Ýmis gögn tengt Ungmennafélaginu Tindastóli sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Gjörðabók, afrit af fréttum, fundargerð knattleikjaráðs Skagafjarðar, drög að reglugerð vegna ungmennafélags bikars og að lokum auglýsingar frá skíða- og sunddeildum Tindastóls.
Askjan inniheldur fjórar innbundnar og handskrifaðar fundargerðarbækur, sú elsta er frá 1905, innihald þeirra eru fundargerðir, reikningshald, lög og félagatal. Bækurnar hafa allar varðveist mjög vel og eru í góðu ástandi.
Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.
Gögnin innihalda m.a Fundargerðir, Ársþingskýrslur og Mótaskrá U.M.S.S sem er mjög umfangsmikil, haldin voru mörg mót s.s. Tugþrautarmót, Unglingamót, Meistaramót, Bikarmót og Norðulandamót svo fátt eitt sé talið. En í UMSS gögnum eru líka heimidir frá aðildarfélögum s.s Tindastól knattspyrn og sund. Gögnin eru pappísrsgögn og bæklingar í misjöfnu ástandi einhver rifin og blettótt.
"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."
Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm. Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina. Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970. Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi. Ástand bókarinnar er gott. Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.
Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Harðspjalda bók sem inniheldur upplýsingar um ársreikninga þ.e. tekjur, gjöld, eignir, skuldir, meðlimatal og skýrslur Bindindisfélagsins Tilreyndin í Óslandshlíð frá 1903 - 1922 og svo í framhaldi sömu upplýsingar um Ungmennafélagið Geisla frá 1923 - 1989. Bókin er heilleg en blaðsíður blettóttar.
Stílabók í A5 broti. Í hana eru handskrifaðar regluferðir UMFT. Ástand bókarinnar er gott. Með liggur blað í A4 stærð sem á eru skrifaðar einhvers konar hugleiðingar eða uppkast að grein eða ræðu um nafngift Sauðárkróksbæjar.
Skjöl úr dánarbúi Péturs Guðmundssonar á Hraunum í Fljótum. Einkum kveðskapur, gögn viðvíkjandi Búnaðarsambandi Skagfirðinga og Ungmennafélagi Holtshrepps.
Minnisbækur Guðjóns Ingimundarsonar, flestar þeirra tengjast bæjarstjórnarmálum en einnig má finna þar punkta um starfsemi hans innan KS og ungmennafélaganna. Jafnframt er elsta minnisbókin frá því hann var á Laugarvatni.
Sveitablaðið Máni, blað Málfundarfélagsins Vonar í Stíflu, Fljótum. Ritnefnd: Jón Gunnlaugsson. Páll Sigurðsson og Hannes Hannesson. 1. tbl., 11. árg. til 8. tbl., 11. árg.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin vel læsileg og inniheldur lög og nafnaskrá yfir félagsmenn og konur. Bókin hefur varðveist sæmilega.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru endurbætt lög og reglur félagsins dags. 13.3.1960. Listi yfir heiðursfélaga og félagatal. Bókin er í góðu ásigkomulagi en blaðabindingin er aðeins farin að losna frá.
Ýmis gögn tengd UMFÍ, ÍSÍ, FRÍ, SSÍ, KSÍ og fleiri íþróttafélögum og samböndum sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar og tengjast starfi hans innan íþróttahreyfingarinnar. Guðjón var varaformaður Ungmennafélags Íslands 1965-1983 og í sambandsráði Íþróttasambands Íslands um árabil.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist vel og er í góðu ástandi. Líklega hefur bókin blotnað en blekið er heillegt og skiljanlegt. Fyrstu blaðsíðurnar eru orðnar nokkuð snjáðar og aðeins farnar að losna frá bindingunni. Í bókinni eru lög og reglur ungmennafélagsins, einnig eru undirskriftir 70 félagsmanna. Auk fundargerða eru líka ferðasögur.
Innbundin og handskrifaðar fundargerðir. Í bóknni eru þrjú laus blöð, handskrifuð með fundargerð sem er dagsett 16.04.1990. Á fyrstu tveimur síðum bókarinnar er samningur sem Ungmennafélagið Æskan og Ungmennafélagið Fram gera með sér um eignarhlut í félagsheimilisbyggingunni í Varmahlíð, dags.14.4.1967.
Fundargerðabækurnar eru sex og í misjöfnu ástandi og misstórar. Þær eru frá árunum 1917 - 1984. Blöðin nokkuð trosnuð og rifin eða blöð hafa losnað. Allar handskrifaðar og eru merktar með Gjörðabók Ungmennafélags Höfðstrendinga eða Fundagerðabók U.M.F.H. Í þessum bókum eru fundirnir útlistaði og greinilegt er að miklu er áorkað til samfélagsins og mikið og gott ungmennastarf unnið.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist mjög vel og er mjög heilleg.í bókinni auk fundargerða, eru reikningar félagsins og skýrsla um þátttöku félagsmanna í keppnum.
Gjörðabók Ungmennafélags Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudaginn 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Tvö handskrifuð blöð frá aðalfundi 1908 26. jan til vor 1914. Þar sem gerð er grein fyrir hvenær fundir eru haldnir og hverjir ganga í og úr félaginu. í lok bréfs segir þá er ekki hægt að rekja útdrátt úr gjörðum fél lengra því findargjörðir eru ekki fyrir hendi um störf 14.09.1914 - 16.01.1929. Blöðin eru línustikuð og þétt skrifað er á blöðin, þau eru læsileg og í ágætu ásigkomulagi.
Fréttabréfið er 28 síður í A5 broti, fjölritað. Það er gefið út í nóvember 1977. Það varðar starfsemi sambandsins. Með liggur auglýsing um stöðu húsvarðar við félagsheimilið Miðgarð. Ástand skjalsins er gott.
Fréttabréfið er 20 síður í A5 broti, fjölritað. Það er merkt 1. fréttabréf og er gefið út í mars 1977. Það varðar starfsemi sambandsins. Ástand skjalsins er gott.
Fréttabréfið er 4 síður í A5 broti, fjölritað. Það er gefið út í í júní 1979. Það varðar starfsemi sambandsins. Með liggur auglýsing um stöðu húsvarðar við félagsheimilið Miðgarð. Ástand skjalsins er gott.
Blaðið er í stærðinni A4. Það er fjölritað, heftað og kjallímt. Það telur 28 bls., auk kápu. Í þessu tölublaði er rakin saga félagsins, kveðskapur, fréttir af starfsemi þess og ýmsar aðrar fréttir viðkomandi félagssvæðinu.