Skjölin eru í mismunandi ástandi sum rifin, blöð gulnuð og ryð eftir hefti. Skjölin eru ýmist prentuð, vélrituð eða handskrifuð afrit, á fínum flugpappír og þegar safnið yngist verða gögnin að mestu útprentuð og með stimplum (logo) þeirra stofnanna sem þau koma frá. Allt safnið segir sögu félagsins, skjölin eru að mestu leyti vel læsileg. Safnið var látið halda sér eins og það birtist í safni í ártalsröð og nánast í upprunalegum örkum en skráning leiðrétt.
Trúnaðargögn sett sér í örk, með sínum gögnum og taka á þau úr safni áður en safn er skoðað og persónugreinanleg trúnaðargögn liggja í safni.
Mygla fannst í gögnum og voru þau ryksuguð og hreinsuð, ásamt því að hefti, bréfaklemmur og plast voru fjarlægð.