Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa kaupmanni Pálma Péturssyni.Lóðin liggur 4 metrum austan við akbrautina norðan við lóð Árna Daníelssonar. 60 metrar á lengd frá norðri til suðurs 26 metrar á breidd frá vestri til austurs samtals 1560 fermetrar
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa kaupmanni V. Classen. Lóðin liggur vestanvert við alfaraveginn sunnan við lóð Jónas Sveinssonar (Grundarlóð). 50 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 50 álnir á breidd frá austri til vesturs. Samtals 2500 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa þurrarbúðarmanni Þorsteini Jónssyni. Lóðin liggur á Sauðárflæðum austan við afgira lóð útmælda 6. 11.1906. 300 metrar á lengd frá norðri til suðurs. 55 metrar á breidd frá vestri til austurs. 16500 fermetrar að flatamáli.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Kristjáni Blöndal. Lóðin liggur 4 metrum austan við akbrautina norðan við 12 metra breitt vegastæði austan frá brautinni. 75 metar á lengd frá norðri til suðurs. 26 metrar á breidd frá vestri til austurs. samtals 1950 fermetra.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Haraldi Siguðrssyni. Lóðin liggur vestanvert við alfaraveginn norðan við lóð Þorsteins Jónssonar. 20 álnir á lengd frá norðri til suðurs 50 álnir á breidd frá austri til vesturs. samtals 1000 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Jónasi Sveinssyni.Lóðin er kennd við húsið Grund og liggur vestanvert við alfaraveginn sunnan við lóð snikkara Þorsteins Sigurssonar. 35 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 50 álnir á breidd frá austri til vesturs. Samtals 1750 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Kristjáni Sveinssyni. Lóðin liggur vestan við gamla lestaveginn norðan við lóð Ólafs Jóhannssonar. 18,8 metrar frá suðri til norðurs. 25 metrar frá austri til vesturs. Samtals 470 fermetrar.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa húseiganda Þorvaldi Einarssyni. Lóðin liggur norðan við lóð Jónasar Kristjánssonar vestan við lóðir þeirra Haralds Sigurðssonar og Daníels Davíðssonar. 15.2 metrar frá suðri til norðurs 14.2 metrar frá austri til vesturs samtals 246 fermetrar.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa snikkara Þorsteini Sigurðssyni. Lóð liggur vestanvert við alfaraveginn 100 álnum fyrir sunnan kauptúnssstæðið á Sauðárkrók 50 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 80 álnir á breidd frá austir til vesturs. Samtals 4000 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Pétri Eiriksen. Lóðin liggur vestanvert við alfaraveginn frá því 5 álnum norðan við Hallgrímshús og 1 álin vestan við húsið. 60 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 30 álnir á breidd frá vestri til austurs samtals 1800 ferhyrningsálnir.
Handskrifuð pappírsgögn í misjöfnu og misstóru ástandi, langir renningar og stærri skýrslueyðublöð, gögnin eru sett í ártalaröð og vegna óvenjulegrar stærðar gagna eru þau sett í uppunalegt brot eins og þau komu fyrir í safni.
Handskrifuð stílabók um útlán bóka. Bókin er í góðu ástandi en ódagsett. Aftast í bók kemur fram listi yfir bókagjöf Jóhanns og Maríu á Ljósalandi . Útgáfudagur bóka kemur þar fram og er sett hér fram sem dagsetning.
Bókin er óinnbundin og línustrikuð og hefur verið nýtt til að skrá útlán og skil á bókum, fyrstu færslurnar eru frá 1913-1926. Binding bókarinnar er í slæmu ástandi að öðru leyti hefur hún varðveist ágætlega. Í bókinni er laus blöð með lögum félagsins ódagsett og óundirrituð.
Bókin er innbundin stílabók í stærðinni 22,5 x 18 sm. Í hana eru færð útlán félagsins á árunum 1939-1953. Búið er að klippa nokkrar blaðsíður fremst úr bókinni.
Stílabók með görmum á kili, mynd af kisu á bókakápu. Bókin er handskrifuð línustrikuð í góðu ástandi. Útektir eru skráðar á bæjarheiti, ártal og bókaheiti.
Stílabók handskrifuð með upplýsingum um útlán til heimila og þau nefnd, ásamt dagsetningum. Bókin er í góðu lagi, en hún er skráning um síðustu ár félagsins og ekki mikið skráð í bók.
Stór blá stílabók, handskrifuð í góðu ástandi. Segir frá útleigu bóka félagsins. En aftast er skráð fundagerð frá 1978, þar segir meðal annars: Lögð hefur verið fram tillaga stjórnar um að afhenda hreppnum bókasafn félagsins. Safnið er nú nær eingöngu fjármagnað af hreppsfé fyrir liggur að ráða bót á húsakynnum safnsins og því þykir stjórn eðlilegt að safnið verði í eign og umsjón Sveitafélagsins.
Pappírsgögn sem innihalda umsóknir um dagpeninga úr sjúkasjóði, einnig eru veikindavottorð frá læknum í safninu. Um persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar er að ræða.
Í safninu eru forprentuð og handskrifuð skjöl í afriti með yfirlit yfir greiddar atvinnuleysisbætur, einnig vélrituð dagpeningavottorð með stimpli frá vinnumiðlun Sauðárkrókskaupstaðar (sum skjölin eru í tvíriti) og umsókn um örorku- ellilífeyri. Á skjölunum eru persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar.
Innbundin og handskrifuð bók með færslum um úthlutun atvinnuleysisbóta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Innbundin og handskrifuð bók með færslum um úthlutun atvinnuleysisbóta. Bókin er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Erlend nótnahefti, merkt Stefáni Guðmundssyni. Ítalía um 30 eintök sum í tvíriti. Einnig eru eintök þar sem mynd af Stefáni kemur fram á forsíðu nótnabókar.
Nótnahefti Brúðan hennar Bellu; Sigfús Elíasson. Til Ingu; Sigfús Elíasson Svefnfriður og krakkar; Sigfús Elíasson 24 sönglög; Bjarni Þorsteinsson Kveðja riddarans; Sigfús Elíasson Vornótt; Ljóð Stefán Jónsson og lag Ingibjörg Þorbergs. Þrír mansöngvar; Þorsteinn Guðmundsson Ljúflingar; Sigvaldi Kaldalóns Strengleikar; Lög Jónas Tómasson, ljóð Guðmundur Guðmundsson Serande; ljóð Percy B. Shelley, lag Björgvin Guðmundsson Tónhendur 1. hefti; Björgvin Guðmundsson Tvö sönglög; Björgvin Guðmundsson Dauðs manns sundið; Björgvin Guðmundsson Í dalnum; Björgvin Guðmundsson Tvö sönglög; kvæði Tómas Guðmundsson, lög Einar Markan. Tólf söngvar; Jóhann Ó. Haraldsson Sigling inn Eyjafjörð og aðrir söngvar; Ljóð Davíð Stefánsson og lag Jóhann Ó. Haraldsson 22 vísnalög; Sigfús Einarsson. Þrjú sönglög; Sigurður Þórðarson Íslensk þjóðlög; Sv. Sveinbjörnsson Den hvide pige; kvæði eftir Friðrik Á. Brekkan, lag Sigvaldi Kaldalóns 24 sönglög; Bjarni Þorsteinsson, prestur í Siglufirði.
Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu minningagreinum, greínum og ræðum af samferðamönnum og konum Gísla og hann ritaði minningar um. Gögnin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, Gögnin eru flokkuð eftir ártalaröð eins og þau koma fram í safni og eftir meðfylgjandi skrá sem liggur í safni. Þau eru sett saman eftir áratugum og haldið er eins mikið í uppruna og hægt er, en hreinsun á sér stað á heftum og bréfaklemmum. Elstu gögnin eru handskrifuð. og meðfylgjandi umslög fylgja. En prentuðu gögnin eru oft á tíðum prentuð aftan á öllur gögn í eigu Gísla, nýttur pappír.
Níu pappírskjöl í ýmsum stærðum. Minnisblað og reikningar vegna útfararkostnaðar Jónínu Jónsdóttur. Skjöl 4- voru límd saman með límbandi og strimill úr reiknivél límdur við.