinni 20,5 x 16,0 cm. Bókin inniheldur frásagnir af Þorsteini Þorsteinssyni í Vík og ættir hans og frásögn um Reynistaðabræður. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,2 cm. Bókin inniheldur efni sem Pétur ritaði fyrir Skagfirskar æviskrá og bréf frá Eiríki Kristinssyni. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 25,3 x 19,5 cm. Í bókina er skrifaður ýmiss fróðleikur, m.a. um presta sem þjónað hafa í Fljótum, ljóð, þjóðsöguna um Sálina hans Jóns míns, sauðfjártölu í Holtshreppi og Haganesvík 1966, úrslit kosninga í kaupstöðum 1962 og uppskrift af viðtali við Hannes Hannesson á Melbreið. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 24,7 x 19,4 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaðar rúmlega 300 spurningar og svör, líklega úr útvarpsþætti. ýmsir fróðleiksmolar, líklega uppskrifaðir úr bókum og blöðum. Ýmiss siglfirskur og skagfirskur fróðleikur, m.a. um Sturlungu og úr Fljótum. Nokkrar annálafærslur. Uppskriftir úr útvarpsþáttum 1958-1959. Ljóð, m.a. ljóð Gunnars S. Hafdal um Fljótin. Æviþættir o.fl. Kápa bókarinnar er farin að losna í sundur. Með liggja tvö minnisblöð.
Stílabókin er í stærðinni 32 x 13 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókina er skrifaður fróðleikur og ljóð úr útvarpsþáttum. Einnig ýmis önnur ljóð, æviágrip Pálma Sveinssonar á Reykjavöllum í Skagafirði, hugleiðing um kosningarétt kvenna, annála atriði, fróðleikur um símalagningu og Glaumbæ í Skagafirði, fjártala í Holtshreppi 1932,frásögn um leiksýningu 1953 (ekki ljóst hvar hún var sett upp) og sögn um álagablett í Minni-Brekku. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja tvö minnisblöð
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1961. Bók í A5 stærð, innbundin. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Ástand bókarinnar er gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1964. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1968. Bók í A5 stærð, gormuð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggja minnisblöð. Bókin er nokkuð sjúskuð af óhreinindum.
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 16,2 cm. Bókin inniheldur frásagnir og annálaatriði, m.a. endurminningar Péturs og frásagnir tengdar Fljótum. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,9 cm. Bókin inniheldur ljóð eftir Bólu-Hjálmar, ásamt fáeinum öðrum ljóðum, uppskrift af leikriti og uppskrift úr útvarpsþætti frá 1949. Ástand bókarinnar er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 15,8 cm. Bókin inniheldur upplýsingar ætt Halldóru Auðunsdóttur, uppskriftir úr jarðabók ÁM um jarðir í Fljótum. Með liggja tvö minnisblöð sem einnig innihalda upplýsingar úr jarðarbók. Kápu vantar á bókina og síðurnar eru upplitaðar.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm. Bókin inniheldur ýmis ljóð, einkum erfiljóð eftir Fljótamenn. Kápan er laus frá bókinni og síðurnar eru upplitaðar.