Bæklingur í stærðinni 17,8 x 11,4 cm. Jón Arason Hólabiskup. Fæddur á Grýtu í Eyjafirði 1484. Hálshöggvinn í Skálholti 7. nóv 1550. Alls 4 bls bæklingur með ljóði eftir Pál Ólafsson. Bæklingurinn er áritaður: "Til hr Árna Þorkelssonar. Vinsaml. frá höfundi. Alls 12 bls., auk kápu.
Útgefið rit í stærðinni 22,5 x 14,2 cm. Hólaljóð. Biskupsvígsla á Hólum 10. júlí 1910, er vígður var Geir biskup Sæmundsson. Skáldið Matthías Jockumsson flutti ljóðið í Hóladómkirkju á vígsludaginn. 8 bls. Félagsprentsmiðjan 1910.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kostnað við úttekt á Hólum. Með liggur símskeyti á handskrifuðu eyðublaði, sem varðar sömu úttekt. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Það varðar kvaðningu sýslumanns til að vera viðstaddur matsgjörðir vegna afhedingar leigutaka á skólajörð og búi á Hólum. Með liggur ljósrit af samkoulagi milli Stjórnarráðs og Sigurðar Sigurðssonar um afhendingu á jörð og búi á Hólum. Einnig ljósrit af bráðabirgðasamningi milli Stjórnarráðsins og Páls Zophoníassonar. Jafnframt ljósrit af skipun matsmanna fyrir hönd sýslumanns. Enn fremur 15 seðlar þar sem taldir eru upp munir sem fylgja eigninni. Ástand skjalanna er gott.
Fjórir drengir á Hólum í Hjaltadal. Hóladómkirkja í baksýn. Tilgáta: Jón Norðmann Jónsson lengst til vinstri og Sigurgeir Snæbjörnsson lengst til hægri.
Tekið á Hólum áður en lagt var af stað til Sauðárkróks veturinn 1921- frá vinstri: Gunnar Valdimarsson á Víðimel- Ásmundur Eiríksson frá Reykjarhóli í Fljótum- Páll Jónsson frá Brekkukoti og Óli Hjartarson frá Ási í Kelduhverfi. Gefandi: Gunnar Valdimarsson á Víðimel 17.07.1978. Klæða sig í bestu brók bæði Páll og hinir sigla nú á Sauðárkrók sannir kvennavinir. Benjamín Sigvadason
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar erindi Búnaðarféalgs Hólahrepps um styrk til byggingar klakstöðvar. Ástand skjalsins er gott.
Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).
Listinn er handskrifaður á tvær pappírsarkir í folio broti, alls átta síður. Hann nær yfir hluti sem keyptir hafa verið í safnið, óljóst er á hvaða tímabili. Listinn er sundurliðaður eftir bæjum. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.
Gengið til Hóladómkirkju á Hólahátíð 1956 en þá var þess minnst að 850 ár voru frá því biskupsstóll var fyrst á Hólum. Fremstir í göngunni eru Hermann Jónasson forsætisráðherra (t.v.) og Ásmundur Guðmundsson biskup (t.h.).
Hólahátíð árið 1956 en þá var þess minnst að 850 ár voru frá því að biskupsstóll var fyrst á Hólum. Hermann Jónasson forsætisráðherrra (t.v.) og Ásmundur Guðmundsson biskup (t.h.).
Á Hólahátíð sennilega 1956, en þá var þess minnst að 850 ár voru liðin frá því Hólar urðu biskupsstóll. Maðurinn fjærst t.h. er sennilega Páll Þorgrímsson í Hvammi.
Prentuð skjöl frá Stíganda um kappreiðar á Vallabökkum, og dómar stóðhesta og hryssur frá Landsmóti á Hólum. Eitt erindi frá Landssambandi hestamannafélaga. Mynd er sýnir Heiðursfélaga félagsins Sr. Gunnar Gíslasson, Sigurjón Jónasson, Björn Ólafsson og Sigurð Óskarsson og á bak við þá er mynd af fyrsta stóðhesti Stíganda, Sokki frá Ytra -Vallholti.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð og er gjafabréf til Hóladómkirkju, til minningar um Gísla Sigurðsson og Kristínu Björnsdóttur er bjuggu í Neðra-Ási í Hjaltadal. Gefið af börnum þeirra. Staðfesting á afhendingu bankabókar er handskrifuð á bréfið og undirrituð af Kristjáni Eldjárn, síðar forseta.