Bréfasamskipti Byggðasafnsins og New Iceland herritage museum. Varðar fyrirspurn um "talandi steina." Alls 2 pappírsarkir í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Paul Nedergaard Jensen. Varðar heimsókn arkitektanema. Með liggja ýmis fylgigögn. Alls 5 pappírsarkir í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Efni bréfs: Varðar 36. landsþing Kvenfélagasambands Íslands. Meðfylgjandi er dagskrá, lög KÍ, þingsköp fyrir landsþingið, tillögur uppstillingarnefndar, kjörbréf og þátttökueyðublað.
Safnið samanstendur fyrst og fremst af ársskýrslum og fréttabréfum UMSS, Ungmennafélagsins Tindastóls og undirdeilda þess. Flokkað niður í eftirfarandi flokka: A: Ársskýrslur og ársfundargögn UMSS B: Önnur gögn UMSS C: Ársskýrslur UMF Tindastóll D: Ársskýrslur og ársreikningar undirdeilda UMF Tindastóls E: Önnur gögn Páll Ragnarsson var formaður U.M.F. Tindastóls um árabil.
Samkomulagið er 1 pappírsörk í A4 stærð. Það kveður á um afnot af húsum jarðarinnar Tyrfingsstaða á Kjálka til námskeiðahalda fyrir gamalt handverk í torf-og grjóthleðslu og járnsmíðum. Ástand skjalsins er gott.
Jóla og tækifæriskort sem koma úr ýmsum áttum. Eru frá árabilinu 1957-2011. Kortin eru mörg gefin út til fjáröflunar af félagasamtökum í Skagafirði, s.s. ungmannafélögum, sóknarnefndum, grunnskólanemum og fleirum.
Kaupsamingur og afsal vegna Víðilæks sem var sumarbústaður í eigu Árna og Maríu, einnig lítil skrifblokk með lista yfir innkaup vegna framkvæmda við bústaðinn. Eitt skjal með lista og útskýringum er varða val á skífu - ekki liggur fyrir hverju það tengist en skjalið var sett með kaupsamningsskjölunum.
Bréfasamskipti Byggðasafnsins og Einars og Rósalindu. Varðar myndir heimsókn eirra frá Canada til Íslands og fréttir af þeim (jólabréf). 1 pappírsörk í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Frá vinstri Lilja Ingimundardóttir (1981-) - Guðmundur Heiðar Jensson (1958-) ásamt syni sínum Ingva Guðmundssyni (1988-) og Helga Elísa Þorkelsdóttir (1983-).