Skrifstofa Fræðslumálastjóra sendir Jóni Þ. Björnssonar bréf, dagsettu 21. nóvember 1934, og kallar eftir upplýsingum (reikninga) varðandi seinni hluta árs 1931.
Bréf Vigfúsar Friðrikssonar ljósmyndara, dagsett 11. maí 1938, til Jóns Þ. Björnssonar, varðandi ljósmyndun skólabarna (unglingaskólans) við skólann á Sauðárkróki og skólaspjald. Guðmundur Trjámannsson hefur tekið ljósmyndina en hefur þá líklega starfað fyrir ljósmyndastofuna "Jón og Vigfús" á þessum tíma. Vigfús er að biðja Jón Þ. Björnsson um upplýsingar varðandi nemendur og kennara.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki fylgdist með og skráði líkamlegan þroska skólabarna á tímabilinu 1914-1953. Í þessari bók skráir hann niður mælingar á börnum frá 1931 til 1943. Mæld var hæð, þyngd, brjóstmál (brjóstkassi), kraftur/afl og andrými.
Grein send Degi á Akureyri þar sem Guðjón fjallar ítarlega um Sauðárkrók, bæjarstjórnina, kirkjuna, íbúana, heilbrigðismál, skólamál, verslun, félags- og skemmtanalíf og atvinnumál.
Frétt send Degi á Akureyri í október 1958 þar sem fjallað er m.a. um að svo mikill fiskafli hafi borist undanfarið að starfsmenn fiskvinnslunnar hafi ekki annað framboðinu og því hafi unglingar og börn á barnaskólaaldri verið fengin til að starfa við fiskvinnslu. Í kjölfarið var setningu skólans frestað um nokkra daga. Jafnframt er fjallað um 50 ára afmæli barnaskólans en upphaflega barnaskólahúsið var byggt 1908. Veturinn 1958 voru 150 nemendur í skólanum og skólastjóri var Björn Daníelsson. 60 nemendur voru í gagnfræðiskólanum og skólastjóri var Friðrik Margeirsson.
Grein send til Einherja í október 1965 þar sem Guðjón segir frá skólastarfi á Sauðárkróki þetta haustið. Í Barnaskóla Sauðárkróks eru 182 nemendur þetta árið og er skólastjóri Björn Daníelsson. Í Gagnfræðiskólanum eru 90 nemendur og skólastjóri er Friðrik Margeirsson. Jafnframt er fjallað um fyrirhugaða byggingu nýs gagnfræðiskólahúss. Í Tónlistarskólanum eru 40 nemendur og er þar skólastjóri Eyþór Stefánsson tónskáld og aðalkennari Eva Snæbjörnsdóttir. Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum er söngstjóri við skólann. Í Iðnskóla Sauðárkróks eru 30-40 nemendur og er skólastjóri þar Jóhann Guðjónsson múrarameistari.