Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Magnúsi Gíslasyni á Vöglum. Aftan á það eru ritaðar með blýanti tölulegar upplýsingar um búfénað.
Bréfið er fjölritað og undirritað af fulltrúa miðstjórnar Framsóknarflokksins. Aftan á það eru handskrifaðar athugasemdir Guðmundar Davíðssonar varðandi bréfið og kosningaþátttöku.
Bréf til frú Steinunnar frá Mjólkursamlagi K.S.. Í bréfinu segir að vegna söluörðugleika hafi þeir ráðist í að senda til prufu 1 stk af 30% osti og andvirðið verði fært til frádráttar á mjólkurinnleggi Steinunnar.
Bréf til Sigurðar Jónassonar. Bréfritari óþekktur, líklega heitir hann þó Einar og ber fyrir kveðju til heimilisfólksins í Hátúni frá Rannveigu. Bréfritari segist jafnframt sjá á eftir því að hafa ekki kvatt Sigurð og fjölskyldu þegar hann fór. Óvíst er hvaðan bréfið er sent og engin dagsetning fylgir heldur.
Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Stefáni Guðmundssyni á Efstlandi. Meðfyljganid er umslag, stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Í bréfinu rifjar Stefán upp gamlar minningar með vini sínum, sér í lagi þegar þeir lentu í sjóháska og komust ekki í land vegna mikils brims. Hann segir einnig frá því að hann sé orðinn gamall og fótafúinn en sé þó annars hress og líði vel. Stefán deyr síðar sama ár.
Bréfið er handskrifað á tvær pappírsarkir og undirritað af Steinarri Stefánssyni í Reykjavík. Meðfylgjandi eru umslag stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Bréf frá Steinunni, eftirnafns er ekki getið, þar sem hún innir Guðjón eftir því hvort einhverjir atvinnumöguleikar séu fyrir hana "heima eða fram í firði" og óskar jafnframt eftir aðstoð Guðjóns við atvinnuleitina.
Bréf frá Steinunni Hallsdóttur á Akureyri. Hún segir Steinunni frá búferlaflutningum suður yfir heiðar og vonast til að þær hittist þar á Hótel Borg og geri sér glaðan dag saman.
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Bréf frá Stínu til Steinunnar. Stína segir frá því að hún hafi hitt Dúdda son hennar Steinunnar á Akureyri, einnig segir hún frá því að illa gangi að lita skinn fyrir Gulla og hún sé að leita að efni í föt á Hall, báðir eru synir Steinunnar.
Tvö bréf frá Þorgilsi Guðmundssyni frá Valdastöðum sem starfaði á þessum tíma á fræðslumálaskrifstofunni í Reykjavík og var einnig gjaldkeri ÍSÍ um tíma.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar afsteypur af myndum af Jóni Sigurðssyni. Með liggur umslag og fjölrituð mynd af Jóni Sigurðssyni.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Hann sendir Sigurði nýárskveðjur og spyr hann spurninga varðandi útvarpstæki sem Sigurður hefur í Hátúni og hvernig það virkar.