Prenta - forskoðun Loka

Sýnir 63382 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

38685 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Síða 4, bakhlið

Þessi síða hefst á níðvísu um Jóa Sölvason, þeirri sömu og birtist sem grafskrift á bakhlið síðu þrjú, en hér hefur öðru erindi verið bætt við. Í framhaldinu fer frásögn sem undirstrikar skoðun Sölva á manninum.

„Segir þannig frá …“

„Segir þannig frá: að þá kom hann í Fnjóskadal,“
Hallgrímur Bjarnason og Hallgrímur Gíslason eru nefndir í þessum texta sem er einn samfeldur reiðilestur sem virðist beint að þeim tveimur.

Um Jón Bergþórsson frá Öxará

Þessi texti fjallar um bón Jóns Bergþórssonar en hann vildi fá upphafsstafi sína skrautritaða. Nokkuð sem Sölvi gerði stundum fyrir samferðamenn sína og velgjörðarmenn. Líklega var Jón þessi fæddur 1797 og dó 1877.

Síða 01, framhlið

Fyrirsögnin er mynduð úr nokkrum útgáfum af skrautskrifuðum upphafstöfum Jóns Bergþórssonar.
Frásögnin hefst á því að Sölvi greinir frá bón Jóns Bergþórssonar um að hann riti upphafsstafi hans í skrautskrift. Sölvi hefur væntanlega hafnað þeirri bón ef marka má einkunnina sem Jón fær. Hann úthúðar fleiri mönnum þarna í sveit án þess að nafngreina nein sérstakan en blaðsíðan endar á trúarlegri lofgjörð um mikilvægi þess að fylgja Guði.

Um slæma vist i Keldunes

Hér lýsir Sölvi vistinni hjá Jóhanni Pálssyni (1821-1862) og Margréti konu hans í Keldunesi. Honum líkar vistinn greinilega ekki vel og þykir nóg um róginn, lygina og fyrirlytninguna. Hann líkir frúnni m.a. við Gróu á Leiti.

Reiðilestur og ráðleggingar

Fyrri hlið síðunnar er reiðilestur yfir einhverjum ónafngreindum þó kemur nafnið kristján við sögu í lokin.
Bakhliðin virðist vera óskyld framhliðinni en þar er Sölvi ávarpaður og honum lagðar lífsreglurnar. Hvernig hann ætti helst að haga sínu lífi.

Síða 1, bakhlið

Virðist ekki vera sama örkin og síða 1 framhlið. Efst á síðunni er fjallað um stjörnufræði fjarlægir hina ýmsu stjarna frá sólinni. Síðan berst umfjöllunin að höfðingjum og meðferð þeirra á alþýðunni. Umfjöllunin er almenn og engir eru nafngreindir sérstaklega.

Síða 1, framhlið

Það vantar greinilega bæði framan og aftan á þessa umfjöllun en það virðist vera sem Sölvi sé að draga upp sína túlkun á Ásatrúnni, gæti jafnvel verið að samræma hana sinni kristnu heimsmynd. Efst á síðunni er kunnugleg lýsing á útliti Valhallar en eitthvað vantar framan á þá umfjöllun. Því næst tekur við lýsing á því hverjir eigi greiða leið í Valhöll og hverjir eiga vísa vist í Hel. Því næst er Nirði, Frey og Freyju gerð nokkur skil. Fyrri síðunni líkur á umfjöllun um nokkra konunga fornaldarsagna sem hafa að mati Sölva göfug gildi sem ekki eru líkleg til að tryggja þeim vist í Valhöll. Meðal annars er þar lýst Hrólfi Kraka og einkennum í hans fari sem nutu hylli þegna hans, einkennum sem Sölvi segir að kristnir menn hafi tekið sér til fyrirmyndar.

Um helstu náttúrufyrirbæri á Íslandi (nr. 16)

Ýmsar tölulegar upplýsingar um náttúrufyrirbæri á Íslandi. Eins og t.d. lengd vatnsfalla og hitastig þeirra og hitastig Geysis og ýmsar aðrar upplýsingar um hverinn. Einnig er gerð grein fyrir hæstu fjöllum og legu landsins á jarðarkringlunni, stærð þess og helstu eyjar.

Síða 2, bakhlið

Á þessari síðu er fjallað um stærð landsins og fjallað um helstu eyjar við strendur landsins og hiti sjávar hér og þar um landið tíundaður.

Skjal 11, framhlið

Frásögn af djöflinum og ferðum hans um landið þar sem fylgjendur hans hljóta grimmilega og jafnvel hláleg örlög eftir meðferð hans.
Margt fólk er nefnt í þessari sögu, til dæmis Jóhann Sölvason (1829-1864), Kristján í Ærlækjarseli og annað heimilisfólk þar á bæ og Jakob Pétursson í Breiðumýri (1790-1885).

Skjal 1, bakhlið

Á bakhliðinni er frásögn af einum þessara drauma þar sem djöfullin kemur við sögu og fjall eitt við sem heitir Góafeykir sem er í minna Rússlandi. .
Um miðja síðu byrjar ný frásögn þar sem bæir í heimasveitinni koma við sögu, bæði Skálá og Enni, greinilega vantar aftan á þá frásögn.

Skjal 1, bakhlið

Á þessari síðu er fjallað um vonda vist hjá vondu fólki í Ærlækjarseli. Guð kemur einnig við sögu en fyrir trúna er Sölvi ofsóttur en þangað sækir hann jafnframt styrk sinn.

Úr daga-, harma- og forlagabókum Sölva

Ljóð sem virðist vera ein samhangandi frásögn á bæði framhlið og bakhlið. Erfitt að greina einhver skil á milli erinda og formið virðist ekki vera mjög fast í reipunum en ljóðlínurnar eru mislangar. Fyrst eru óvildarmenn á Sölva í Ærlækjarseli tilgreindir en síðan beinist athyglin að píslum Sölva og sambandi hans við Guð.

Skjal 1, framhlið

Á þessari síðu er fjallað um ritstörf Sölva. Greint er frá verki í vinnslu sem er þegar orðin sex þúsund þúsunda arka að stærð. Umfjöllunin beinist að bæði þjáningum Sölva og að yfirnáttúrulegum afköstum hans. Kunnuglegt umræða um hversu mörg þúsund dagstörfum hann getur skilað.

Skjal 1, framhlið

Á þessari síðu er að því er virðist ein níðvísa á þessari síðu og byrjun á annarri. Erfitt er að átta sig á hvort og þá hvar erindi byrja og enda. Virðist vera í belg og biðu en atkvæði hverar línu frekar fá. Seinni vísan sem heldur áfram á bakhlið er stíluð á Kristinn Jóhannesson á Brú í Jökuldal (mögulega Kristinn Jóhannesson sem er fæddur 1820 og deyr 1865. Var um tíma í Skagafirði en er sagður vera á Eiríksstöðum á Jökuldal 1855).

Saga af djöflinum eftir Sölva

Þetta er ein af sögunum af skrattanum og fylgjendum hans. Í þetta skiptið er veisla í neðribyggðum þar sem skrattinn gengur í skrokk á fylgjendum sínum. Sagan er öll hin undarlegasta og ekki allaf auðvelt að átta sig á hvað er að gerast, auk þess skiptir sögumaður úr þriðju yfir í fyrstu persónu fleirtölu.
Þar sem það vantar að minnsta kosti aftan á frásögnina getur verið að eitthvað samhengi fari þarna forgörðum.

Skjal 1, framhlið

Til sögunnar eru nefndir þeir Þorleifur, andskotinn, sonur hans Þorstein, Jón Daníelsson og Helgi Jónsson. Sagan er öll hin undarlegasta en þeir félagar virðast vera saman komnir í veislu í „neðribyggðum“, þeirri mestu sem haldin hafði verið í lengri tíma. Andskotinn er með hárkollu (parruk) og forláta hatt sem hann notar til að gefa þeim Þorleifi, Jóni og Helga á Kjaftinn. Bæði kollan og hatturinn „bögluðust“ þegar djöfullinn greiddi þeim höggið en hvort tveggja lagaðist aftur þegar hann setti það aftur á hausinn á sér.

Skjal 3, bakhlið

„þannig hélt djöfullinn til vítis með alla lestina sína.“
Sagan endar á því að djöfullinn heldur til síns heima með allar þær sálir sem hann safnaði saman á ferð sinni um Ísland.

Síða 1, framhlið

Hér er einhver Margrét kynnt til leiks en henni er eignað fyrsta ljóðið á síðunni um Sölva. Lausamálið á seinni helming síðunnar er lýsing á kveðskap Sölva um Margréti þessa sem birtist á bakhlið síðunnar.

Síða 2, bakhlið

Á þessari síðu er ljóð sem á að vera lýsing konu á Sölva. Hún vill ekki láta nafns síns getið að sögn sögumanns vegna þess að hún unni Sölva fyrir tólf árum síðan og vildi helst ganga að eiga hann ef hún fengi að velja en því miður voru foreldrar hennar heimskir og vildu fremur gifta hana Jóhanni nokkrum. Það telur sögumaður hafa verið hennar ógæfu enda orðin föl og heilsulítil fimm barna móðir Samkvæmt sögumanni var Sölvi settur í þrældóm til þeirra hjóna þegar hann var ofsóttur í Þingeyjarsýslu. Hún reyndist honum vel en Jóhann alls ekki.
Mögulega gæti Sölvi verið að vísa til Kristínar Helgu Rögnvaldsdóttur en þau virðast hafa verið í einhverju tilhugalífi ef marka má ljóðabréf Sölva til hennar og bréf hans til föður stúlkunnar en þar bað hann um hönd hennar og til vara hönd systur hennar en ekkert varð af þeim fyrirætlunum.
Sjá ljóðabréf:
Sópdyngja: Þjóðsögur, alþýðlegur fróðleikur og skemmtan. II. bindi. (1951). Reykjavík: Víkingsútgáfan-Helgafell, bls. 125-128.

Sölvi: þræll og sölumaður norðlenskra höfðingja (nr. 41)

Hér virðist vera í heilu lagi smásaga af píslum Sölva sem þræll og sölumaður norðlenskra höfðingja. Hann fer um allt land eins og honum er skipað og selur gripi sem hann hefur smíðað, öllum hagnaðinum á hann síðan að skila af sér til höfðingjana en hann á að hlýða skipunum. En það er í mótsögn við eðli Sölva því hann er fyrir náð Guðs boðberi sannleikans og dyggðarinnar en ekki lyginnar og syndarinnar sem störf fyrir þessa höfðingja fela í sér og spurningin verður hvort Sölvi losni einhvern tímann undan þessum þrældómi og kvölum.

Skrifreglur handa manni

„Skrifreglur handa manni“ er titill skjalsins og þar eru ritaðar í sex liðum leiðbeiningar í skrift. Sölvi ávarpar einhvern í textanum og virðist vera að skrifa þessar reglur niður fyrir einhvern ónafngreindan sem bað hann um slíkar reglur. Á bakhlið arkarinnar er svo texti óskyldur skrifreglunum en þar fer kunnuglegur reiðilestur yfir illri meðferð á Sölva.

Skjal 1, bakhlið

Á þessari síðu er efni óskylt skrifreglunum en hér fer kunnuglegur reiðilestur yfir illri meðferð á Sölva sjálfum.

Síða 4, opna

Umfjöllun um tugabrot heldur áfram og sýnt með dæmum hvernig beri að nota frádrátt og margföldun í þeim. Í lok síðunnar hefst kaflinn um deilingu tugabrota.

"Um heimspeki"

Á þesum síðum boðar Sölvi trú sína og fjallar um hvaða aðferðum er best að beita við trúariðkun. Hann varar sérstaklega við bókstafstrú en telur aðferðir heimspekinga gagnlega til þess að feta áfram veginn að sannleikanum og dyggðinni.

Niðurstöður 851 to 935 of 63382