Stefán Jónsson sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum og stækkun á íbúðarhúsi á Grænumýri. Byggingarstofnun landbúnaðarins gerði teikningar. Umsókn dagsett 15.04.1981. Teikningar fylgja ekki.
Pétur Sigurðsson sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á íbúðarhúsi á Hjaltastöðum. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Umsókn dagsett 19.06.1976. Teikningar fylgja ekki.
Magnús Steinþórsson sækir um byggingarleyfi fyrir endurbótum á íbúðarhúsi á Þverá 2. En í umsókn segir að húsið sé sigið, gluggar lélegir og fleira. Umsókner dagsett 28.08.1981. Teikningar fylgja ekki.
Hreinn Jónsson sækir um byggingarleyfi fyrir breytingu á fjóshlöðu á Þverá 1. Lenging á fjóshlöðu til norður samkvæmt teikningu Sigurðar Sigvaldasonar. Umsókn dagsett 01.08.1973. Teikningar fylgja ekki.
Jóhann Jóhannesson sækir um byggingarleyfi fyrir bogaskemmu á Silfrastöðum. Skemman er af gerðinni Nissen og er innflutt af Globus hf. Umsókn dagsett 23.08.1974. Teikning fylgir ekki.
Jón Gíslason sækir um byggingarleyfi fyrir bílskúr í Réttarholti. Teikningar gerðar af Byggingastofnun landbúnaðarins. umsókn dagsett 04.06.1980. Teikningar fylgja ekki.
Umsókn Kaupfélags Skagfirðinga til Byggingarnefndar Sauðárkrókshrepps um byggingarleyfi fyrir mjólkurvnnslu á lóð félagsins milli Uppsala og Kaupans vestan við aðalgötu bæjarins.
Skjalið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar leyfi til lántöku til endurgjalds á húseign á Sauðárkróki, "er hreppsefndin hefur neyðst til að kaupa."
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar beiðni um ábyrgð vegna lántöku í Sparisjóð Hofshrepps vegna sjúkrahúsdvalar Páls Sigurðssonar á Keldum.
Umsögn um skýrslu um fyrirhugaða hitaveitu fyrir Löngumýri í Skagafirði, dagsett 04.06.1956. Tvö eintök, annað undirritað af Sveini Torfa Sveinssyni verkfræðingi. Einnig bréf hans til Aðalsteins Eiríkssonar námsstjóra þar sem Sveinn Torfi gerir grein fyrir umsögninni og að þar sé byggt á skýrslu Þorsteins Thorsteinssonar frá 04.06.1956. Dagsett 16.01.1957.
Umsögnin er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Varðar Blönduhlíðarveg. Með liggja 2 arkir með mælingum og fjórir hæðarseðlar. Ástand skjalanna er gott.
Umsögnin er rituð á pappírsörk í folio stærð. Um er að ræða umsögn nefndar sem kosin var vegna tjóns á brúnni. M.a. er staðfest þátttaka brúarsmiðsins í tjóninu.
Eyðublaðið er prentað á þykkar græna pappírsörk í A5 stærð. Það er ætlað til útfyllingar af heimilislækni vegna undanþágu nemenda til að stunda nám í ákveðnum greinum.
Umsögn frá Vefnaðarskóla Ingrid Skov í Odense um frammistöðu Karlottu Jóhannsdóttur við skólann en þar lagði hún stund á nám við vefnað og vefnaðarfræði. Ingrid gefur Karlottu sín bestu meðmæli. Bréfið er stimplað sem staðfest afrit af Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 27.07.1937.
Umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar frá Karlottu Jóhannsdóttur vegna umsóknar hennar um kennslustöðu við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Bréfið er stimplað í Kaupmannahöfn - Danmörku 4. ágúst 1937 og er með tveimur dönskum frímerkjum.
Pappírsumslag. Á umslagið er vélritað nafn og heimilsfang Hrefnu Hermannsdóttur. Á umslagið er handskrifað með blýanti og penna kostnaður við dúnhreinsun og sendingu. Búið er að klippa frímerki af umslaginu og gata það.
Umsagnir frá skóla Margrete Petersen í Odense en þar nam Karlotta nám við handavinnu, skermasaum og leðurvinnu. Umsagnirnar skrifa Margrete Petersen og Karen Petersen 01.04.1937. Þær gefa Karlottu sín bestu meðmæli. Bréfið er stimplað sem staðfest afrit af Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 27.07.1937.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar þátttöku í Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Neðst er nafnalist og er bréfinu ætlað að berast frá Ketu að Hrauni. Ástand skjalsins er gott.
Fjölritað dreifibréf í A4 stærð. Bréf frá Menntamálaráðuneytinu til skóla er varðar rekstrarreikning skóla 1974 og hlutdeild ríkis í rekstrarreikningi 1974.
Pappírsörk sem rifnað hefur af stærri örk. Öðru megin á hana er ritað "gömul hreppabréf og skýrslur." en hinum megin m.a. "tíundatyftar, fátækrareikningar." Skjalið hefur líklega tilheyrt einhvers konar forsíðu eða titilsíðu.
Bréf frá Lárusi Arnórssyni sóknarpresti varðandi skuld við Kaupfélag Skagfirðinga sem hann gefur Gunnari Valdimarssyni umboð til að semja um greiðslu fyrir sína hönd. Ritað í Miklabæ þann 4. júlí 1958.
Varðar sumarfundinn í St. Michels í Finnlandi 2005. Bréfið er frá Kristínu Guðmundsdóttur, Kvenfélagasambandi Íslands og inniheldur upplýsingar um ferðlagið og fundinn.