Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 15,8 cm. Bókin inniheldur upplýsingar ætt Halldóru Auðunsdóttur, uppskriftir úr jarðabók ÁM um jarðir í Fljótum. Með liggja tvö minnisblöð sem einnig innihalda upplýsingar úr jarðarbók. Kápu vantar á bókina og síðurnar eru upplitaðar.
Kenslubók í esperantó : bygð á Th. Cart: L'Esperanto en dix leçons : ásamt orðasafni með íslenskum þýðingum / eftir Þorstein Þorsteinsson. Reykjavík : Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar, 1909. viii, 104 bls. ; 20 sm.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm. Hún inniheldur kveðskap, m.a. eftirmæli eftir Fljótamenn. Kápan er nokkuð óhrein, en annars er ástand bókarinnar gott.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggðasamlags um rekstur skólaskrifstofu Skagfirðinga, fulltrúaráð. Fundir frá 2. maí 1996-25. febrúar 1997 (2 fundir). Bls. 1-10 eru útfylltar. Með liggur undirskriftablað frá 27. mars 1998 en engin fundargerð frá þeim fundi.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17,5x21 cm. Bókin er 221 númeraðar síður, þar af 3 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni að hluta. Bókin er innsigluð.
Bókin er innbundin í stærðinni 9,5x12,9 sm. Á titilsíðu stendur: "Bent Rasmussen: Spedjer kogebog. K.F.U.M. spedjernes instruktionshaandböger. III. De unge forlag. I Hovedkommission: O. Lohse, Köbenhavn. MCMXXIV." Bókin er í góðu ásigkomulagi.
Fimmtíu Passíu Sálmar / kvednir af Hallgrími Péturssyni, Sóknarpresti til Saurbæar á Hvalfjardarstrønd, frá 1651 til 1674. Hallgrímur Pétursson 1614-1674 höfundur. Reykjavík : Prentsmiðja Islands : Einar Þórdarson, 1855 214, [1] bls. ; 15 sm. Kápan er laus frá bókinni en annars er hún í góðu ásigkomulagi.
Skráningarbók fyrir póstsendingar. Bókin er innbundin og í hana eru færðar póstsendingar frá Silfrastöðum 1904-1959. Með liggja póstsendingaskrár og fylgibréf.
Bókin er 30 síður, auk kápu. Bókin er gefin út í Reykjavík af Leiftri. Hún er illa farin, síðurnar lausar og slitnar og rifnað hefur af hornum nokkurra þeirra.
Baksíðan hefur rifnað af bók sem gefin er út af Fjallkonu-útgáfunni, en ekki er ljóst hvaða bók. Á síðunni eru listaðar upp bækur sem komu út hjá útgáfunni árið 1914.
Rímnabókin Æfintýrið Jóhönnuraunir. Á titilsíðu stendur: "Æfintýrið Jóhönnuraunir. Snúð af þýsku undir íslenzk fögur rímnalög af Snorra Bjarnasyni presti til Staðar í Aðalvík 1741 og síðan að Húsafelli 1757-1803. Útgefandi: Þorlákur Reykdal. Þriðja útgáfa. Reykjavík 1904. Prentsmiðja Frækorna." Bókin er innbundin í stærðinni 8,3x15,7 cm. Kápan er aðeins farin að losna en bókin heilleg að öðru leyti.
Bókin er innbundin og er 17,6x20,4 sm að stærð. Hún er 124 tölusettar blaðsíður og þar af eru 119 bls auðar. Utan um bókina er hlífðakápa úr þunnum pappír. Í bókina eru ritaðar fundargerðir héraðsmálafunda og millifundanefnda frá árunum 1929-1947. Annars vegar er um að ræða fundi rafveitunefndar frá árunum 1929-1930 og hins vegar fundi mullifundanefndar frá árinu 1947, þar sem rætt var um sjúkrahús- og lögreglumál.
Innbundin bók í stærð 21,5 x 30 cm. Í hana eru færðar upplýsingar um sauðfé félagsmanna í fjárræktarfélagi Hólahrepps. Færslurnar eru frá tímabilinu 1950-1966. Ástand bókarinnar er gott.
Dagbók Péturs Jónassonar fyrir árið 1951. Bók í A5 stærð. Í bókina eru m.a. færðar upplýsingar um veðurfar, búskapinn í Minni-Brekku og atburði í Fljótum og á landsvísu. Með liggja nokkur minnisblöð. Kápu vantar á bókina, ásamt fremstu og öftustu blöðum.
Balslevs biflíusögur handa unglingum / er íslenzkað hefir Ólafur Pálsson ; með viðbæti eptir Helga Einarsson. Balslev, Carl Frederik, 1805-1895. Ólafur Pálsson. Útgefandi Reykjavík : Ísafoldarprentsmiðja, 1896. Bókin er 160 bls. í stærðinni 13,8 x 9,5 sm.
Minnisbókin er innbundin, í stærðinni 16,4 x 9,7 sm. Í hana eru skráð viðurnefni manna í Ísafjarðarsýslum. Á forsíðu er ritað: ""Nokkur viðurnefni og uppnefni í Ísafjarðarsýslu. Uppskrifuð eftir skrá er fyrir lá í Vigur, 1961."
Stílabók sem í eru skráðar upplýsingar sem varða skattframtöl á umræddu árabili. Bókin er merkt "skattframtal 1941" en í henni eru upplýsingar sem varða árin 1941-1943. Bókin er í mjög heillegu ástandi.
Sálmaval við helgidagalestur í heimahúsum. Á titilsíðu stendur: "Sálmaval við helgidagalestra í heimahúsum. Samið hefur sjera Grímur sál. Grímsson prestur að Barði í Fljótum. Ásamt með nokkrum helgidagabænum, eptir ýsma merkispresta. Kostnaðarmaður J. Grímsson. Akureyri í prentsiðju norður- og austur-amtsins, af H.Helgasyni 1857." Bókin er innbundin í stærðinni 10,4x12,9 sm. Síðurnar orðnar nokkuð slitnar og óhreinar en bókin annars heilleg. Bókbandið orðið laust og kápu vantar. Brot á hornum blaðsíðna og bókin nokkuð blettótt og óhreinindi, einkum á ystu síðum.
Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók fyrir fyrirtæki og stofnanir, vinnubók fyrir einstaklinga, höfuðbók fyrir viðskiptamenn A-Þ og skilagrein Kreppulánasjóðs.
Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm. Stephan G. Stephansson. Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða. Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð. Inniheldur ljóð eftir skáldið.
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm. Bókin inniheldur ýmis ljóð, einkum erfiljóð eftir Fljótamenn. Kápan er laus frá bókinni og síðurnar eru upplitaðar.
Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók og bókhald einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Vöruleifar 1934-1942 og reikningar frá Raforkufélagi Hofsóss 1934-1936.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Stutt kenslubók í Íslendinga sögu handa byrjendum / eptir Boga Th. Melsteð. Kaupmannahöfn : útgefanda ekki getið, 1914. 154, [2] bls. : myndir, kort ; 20 sm. 3. útg. aukin og endurbætt.
Innbundin fundargerðarbók. Fundagerðir nefndar um byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða 06.12.2000-16.10.2001 (nr 1-9). Fundargerðir nr 3 og 4 á lausum, prentuðum blöðum.