Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggðasamlags um rekstur skólaskrifstofu Skagfirðinga, fulltrúaráð. Fundir frá 2. maí 1996-25. febrúar 1997 (2 fundir). Bls. 1-10 eru útfylltar. Með liggur undirskriftablað frá 27. mars 1998 en engin fundargerð frá þeim fundi.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggingarnefndar Grunnskóla Sauðárkróks 14.01.1998-03.10.2001. Bls. 1-31 útfylltar. Með liggja fundargerðir á lausum, prentuðum blöðum, nr. 25-30.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í folio broti, alls fjórar síður. Hún varðar fjáröflun fyrir bókakaupum á Vífilsstaði. Nöfn sjúklinga eru rituð á örkina og aftan við þau niðurstaða atkvæðagreiðslu. Nafn Kristjáns C. kemur fyrir, en hann var á Vífilstöðum á árunum 1923-1926. Skjalið er farið að rifna í brotum en annars er ástand þess gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni eru uppskriftir af fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1919-1926, fróðleikur um blaðið Vísi sem félagið gaf út. kafli úr sveitarlýsingu Holtshrepps árið 1900 eftir Hannes Hannesson, annáll 1937-1950 og fleiri frásagnir og ljóð úr Fljótum. M.a. eftir Hannes Hannesson. Ástand bókarinnar er gott.
Fundargerðin er ljósrituð á tvær pappírsarkir A4 stærð. Hún varðar aðalfund félagsins 1999. Neðst á seinna blaðið er ljósritað fundarboð. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á eina pappírsörk í A5 stærð. Með liggur ljósrit af fundargerð 4. mars 1998, tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar ýmis málefni veiðifélagsins. Ástand skjalsins er gott.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.
Bókin er innbundin í stærðinni 22 x 30 sm. Síðurnar eru ótölusettar en alls eru 73 skrifaðar síður. Með liggja bréf frá Agli Bjarnasyni, dags. 4.12.1973 og Landgræðslu ríkisins 7.11.1989.
Skjalið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Um er ða ræða eftirti úr fundargerð undirbúningsfundar fyrir sýslufund. Skjalið er mjög upplitað.
Fundargerð frá námsstjórafundi með barnakennurum úr Húnavatnssýslum, Skagafjarðarsýslu, Sauðárkróki og Siglufirði, fundurinn var haldinn á Sauðárkróki 1962.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni er uppskrift af frásögn eftir Friðfinn Jóhannsson á Egilsá,frásögn eftir Skapta Stefánsson á Nöf, frásögn úr útvarpinu af kaupstaðarferð úr Héðinsfirði til Siglufjarðar, fróðleikur um þilskipaútgerð, uppskriftir af nokkrum fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1921-1926, fróðleiksmolar um Siglufjarðarskarð og frásögn úr Fljótum. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja þrjú minnisblöð.
Laus blöð sem heftuð hafa verið saman og stílabókarkápu brugðið utan um. Fundargerðir fundarhalda hjá nemendum í Ungmennaskóla Sauðárkróks 1936-1944. Ástand skjalanna er gott.
Fundagerðin er rituð á pappírsörk í A4 broti, alls fjórar skrifaðar síður. Hún varðar stofnfund félagsins, sem haldinn var á Hólum í Hjaltadal 07.07.1918. Nokkrir blekblettir eru á skjalinu og það er farið að rifna í brotum en annars er ástand þess gott.
Innbundin fundargerðarbók. Fundagerðir stýrihóps um Staðardagskrá 21. Fundir 14.05.1999-30.04.2002 (nr 1-46). Ein vélrituð fundargerð er laus með í bókinni.
Fundargerðin er handskrifuð á eina pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar sameiginlegan fund stjórna veiðifélaga Miklavatns og Sæmundarár. Ástand skjalsins er gott.
Fundargerðin er handskrifuð á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Hún varðar sameiginlegan fund stjórna veiðifélaga Miklavatns og Sæmundarár. Ástand skjalsins er gott.