Rímnabókin Æfintýrið Jóhönnuraunir. Á titilsíðu stendur: "Æfintýrið Jóhönnuraunir. Snúð af þýsku undir íslenzk fögur rímnalög af Snorra Bjarnasyni presti til Staðar í Aðalvík 1741 og síðan að Húsafelli 1757-1803. Útgefandi: Þorlákur Reykdal. Þriðja útgáfa. Reykjavík 1904. Prentsmiðja Frækorna." Bókin er innbundin í stærðinni 8,3x15,7 cm. Kápan er aðeins farin að losna en bókin heilleg að öðru leyti.
Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.
Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum. Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.
Útgefið hefti í stærðinni 18,5 x 12,5 cm. 16 bls auk kápu. Höfundur gefur út, gefið út í Reykjavík 1953. Höfundurinn, Sveinbjörn Beinteinsson, notaði höfundarnafnið Svalkaldur.
Rímur af Finnboga ramma voru ortar af Guðmundi Bergþórssyni (1657-1705) árið 1686. Á titilsíðu handrits segir: "Rímur af Fimboga ramma kveðnar af Guðmundi Berþórssyni og nú að níu skrifaðar Árið 1844". Ekki vitað hvert ritaði þetta handrit.[1]
"Rímur af Gunnari Hámundarsyni, eftir Kolbein Grímsson, 16 að tölu, ortar fyrir Magnús Jónsson sýslumann í Strandasýslu." Líklega eina handritið sem til er af þessari rímu. "Eitt eða fleiri erindi vantar aftan af handritinu. Neðsta ljóðlína er upphaf að nafngátu höfundar." Í Rímnatali er talið víst að höfundur sé Kolbeinn jöklaraskáld og líklega er handritið sjálft ritað seint á 17. öld.[1]
Rímur af Reimari og Fal enum sterka, kveðnar á Brokey, 1832. Það vantar fyrstu blaðsíðurnar því er ekki vitað hvaða útgáfa þetta er. Úr fórum heimilisfólksins á Litlu-Gröf.
Framan á hefti er "Ríma af Gismondi sæfara" eftir Hallfreð vandræðaskáld. Ísleifur Gíslason skrifaðo undir því dulnefni Aftan á hefti eru "Brottrekstrar vísur". Enginn höfundur nefndur.
Bæklingur í stærðinni 18,1 x 12,5 cm. Sálin hans Jóns míns. Ríma. Eftir Pétur Jakobsson. Þriðja útgáfa, aukin, endurbætt og ort án kenninga. Prentað á kostnað höfundar Reykjavík 1953. Alls 30 bls, auk kápu. Ástand ritsins er gott. Alls 12 bls., auk kápu.
Rímnabókin Varabálkur. Á titilsíðu stendur: "Varabálkur, kveðinn af Sigurði hreppstj. Guðmundssyni. Kostnaðarmenn: Björn Jónsson, Stefán Stefánsson. Akureyri, Pretnaður í prentsmiðju Norður- og austur amtsins. B.M.Stephánsson. 1872." Bókin er innbundin í stærðinni 10,5x16,2 cm. Ástand hennar er gott en síðurnar nokkuð upplitaðar.