Gögnin skiptast annars vegar í persónuleg gögn og hins vegar í gögn Fiskifélagsdeildar Hofshrepps, Hofsósi. Gögn fiskifélagsdeildar Hofshrepss innihalda fundargerðir (bók og á lausum síðum) og uppkast að lögum. Persónulegu gögnin innihalda ljósmyndir, sígarettumyndir, samúðarskeyti, sendibréf, hjónavígslubréf og vitnisburður um einkunnir í skóla.
Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur frá Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Vestmannaeyjum. Hrefna segist nú vera flutt til Reykjavíkur og ætli sér að hætta að skrifast á við Sigurð, þetta sé því síðasta bréfið frá henni.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Hann sendir Sigurði nýárskveðjur og spyr hann spurninga varðandi útvarpstæki sem Sigurður hefur í Hátúni og hvernig það virkar.
Uppkast að bréfi sem Sigurður skrifar til pennavinkonu sinnar Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður er að lýsa sjálfum sér sem og þeim aðstæðum sem hann býr við í Skagafirði.
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður skrifar pennavinkonu sinni og segir henni frá því hvað hefur á daga hans drifið frá því hann skrifaði henni síðast.
Bréf frá Gunnlaugi bróður Halls. Gunnlaugur skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur á leið sinni heim frá Laugarvatni. Gunnlaugur stoppaði í Reykjavík til að vinna í nokkrar vikur áður en hann héldi norður í land.
Bréf og erindi sem hafa borist hreppsnefnd og oddvita. Bréfin eru að stórum hluta erindi vegna fátækrastyrks og erindi frá sýslumanni vegna mála sem tekin voru fyrir sýslunefndarfundi. Einnig talsvert af umsóknum um ræktunarland í landi Sauðár.
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir. Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar. Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
5 handskrifuð bréf frá Elsu Þuríði til Guðlaugar. 1 úrklippa úr blaðinu "Laugarnesskólinn" sem sýnir sýnishorn úr ritsmíðum og teikningum nemenda skólans. Þar er lítil grein eftir Elsu.
Í umslagi er 4 farmiðar með bíl í skemmtiför Tindastóls. Bréf vegna leikrits ljóð fréttabréf bréf vegna styrkbeiðna Fyrirmæli Í.S.Í. um íslenska glímu Og fleira.
Bréf frá U.M.F.S og U.M.F.Í, símskeyti, ársreikningur og aðalreikningur Í.S.Í, Ýmsar skrár frá Í.S.Í með metaskrám, löggiltum íþróttabúningum og fleira. Skjöl vegna afmælisfagnaðar, Aðalfundargjörð sambands ungmennafélaga Skagafjarðar og fleira.
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Fremstu síðuna vantar. Efni bréfsins er ættfræði, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á þrjár pappírsarkir í A4 stærð. Það varðar innbindingu á bókum og ættfræði. Upplýsingar eru í bréfinu um m.a. Jón Auðunsson, Kristján og Sigurjón. Einnig fréttir af fjölskyldu Eiríks. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Efni bréfsins er efni sem Pétur hefur sent honum með birtingu í Heima er bezt í huga, störf Eiríks í prentsmiðju á Akureyri og fréttir af fjölskyldunni. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls 4 síður. Það varðar muni sem vantar í Byggðasafnið og hugmyndir um að láta smíða þá. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar bréf sem móðir Minnu fékk frá fósturforeldrum sínum og einnig dagbók Steinunnar Ingibjargar Guðmundsdóttur. Með liggja tvö ljósrit úr dagbók og 21 pappirsörk í A4 stærð sem er uppskrift úr dagbók. Einnig ljósrit af umslagi sem bréfið frá Minnu hefur borist í. Ástand skjalanna er gott.
7 albúm, nokkur umslög, leikfélagsmyndir frá Kára Jónssyni, Bréf frá Stefáni Jónssyni arkitekt, uppdráttur af húsaskipan bændaskólans á Hólum. 80 ljósmyndir og 104 filmur úr dánarbúi bakarahjónanna Guðjóns og Ólínu.
Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Kristín telur upp kosti og hæfileika Karlottu í bréfinu og gefur henni sín bestu meðmæli.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.