Print preview Close

Showing 63376 results

Archival descriptions
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

38694 results with digital objects Show results with digital objects

Viðskiptabækur

Tvær viðskiptabækur, önnur frá Landsbanka Íslands og hin frá Útvegsbanka Íslands í Vestmannaeyjum.
Þær fylgdu gögnum Tryggva og virðast því hafa verið í eigu hans eða Odds, sonar hans.
Ástand þeirra er gott.

Tryggvi Guðlaugsson (1903-1994)

Viðskiptabækur

Viðskiptabækur hjá innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróks. Önnur þeirra er merkt Skarphéðni G Þórissyni og hin Arnþóri Blöndal. Þeir voru á Litlu-Gröf á sumrin.

Magnús Blöndal faðir Arnþórs hafði alist upp á Litlu-Gröf með Gullu og Þóri.

Víðinesbardagi 1208

Víðinesbardagi. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir.
"Víðinesbardagi í Hjaltadal 1208. Biskup sat á hesti og með honum ábótar og nokkrir prestar og kallaði að eigi skyldi berjast. Að því gáfu engir gaum. Sannaðist í þessum atburði að ekki verður ófeigum í hel komið eða feigum forðað. Í bardaganum fékk Kolbeinn stein í höfuðið og féll í öngvit og missti mál og mátt." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 16).

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Víðilækur í Varmahlíð

Kaupsamingur og afsal vegna Víðilæks sem var sumarbústaður í eigu Árna og Maríu, einnig lítil skrifblokk með lista yfir innkaup vegna framkvæmda við bústaðinn. Eitt skjal með lista og útskýringum er varða val á skífu - ekki liggur fyrir hverju það tengist en skjalið var sett með kaupsamningsskjölunum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Viðburðabæklingar

Kynningarbæklingar og blöð með upplýsingum um viðburði innan Skagafjarðar. Í safninu eru einnig upplýsingabæklingar um viðburði og dagskrá Laufskálaréttar helganna. Ekki er um samfellt safn að ræða, t.d. vantar nokkur ártöl inn í.

Viðburða dagskrár

4 dagskrár fyrir viðburði sem haldnir voru í Hóladómkirkju, dagskra Hólahátíðar 1997 og 2001. Dagskrá fyrir tónleika sem haldnir voru í Hóladómkirkju 2002 og viðburð sem kallaðist "Likfylgd Jóns Arasonar" og er án ártals en á dagskránni er handskrifað með blýanti 6/7 2003.

Viðbótarskattskrá 1978

Viðbótarskattskrá Akrahrepps fyrir árið 1978. Skráin er tölvuútprentun, 2 pappírsarkir í folio stærð.

Akrahreppur (1000-)

Viðar, Sveitablað Viðvíkurhrepps

Fyrsta blaðið hefst á ávarpi.
Á fundi í Kolkuósi laugardaginn 21. nóvember 1914 var ákveðið að gefa skyldi út sveitablað fyrir Viðvíkurhrepp yfirstandi vetur og voru í ritnefnd kosnir Hartmann Ásgrímsson kaupmaður í Kolkuós, Guðbrandur Björnsson prestur í Viðvík og Bessi Gíslason Í Kýrholti. Það þýðir ekki að hafa langan formála fyrir útgáfu blaðsins. Hér er engu tilkostað og því ekki um neina verulega ritmennsku að ræða. Blaðið kemur út til þess að skemmta sveitinni í skammdeginu og einnig til þess að veita mönnum kost á að ræða áhugamál sín með stillingu og gætni, en með fullri einurð. Ég vonast til svo góðs af lesendum að þeir færi til betri vegar ófullkominn stílsmáta og ritmennsku. Heyrt höfum við raddir um að farið geti svo að blaðið veki sundrung innan sveitarinnar, því menn kenni að lenda í hita og persónulegum deilum. Vér erum ekki svo smeikir um slíkt- vitum að hér í hreppnum búa friðsemdarmenn, sem vér treystum að rætt geti áhugamál sín með gætni og án persónulegra árása, enda mun ritstjórnin gera sér far um að taka þær greinar í blaðið sem ekki meiði neinn einstaka mann, hitt ætlum vér lesendum að þeirséu svo þroskaðir að þeir ekki reiðist þótt fundið sé að ýmsu með fullri einurð og skynsamlegum rökum. Blaðið vill aðalega ræða um almenn sveitamál og annað er lýtur að heimilisháttum og lífernismáta alþýðu, en vill algerlega hliðra sér hjá stjórnmálum. Kynnisgreinum og kveðskap veitir það feginshendi viðtöku. Æskilegt er að sem flestir leggi orð í belg og er framtíð blaðsins undir því komið. Við látum þá þetta blað frá oss fara í þeirri von að það mæti góðum viðtökum hjá sveitamönnum og verði til þess að glaða áhuga sveitamanna á hverskonar framförum og samtökum, sem til heilla horfir fyrir einstaklinginn og félagsheildina, einnig að það skemmti góðfúsum lesara og veki hann til sjálfstæðra íhugunar og athugunar.

Viðar, 5 bók (2. árg., 3. tbl.)

Viðar, sveitablað Viðvíkurhrepps 1916. Meðal efnis er grein um hreppsveg, skemmtanir, hjónabandsástir, karlmennskusaga, kveðskapur og ýmislegt fleira. Í ritnefnd sátu: Hartmann Ásgrímsson, Bessi Gíslason, Guðbrandur Björnsson.

Viðar 4. bók

Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.

Við Vesturósinn

Ljósmynd tekin við ferjuhús Jóns Ósmann, fyrir ofan dyr stendur Emanuel sem er fjöl úr skipinu sem strandaði 13. september 1906. Jón Ósmann er þriðji frá vinstri

Við Svartahúsið

Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.

Við skrifborð

Jóhann Sigurjónsson Laxamýri við skrifborð og kona hans.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Við Sauðá

Mynd tekin á Sauðárkróki, Sauðáin rennur neðan við Sauðárhæðir. Í baksýn má sjá Esso sjoppurnar, eldri sjoppan nær og nýja fjær. Reiðskóli Ingimars Pálssonar

Við Poppsverslunina

Sunnan við L. Poppsverslun. Á myndinni eru Christian Popp, Paula Popp og sonur þeirra Louis er á hesetinum, frk. Ingrid Hansen kennslukona og óvíst er um nafn mannsins til hægri.

Við Nýjabæ á Hólum

Börn á hestbaki fyrir framan Nýja bæ á Hólum. Kristinn Michelsen með hatt, Aage stendur við hestin. Á hestinum eru Edda Michelsen (1943-), Anna Lísa Michelsen (1943-) og Jörgen Frank Michelsen (1941 - 1998).

Við bát

Tilgáta Christian Popp lengst til vinstri aðrir óþekktir en eins og unnið sé að bát.

Ingrid Hansen (1884-1960)

Við ána

Nafn höfundar er ekki skráð en líklegt er að Jón Jónsson Skagfirðingur hafi ort kvæðið þar sem Guðjón Ingimundarson virðist hafa vélritað mikið af kvæðum Jóns og fannst þetta í sömu möppu og kvæði eftir Jón.

Vettvangur

Vettvangur blað frjálsra skoðanaskipta var gefið út á Sauðárkróki á árið 1978. Ábyrgðarmaður var Hreinn Sigurðsson. Myndprent, Sauðárkróki sá um setningu og prentun. Út komu 10 tölublöð.

Vettvangur (1978-1979)

Results 1276 to 1360 of 63376